Hitti naglann á höfuðið

Hver hefði trúað því að umbrotsmaður á Morgunblaðinu, sem heldur með Fylki og er rétt í meðallagi góður í golfi, hafi hitt naglann á höfuðið á lokakafla leiks West Ham og Tottenham í gær.your_shout

Ágætur blaðamaður úr Kópavoginum, Hjálmar Jónsson, stökk hæð sína í loft upp þegar Zamora koma West Ham í 3:2. Útlitið var bjart, Hjálmar var í stuði. 

Þá kom gullkornið frá umbrotsmanninum snjalla.

"Tottenham vinnur 4:3," sagði hann. Skömmu síðar skoruðu mínir menn tvö mörk í röð. Stalteri stráði salti í sárin. Já, Stalteri.....

Það heyrðist ekkert það sem eftir var kvöldsins frá Hjálmari - Hann sagðist vera upptekinn við vinnu. Rétt fyrir miðnætti var Hjálmar eðlilegur á ný. Það tekur á að halda með West Ham. 

Skil það vel.  Þvílíkur leikur. 


mbl.is Dökkt útlit hjá West Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Böddi?

Helgi Mar (IP-tala skráð) 5.3.2007 kl. 20:45

2 Smámynd: Sigurður Elvar Þórólfsson

JEbb Böddi

Sigurður Elvar Þórólfsson, 6.3.2007 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband