Lýðræði hjá Blaðamannafélaginu?

Aðalfundur Blaðamannafélag Íslands er á morgun, fimmtudag, og hefst fundurinn kl. 20. Tveir bjóða sig fram til formanns. Ég er einn af fjölmörgum félögum í BÍ sem verða að vinna á morgun þegar fundurinn fer fram. Ekki er hægt að kjósa utan kjörfundar samkvæmt ákvörðun stjórnar BÍ. Ótrúlegt en satt....

Fréttatími Moggans og S1 fær 14,5% áhorf..

Nýr fréttatími Moggans og S1 virðist höfða til fólkst á aldrinum 12-49 ára.
Capacent mælir áhorfið.

Mogginn og S1 er með 14,5% áhorf.  Stöð 2 er með 17,7%.

 

skjar_ungir.gif

 

 

 

 

 

 

s2_ungir.gif


Helvítis, fucking, fuck tékklisti

Kann Google þetta allt?

Helvítis, fucking, fuck tékklisti ef þú ert á ferðinni....

Katalónía:Maleïda sigui, merda, merda

Búlgaría: По дяволите, шибана, мамка му

Króatía: Damn, karanje, jebanje

Holland: Verdomme, fucking, fuck

England: Damn, fucking, fuck

Eistland:  Kurat, kurat, kurat

Filipseyjar: Sumpain, fucking, boogie

Finnland: Hitto, vittu, vittu

Frakkland: Merde, putain, putain

Gelíska: Porra, porra, porra

Þýskaland: Verdammt, verdammt, fuck

Grikkland: Ανάθεμα, fucking, fuck

Hebreska; לעזאזל, לעזאזל, לעזאזל

Ungverjaland:  Francba, kurva, kurva

Indónesía: Sialan, sialan, fuck

Írland: Damnaigh, fucking, fuck

Ítalía: Damn, cazzo, cazzo

Japan: くそー、クソ、ファック

 

 

 

 

 


Einn, tveir...

Einn, tveir.......einn, tveir.......

Skítalyktin á stundum vel við..

Á leið minni í og úr vinnu kemst maður ekki hjá því að finna "ilminn" þegar bændur sprauta kúamykju og öðrum lífrænum úrgangi á tún sín undir suðurhlíðum Akrafjalls og í Kjósinni.

Ég fann svipaða lykt í kvöld þegar fjallað var um styrkina sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk frá FL og LI.

Ég hafði  litla sem enga trú á stjórmálum og stjórnmálaflokkum.

Það lagaðist ekki eftir fréttir dagsins.

Aðrir flokkar ætla eflaust að nýta sér þessa skítabombu sér til framdráttar.

Ég spyr. Hvernig er staðan hjá öðrum flokkum?

Mín tilfinning er sú að þetta sé allt saman á sama planinu.

Og það er allt eins líklegt að ekkert breytist.  

Svo er líka alltaf hægt að taka þátt í stuðinu.


„Stíft" og snarpt

Vinur minn Kristján Jónsson a.k.a Bolvíska Stálið kom því til leiðar að fyrirtækið Vín og matur kom rauðvínsflösku til mín fyrir nokkru.

Stálið skoraði á mig að smakka veigarnar og segja frá því hvernig vökvinn smakkaðist. Vínsmökkum bloggheima gæti þetta kallast.

Ég sá ekki þegar flaskan barst upp á hálendið í höfuðstöðvar Morgunblaðsins en ég efast um að Kristján Jónsson hafi þorað á græna sápustykkinu í slíkt ferðalag.

Chianti Classico vínið sem ég fékk í hendurnar er ítalskt. Gamalgróið fjölskyldufyrirtæki Castello Di Querceto er hugmyndasmiðurinn en „brugghúsið" er staðsett rétt við Flórens og Siena.
Í framhjáhlaupi má geta þess að Siena er ítalskur meistari í körfubolta og ég hef séð liðið spila í Róm. Það er önnur saga.

Chianti Classico flaskan sem ég opnaði er frá árinu 2007. Vínið er ungt og það var nauðsynlegt að hella úr flöskunni í karöflu og leyfa því að anda. Ég dró andann með því. Hellti því í stórt glas sem lak ekki.
(Það eru grunnatriðin í vínsmökkum sem ég fékk frá æskuheimilinu. Ef það lekur ekki þá er hægt að nota það.)

Að mínu mati er Chianti Classico er eins og sportbíll. „Stíft" og snarpt. Ég hafði því miður ekki tök á því að elda stórsteik, bjóða fólki í mat og drekka Chianti Classico þar sem að konan var í blaki.

Vínið er bragðmikið og ég ætla ekki einu sinni að reyna að ljúga einhverju um hvaða „ber" eða „bragð" einkennir vínið. Og fyrir mann sem hefur nefbrotnað fimm sinnum í einhverju körfuboltarugli þá er lyktarskynið eins og íslenska bankakerfið. Í molum. 

Chianti Classico er gott á bragðið. Skál fyrir því.

Ég skora á Eirík Ásgeirsson íþróttafréttamann á Fréttablaðinu/Vísir.is að taka við keflinu. Hann er sérfræðingur í rauðvíni. Ég kynntist því á miklu rigningarkvöldi á spænsku eyjunni Mallorca í mars árið 2007. Þar talaði Eiríkur þýskum tungum og var alvitur um rautt, hvítt og Mojito.


1., 2.. 3., 4., og 5. mars árið 1989

Hver man eftir 1., 2.. 3., 4., og 5. mars árið 1989?

Skólastjórnendur FVA á Akranesi áttu "múv" ársins. "Opin vika" hófst miðvikudaginn 1. mars og það fór eitthvað lítið fyrir mætingu og ástundun næstu daga þar á eftir.. og helgin var ekkert síðri..

Kaiser, Löwenbrau, Budweiser..:-) 

Og það eru víst 20 ár liðin......

 


Íþróttir á RÚV???

Í gær horfði ég á hluta af beinni útsendingu frá brunkeppni karla á heimsmeistaramótinu í Frakklandi á NRK í Noregi. Bara nokkuð gott sjónvarpsefni og Nojararnir kunna alveg að matreiða þetta efni ofaní sjónvarpsáhorfendur.  Hér á Íslandi er líka Ríkisútvarp eins og í Noregi. Íþróttadagskrá helgarinnar á RÚV var með eindæmum. Nákvæmlega EKKERT í boði:

Undanúrslit í bikarkeppni karla í handbolta í dag og sitthvað fleira í gangi. Laugardagar voru á árum áður flaggskip íþróttadeildar RÚV. Beinar útsendingar frá hinu og þessu. Nánast alltaf eitthvað á dagskrá.

Í gær var hinsvegar boðið upp á endursýningu á þýskri heimildamynd um hljómsveitarstjórann Daniel Barenboim og hljómsveit sem hann stofnaði með ungum aröbum og gyðingum. e.

Og síðan tók við önnur endursýning á heimildarmynd um um vinsælustu rokkhljómsveit Dana fyrr og síðar, Gasolin', þar sem Kim Larsen söng og spilaði á gítar á sínum tíma.

Og að því loknum tók við endursýning á danskri heimildarmynd um PCB-mengun í Diskóflóa. Eiturefnið safnast upp í efstu lögum lífkeðjunnar og fer í mjólkina í brjóstum kvenna.
 
Þetta er alveg með eindæmum að RÚV skuli forgangsraða með þessum hætti....
 
 

 

 

 


Gobbídí, gobb

Vinir og kunningjar sem ég hitti á förnum vegi eru hætt að ræða um veðrið við mig. Fyrsta spurningin er ALLTAF. "Ertu ekki ennþá með vinnu?" Og maður spyr á móti. "Og eru einhverjar breytingar hjá þér?" Þetta ástand á Íslandi er með eindæmum. Væri ekki ráð að vera BARA með hvalkjöt í boði í mötuneytum ríkisstofnanna á meðan þetta ástand varir.. 36 mánuðir eða svo..

x

Ég held að PR-maðurinn í hestaíþróttunum hafi ekki átt von á eins mikilli athygli og þeir fengu í gær á Reykjavíkurtjörn. Hestarnir voru vissulega í fréttum en það gleymdist alveg að þessi fundur var víst haldin í tilefni Meistaradeildar VÍS.. gulltryggt dæmi..gobbídí,gobb.

x

Ég heyrði að Redknapp hjá Tottenham skipti í lið á æfingum þar sem komnir/farnir/komnir spila gegn þeim sem eru bara búnir að koma.. 11 gegn 11.. 

 


Sviptingar í gamla Tónabæ

Hraði einkennir atburði dagsins. Búið að reka Sigmund Erni og frú á 365.. trailerfrettir_2.jpg

Skiptar skoðanir um þann gjörning.

Sá hinsvegar að tæknimenn á visi.is hafa ekki haft tíma til þess að búa til nýtt logo fyrir fréttatíma Stöðvar 2 sem eru auglýstir á forsíðu. 

Uppfært 16:18: Þeir voru á tánum tæknimennirnir og hafa nú fækkað um einn á nýja spjaldinu á forsíðunni.

trailerfrettir_3.jpg

 

 

 

 


Oslóartréð er úr Skorradal

Oslóartréð á Austurvelli er víst ættað úr Skorradal ef mínar heimildir eru réttar.. þannig hefur það víst verið undanfarin ár.. Osló borgar fyrir tré sem fellt er í Skorradal og flutt til Reykjavíkur..

Mikið áhorf á kjör íþróttamanns ársins

Samkvæmt mælingu Capacent þá horfðu rúmlega 130.000 á útsendingu frá kjöri íþróttamanns ársins 2008. 

Stórmerkilegt og ánægjulegt fyrir Samtök íþróttafréttamanna. 

ruv_allir.gif

 


Lögin sem komust ekki áfram

Ég horfði á forkeppni Júróvísjón á laugardagskvöldið. Skammast mín ekkert fyrir það.

Samúð mín er hjá þeim lagahöfundum sem sendu inn lög í þessa keppni og KOMUST EKKI ÁFRAM.

Hversu slök voru þau? Pældu í því.


Lúðrasveitabúningur

Hvers vegna er maðurinn í lúðrasveitabúningnum frá Selfossi alltaf í viðtölum um allt og ekkert á RÚV???

og það á að forgangsraða þannig að rúmlega 300 skuldarar á Suðurlandi verða handteknir vegna bílálána eða Nilfisk ryksugu sem keypt var á raðgreiðslum.. magnað..


Afkomuviðvörun

Ég sendi hér með formlega tilkynningu til Kauphallar Íslands og Ríkisins um afkomuviðvörun vegna fyrsta ársfjórðungs 2009. 

Guð blessi Ísland........ _38952841_falling_shares_203.jpg


2008 REWIND

Djúpt á þessari færslu. Fattaði í dag að ég er ekki með Fésbók, hef aldrei farið inn á Fésbók og ég veit ekki hvað þetta er........líklega má rekja það til þess að ég er á fimmtudagsaldri.. helvítis fokking fokk..

Ég ætla að reyna að REW árið 2008 í stuttu máli og myndum.... fyrir þá sem ekki vita þá er REW takkinn á VHS tækinu..... Svindlum aðeins á þessu og tökum skref inn í janúar.

6. janúar 2009

_throttama_ur_a_2008_036-1_767716.jpg

Fimleikamaður Akraness 2008 - Frumburðurinn hefur alla íþróttahæfileikana frá pabbanum en mamman (sem verður fertug á þessu ári) má alveg eiga hrósið. Hún hefur víst þjálfað Elísu Svölu frá árinu 1994...... Elísa var á dögunum valin í úrtakshóp KSÍ fyrir 16 ára landsliðið..og hún heldur með Tottenham.. að sjálfsögðu eða þannig

6. janúar 2009

picture_121.jpg

Ég var fljótastur að synda þegar þessi sundkennari sendi mig út í óvissuna í myrkrið í apríl árið 1968.... það leyndi sér ekki á mömmu þegar líða fór á árið að ég var helvíti snöggur.. kom í heiminn 30.12.1968.. Sundkennarinn frá Akranesi hefur á undanförnum mánuðum tekið að sér að vera meindýraeyðir í efri byggðum Akraness..Hann heldur ávallt upp á afmælið sitt þann 6. janúar ár hvert en það eru víst 4 ár í að hann fái frítt í sund.....(þá er hann 63 ára.. ef að Árni bróðir er að lesa). 

Desember...

 

jolamyndir_2008_007.jpg

Jólin komu og fóru. Sá yngsti horfir á Tedda veðurfræðing á RÚV á hverju kvöldi og blótar því ef þessi hitabylgja heldur áfram að hrella landann. Nýju skíðin bíða út í bílskúr og nú á að skíða til að gleyma ICESAVE á árinu 2009. Miðbarnið gleymir ekki þessum jólum í bráð. Helköttaður á barnaspítala hringsins á öðrum degi jóla, botnlanginn eitthvað að þenja sig. Gott að því er lokið. 

Desember

skorradalur_020.jpg

Fórum í Skorradal að höggva tré.. áttum ánægjuleg nótulaus viðskipti við RÍKIÐ en tréð felldi ekki eina nál eftir að það var gróðursett í stofunni. Allir í stuði þegar við sóttum gripinn..


Og hvernig eru hægðirnar?

Og hvernig eru hægðirnar og heilsufarið svona almennt... spurði vinur minn í morgun í örstuttu símtali.... bara rétt si svona að minna mig á að ég get ekki lengur sagt ég sé 39 ára...

Nokkrir eðalkylfingar fæddir á þessum degi.. seth, Tiger Woods og Halldór Ingólfsson handboltamaður úr Haukum svo einhverjir séu nefndir... 

Fékk ekki rafmagnsgítarinn sem ég hef lengi óskað eftir... kaupi hann bara sjálfur og leysi upp partý á nýju ári gegn vægu gjaldi..

Þar til síðar.. 

skál og gleðilegt ár...

 


Jólagjöfin fyrir þá sem eiga allt

Jólagjöfin fyrir þá sem eiga allt.... 

Niðurskurður rauði þráðurinn á árinu 2009, verðbólgan í botni, skattahækkanir, atvinnuleysi...

Betra að eiga slíka nauðsynjavöru.....

Kakóhitarar eru víst staðalbúnaður í 90% bifreiðum landsins... það gæti líka verið kostur að vera alltaf með kakóhitarann í gangi á næsta ári

Á meðan við tökum þátt í því að rétta af þessi smávægilegu mistök.....

Þetta er vont en það venst...

 

 


og skítadreifarar...

Ég las góða sögu í vikunni. Þar áttu nemendur í 1. bekk að skrifa um Ísland.. vek athygli á orðinu um landbúnaðartæki í fimmtu línu, lokakaflinn er magnaður. 

 Á Íslandi eru mörg fjöll, Akrafjall og Hekla.

Það eru líka jarðskjálftar og eldgos, stundum, ekki alltaf.

Það eru fossar og jöklar á Íslandi og mikið af fjöllum.

Á Íslandi eru mörg dýr, hreindýr, hundar, kisur, minkar og refir og líka kindur og skítadreifarar. Svo eru fiskar í sjónum íkringum Ísland og líka hvalir og háhyrningar.

Forseti Íslands heitir Ólafur Ragnar Grímsson og hann á konu sem heitir Dorrit.

Forsetinn ræður eiginlega öllu og keyrir ekki bíl.

Höfundur er 6 ára og er nemandi í Grundaskóla á Akranesi.


Blaðamaður fundar með ritstjóra...

 

Blaðamenn sem funda með ritstjóra undir fjögur augu þurfa framvegis að...

government-watch-list-3.jpg

 

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband