Fćrsluflokkur: Íţróttir

Lýđrćđi hjá Blađamannafélaginu?

Ađalfundur Blađamannafélag Íslands er á morgun, fimmtudag, og hefst fundurinn kl. 20. Tveir bjóđa sig fram til formanns. Ég er einn af fjölmörgum félögum í BÍ sem verđa ađ vinna á morgun ţegar fundurinn fer fram. Ekki er hćgt ađ kjósa utan kjörfundar samkvćmt ákvörđun stjórnar BÍ. Ótrúlegt en satt....

Fréttatími Moggans og S1 fćr 14,5% áhorf..

Nýr fréttatími Moggans og S1 virđist höfđa til fólkst á aldrinum 12-49 ára.
Capacent mćlir áhorfiđ.

Mogginn og S1 er međ 14,5% áhorf.  Stöđ 2 er međ 17,7%.

 

skjar_ungir.gif

 

 

 

 

 

 

s2_ungir.gif


Helvítis, fucking, fuck tékklisti

Kann Google ţetta allt?

Helvítis, fucking, fuck tékklisti ef ţú ert á ferđinni....

Katalónía:Maleďda sigui, merda, merda

Búlgaría: По дяволите, шибана, мамка му

Króatía: Damn, karanje, jebanje

Holland: Verdomme, fucking, fuck

England: Damn, fucking, fuck

Eistland:  Kurat, kurat, kurat

Filipseyjar: Sumpain, fucking, boogie

Finnland: Hitto, vittu, vittu

Frakkland: Merde, putain, putain

Gelíska: Porra, porra, porra

Ţýskaland: Verdammt, verdammt, fuck

Grikkland: Ανάθεμα, fucking, fuck

Hebreska; לעזאזל, לעזאזל, לעזאזל

Ungverjaland:  Francba, kurva, kurva

Indónesía: Sialan, sialan, fuck

Írland: Damnaigh, fucking, fuck

Ítalía: Damn, cazzo, cazzo

Japan: くそー、クソ、ファック

 

 

 

 

 


Einn, tveir...

Einn, tveir.......einn, tveir.......

Skítalyktin á stundum vel viđ..

Á leiđ minni í og úr vinnu kemst mađur ekki hjá ţví ađ finna "ilminn" ţegar bćndur sprauta kúamykju og öđrum lífrćnum úrgangi á tún sín undir suđurhlíđum Akrafjalls og í Kjósinni.

Ég fann svipađa lykt í kvöld ţegar fjallađ var um styrkina sem Sjálfstćđisflokkurinn fékk frá FL og LI.

Ég hafđi  litla sem enga trú á stjórmálum og stjórnmálaflokkum.

Ţađ lagađist ekki eftir fréttir dagsins.

Ađrir flokkar ćtla eflaust ađ nýta sér ţessa skítabombu sér til framdráttar.

Ég spyr. Hvernig er stađan hjá öđrum flokkum?

Mín tilfinning er sú ađ ţetta sé allt saman á sama planinu.

Og ţađ er allt eins líklegt ađ ekkert breytist.  

Svo er líka alltaf hćgt ađ taka ţátt í stuđinu.


„Stíft" og snarpt

Vinur minn Kristján Jónsson a.k.a Bolvíska Stáliđ kom ţví til leiđar ađ fyrirtćkiđ Vín og matur kom rauđvínsflösku til mín fyrir nokkru.

Stáliđ skorađi á mig ađ smakka veigarnar og segja frá ţví hvernig vökvinn smakkađist. Vínsmökkum bloggheima gćti ţetta kallast.

Ég sá ekki ţegar flaskan barst upp á hálendiđ í höfuđstöđvar Morgunblađsins en ég efast um ađ Kristján Jónsson hafi ţorađ á grćna sápustykkinu í slíkt ferđalag.

Chianti Classico víniđ sem ég fékk í hendurnar er ítalskt. Gamalgróiđ fjölskyldufyrirtćki Castello Di Querceto er hugmyndasmiđurinn en „brugghúsiđ" er stađsett rétt viđ Flórens og Siena.
Í framhjáhlaupi má geta ţess ađ Siena er ítalskur meistari í körfubolta og ég hef séđ liđiđ spila í Róm. Ţađ er önnur saga.

Chianti Classico flaskan sem ég opnađi er frá árinu 2007. Víniđ er ungt og ţađ var nauđsynlegt ađ hella úr flöskunni í karöflu og leyfa ţví ađ anda. Ég dró andann međ ţví. Hellti ţví í stórt glas sem lak ekki.
(Ţađ eru grunnatriđin í vínsmökkum sem ég fékk frá ćskuheimilinu. Ef ţađ lekur ekki ţá er hćgt ađ nota ţađ.)

Ađ mínu mati er Chianti Classico er eins og sportbíll. „Stíft" og snarpt. Ég hafđi ţví miđur ekki tök á ţví ađ elda stórsteik, bjóđa fólki í mat og drekka Chianti Classico ţar sem ađ konan var í blaki.

Víniđ er bragđmikiđ og ég ćtla ekki einu sinni ađ reyna ađ ljúga einhverju um hvađa „ber" eđa „bragđ" einkennir víniđ. Og fyrir mann sem hefur nefbrotnađ fimm sinnum í einhverju körfuboltarugli ţá er lyktarskyniđ eins og íslenska bankakerfiđ. Í molum. 

Chianti Classico er gott á bragđiđ. Skál fyrir ţví.

Ég skora á Eirík Ásgeirsson íţróttafréttamann á Fréttablađinu/Vísir.is ađ taka viđ keflinu. Hann er sérfrćđingur í rauđvíni. Ég kynntist ţví á miklu rigningarkvöldi á spćnsku eyjunni Mallorca í mars áriđ 2007. Ţar talađi Eiríkur ţýskum tungum og var alvitur um rautt, hvítt og Mojito.


Íţróttir á RÚV???

Í gćr horfđi ég á hluta af beinni útsendingu frá brunkeppni karla á heimsmeistaramótinu í Frakklandi á NRK í Noregi. Bara nokkuđ gott sjónvarpsefni og Nojararnir kunna alveg ađ matreiđa ţetta efni ofaní sjónvarpsáhorfendur.  Hér á Íslandi er líka Ríkisútvarp eins og í Noregi. Íţróttadagskrá helgarinnar á RÚV var međ eindćmum. Nákvćmlega EKKERT í bođi:

Undanúrslit í bikarkeppni karla í handbolta í dag og sitthvađ fleira í gangi. Laugardagar voru á árum áđur flaggskip íţróttadeildar RÚV. Beinar útsendingar frá hinu og ţessu. Nánast alltaf eitthvađ á dagskrá.

Í gćr var hinsvegar bođiđ upp á endursýningu á ţýskri heimildamynd um hljómsveitarstjórann Daniel Barenboim og hljómsveit sem hann stofnađi međ ungum aröbum og gyđingum. e.

Og síđan tók viđ önnur endursýning á heimildarmynd um um vinsćlustu rokkhljómsveit Dana fyrr og síđar, Gasolin', ţar sem Kim Larsen söng og spilađi á gítar á sínum tíma.

Og ađ ţví loknum tók viđ endursýning á danskri heimildarmynd um PCB-mengun í Diskóflóa. Eiturefniđ safnast upp í efstu lögum lífkeđjunnar og fer í mjólkina í brjóstum kvenna.
 
Ţetta er alveg međ eindćmum ađ RÚV skuli forgangsrađa međ ţessum hćtti....
 
 

 

 

 


Gobbídí, gobb

Vinir og kunningjar sem ég hitti á förnum vegi eru hćtt ađ rćđa um veđriđ viđ mig. Fyrsta spurningin er ALLTAF. "Ertu ekki ennţá međ vinnu?" Og mađur spyr á móti. "Og eru einhverjar breytingar hjá ţér?" Ţetta ástand á Íslandi er međ eindćmum. Vćri ekki ráđ ađ vera BARA međ hvalkjöt í bođi í mötuneytum ríkisstofnanna á međan ţetta ástand varir.. 36 mánuđir eđa svo..

x

Ég held ađ PR-mađurinn í hestaíţróttunum hafi ekki átt von á eins mikilli athygli og ţeir fengu í gćr á Reykjavíkurtjörn. Hestarnir voru vissulega í fréttum en ţađ gleymdist alveg ađ ţessi fundur var víst haldin í tilefni Meistaradeildar VÍS.. gulltryggt dćmi..gobbídí,gobb.

x

Ég heyrđi ađ Redknapp hjá Tottenham skipti í liđ á ćfingum ţar sem komnir/farnir/komnir spila gegn ţeim sem eru bara búnir ađ koma.. 11 gegn 11.. 

 


Sviptingar í gamla Tónabć

Hrađi einkennir atburđi dagsins. Búiđ ađ reka Sigmund Erni og frú á 365.. trailerfrettir_2.jpg

Skiptar skođanir um ţann gjörning.

Sá hinsvegar ađ tćknimenn á visi.is hafa ekki haft tíma til ţess ađ búa til nýtt logo fyrir fréttatíma Stöđvar 2 sem eru auglýstir á forsíđu. 

Uppfćrt 16:18: Ţeir voru á tánum tćknimennirnir og hafa nú fćkkađ um einn á nýja spjaldinu á forsíđunni.

trailerfrettir_3.jpg

 

 

 

 


Mikiđ áhorf á kjör íţróttamanns ársins

Samkvćmt mćlingu Capacent ţá horfđu rúmlega 130.000 á útsendingu frá kjöri íţróttamanns ársins 2008. 

Stórmerkilegt og ánćgjulegt fyrir Samtök íţróttafréttamanna. 

ruv_allir.gif

 


Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband