Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

120 spírur á ári fyrir íþróttaefni

Í þessari færslu er gert ráð fyrir því að enski boltinn verði á sérstöð hjá 365.

Það hefur ekki verið útskýrt hvernig þessu verður háttað. ec89446ed4461477

Verður SÝN áfram eins og hún er dag?, með íslenskt íþróttaefni, F1, spænska boltann, golf, póker, tuddareið og fleira? - 

Og þegar Ari Edwald talar um sér íþróttastöð fyrir enska boltann þá veltir maður því fyrir sér hvað þessi pakki á að kosta fyrir áskrifendur. 

Ég hringdi í 365 í dag og spurði um verða á mánaðaráskrift á SÝN,  -4.500 kr. á mánuði var svarið.

Ég spurði; Verður enski boltinn sýndur á SÝN??

Svarið var: "Ég veit það ekki fyrr en í maí.

Ég spurði; þarf ég þá að kaupa séráskrift að enska boltanum.

Svarið var: "Veistu að ég hef bara ekki heyrt frá yfirmanni mínum hvernig þessu verður háttað."   -

Sem sagt ný stöð um enska boltann, og þeir sem eru áskrifendur hjá SÝN virðast þurfa að punga 3000-5000 kr. á mánuði til viðbótar fyrir enska boltann. Kannski verður verðið lægra eða hærra. Hef ekki hugmynd um það en í dag greiða áskrifendur hjá Skánum um 3000 kr. á mánuði fyrir enska boltann. 

Eru Íslendingar tilbúnir að borga 8.000-10.000 kr. á mánuði fyrir íþróttaefni í sjónvarpi? Allt að 120.000 kr. á ári?  - Ég held að ég fái mér frekar nýtt golfsett  - árlega.

Það verður spennandi að fylgjast með þessu á næstu vikum og mánuðum. 


mbl.is Sirkus tengdur Stöð 2 og í lokaðri dagskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vínrautt og magnað

Góðar fréttir af Allsherjarnefnd.

Rakst á undarlegar fréttir á næst öftustu síðu Fréttablaðsins í dag af bílamálum "fræga fólksins" á Íslandi.H4ock8ats5WY

Magni á Lexus og einhver kona sem ég man ekki hvað heitir á Ford.

Verð því að deila með ykkur stórfrétt.

Ég á tvo franska eðalvagna, sem eru báðir árgerð 1999.

Annar svartur og hinn er að ég held vínrauður.

Hvað annað.

Annars er ég alveg hundfúll yfir því að fá ekki að komast að á meðal hinna útvöldu á forsíðu blog.is.

Hver sér eiginlega um valið?

Er í samningaviðræðum við nokkur bílaumboð um að setja flashauglýsingu á þetta bloggdæmi hjá mér og ef ég kemst ekki á forsíðu blog.is er málið dauttW00t 


mbl.is Allsherjarnefnd afgreiddi frumvarp um afnám einkasölu ríkisins á léttvíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggarar á Hainan eyju

Stórfurðuleg staðreynd.sanya-hainan

Bloggararnir Birgir Leifur Hafþórsson og Jón  Gunnlaugur Viggósson sem skipa sæti 32. og 33. á lista blog.is eru báðir staddir þessa stundina á Hainan eyju í Kína.

Birgir leikur þar á Evrópumótaröðinni í golfi og Jón Guðlaugur tekur þátt í Herra heimur.

Hver segir að Ísland sé fámennt og lítið land?

Við erum allstaðar. 


Íslenskur þingmaður?

Ég las fyrirsögnina og datt ekki annað í hug en að þarna væri á ferð íslenskursleep-apnea-02 þingmaður.Sleeping Það er annars helst í fréttum af kanínum þingmannsins hér á Akranesi að þær eru hættar að vera krúttlegar. Róta í garðinum eins og moldvörpur og éta fuglamatinn. Krökkunum finnst þær vera krúttlegar og kanínurnar fá því að njóta vafans.

Hef ekki séð Magnús Hafsteinsson á vappi í garðinum á síðustu vikum enda er hann upptekinn við önnur störf.Wink

Þingmenn Frjálslynda flokksins hafa sett upp bloggsíður á Moggablogginu á undanförnum dögum, Magnús og Sigurjón Þórðarson eru þar fremstir í flokki. Það skyldi þó ekki vera að Mogginn kæmi til bjargar þrátt fyrir allt.


mbl.is Kona vaknar upp úr dái eftir sex ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besti bjór í heimi

Frír bjór - er það ekki besti bjór í heimi?

Það er góðtemplarastemning hér á Íslandi þegar kemur að því að ræða  íþróttaviðburði og áfengi. Algjört tabú enn sem komið er.

Ég er á þeirri skoðun að það sé ekkert að því að selja bjór á stærri íþróttaviðburðum hér á Íslandi.2816_miracle_alcohol

Stór hluti þeirra sem mæta á landsleiki eða úrslitaleiki í bikarkeppni gera sér glaðan dag og ætla að skemmta sér á leiknum án þess að allt fari úr böndunum. 

Margir nota áfengi, oftast bjór, og þar sem ekkert aðgengi er að því á sjálfum leiknum eru margir sem skola niður nokkrum könnum áður en haldið er á völlinn.

Getur verið að slík neysla skapi enn meiri vandræði. Væri ástandið eðlilegra ef aðgengi væri að bjór á leikvellinum?

Hafa menn ekki reynslu af slíku úr veitingahúsabransanum þegar barnum var lokað 12:30 en staðurinn var opinn til 3?

Það fyndnasta í þessari bjór/íþróttaumræðu er sú staðreynd að aðeins fáir útvaldir fá að umgangast áfengi á slíkum viðburðum.

VIP-elítan, styrktaraðilar og fleiri geta ef þeir hafa áhuga drukkið bjór fyrir leik eða í hálfleik.

"Sumir eru jafnari en aðrir"  -Animal Farm.  

Jói múrari og Svenni forritari sem eru að laumast með einn Egils gull aumingja í bakpoka á leið sinni á leikinn eiga það á hættu að vera "böstaðir" í hliðinu vegna "smyglsins". Ég held að Sigmundur Ernir á Stöð 2 hafi minnst á þetta atriði í einhverjum pistli fyrir mörgum árum. 

Og þeir sem mæta á landsleiki á Laugardalsvellisjá hve mikið af tómum umbúðum af bjór er fyrir utan völlinn. Þar sitja áhorfendur og sötra áður en haldið er inn á völlinn.

Á ferðum mínum á ýmsa íþróttaviðburði erlendis hafa áhorfendur í flestum tilvikum getað nálgast bjór á íþróttaviðburðunum ef þeir hafa áhuga á því.

Ég hef séð 40.000 stuðningsmenn Stoke City hella upp á sig á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff  -án teljandi vandræða.

Ég hef séð áhorfendur á heimsmeistara - og Evrópumótum í handknattleik drekka bjór á þar til gerðum svæðum.

Á HM í handknattleik í janúar í Þýskalandi voru íslenskir stuðningsmenn í miklu stuði. Hvernig ætli hafi staðið á því. Sjónvarpsmyndir lugu engu um það. Kaldur á krana í plastglasi reddaði stemningunni. 

Fleiri dæmi mætti nefna. 

Þessar samkomur hafa farið fram án teljandi vandræða.

Er þetta hægt á Íslandi?

Eða er sumum treyst til þess að drekka áfengi á stórviðburðum en öðrum ekki.

Einnig mætti nefna aðra fjölmenna viðburði sem fram fara í íþróttamannvirkjum á hverju ári.

Tónleika.

Ég hef ekki heyrt stórfréttir af slagsmálum á tónleikum undanfarin ár.

Þar er aðgengi að bjór...rándýrum vökva að vísu. Þar ekkert tabú. Bara fjör.

Verður þetta ekki stærsta kosningamálið í vor.Wink

 

       


mbl.is Ókeypis aðgangur og frír bjór á leikjum í Ribe
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eiki í rútu frá Sæmundi

Myndbandið með Eika í Kastljósinu í kvöld var eins og gamall, flatur Ringnes bjór (norskur bjór).rental

Það er búið að gera 1.000 myndbönd í blæjubíl í Hvalfirði og jafnmargar sjónvarpsauglýsingar. 

Dr. Gunni var með góðar hugmyndir í Kastljósinu, Víkingaskip í Bláa Lóninu, spjót og fleira. Líklega kaldhæðni í Doktornum.

Það hefði verið betra að fá Eika í rútu frá Sæmundi í Hvalfirði en þetta LA dæmi í blæjubílnum. Miami Vice þáttur eða hvað.?

Lagið venst furðuvel en ég held að það verði bara eitt partý í vor.

Stjórnendur blog.is hafa enn sem komið er ekki séð ástæðu til þess að hleypa okkur almúganum á efri hæðir bloggsins á forsíðu.

Sæmundur hleypti mér einu sinni upp á efri hæðina í þessum eðalgrip sem er á myndinni. 

Samt ekkert spennandi að vera í þessu apparati undir Hafnarfjalli í +40 m/s.  


mbl.is Eiríkur verður fimmti á svið í Helsinki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dreifbýlistútta á VIP svæðið?

Ef þessi reglugerð verður ættleidd frá Svergie til Íslands fæ ég ekki póst inn um bréfalúguna.

Bréfalúgan á kotinu okkar er í 3 cm. hæð frá jörðu.vip

Veit ekki afhverju. 

Ætla hinsvegar að benda á bréfalúguna sem félagar mínir á Morgunblaðinu hafa sett upp á blog.is.

Ég hef aldrei komist upp "VIP" svæðið á forsíðu blog.is sem ber nafnið umræðan.

Kannski er það myndin af mér sem fælir menn frá þeirri ákvörðun. 

Eða sú staðreynd að ég hef ekki mætt í Moggaboltann í rúm þrjú ár. 

Tja.... þetta er verðugt rannsóknarefni - afhverju kemst dreifbýlistúttan frá Akranesi ekki inná VIP svæðið?     


mbl.is Ólöglegar bréfalúgur valda vandræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örhventir og konur

Horfði ekki á Silfur Egils um helgina, en í þessari bloggfærslu kvartar Sóley Tómasdóttir yfir því að 8 karlar hafi verið í þættinum - og engar konur.

Ég er alveg handviss um að meiri jöfnuður væri í þáttum Egils ef aðeins væri keppt í opnum flokkum í skák og bridge. fe01_lefty_display

Konur og stjórnmálaflokkar sem vilja berjast fyrir auknu jafnrétti í næstu Alþingiskosningum ættu að setja þetta mál í efsta sæti.

Ég hef aldrei skilið afhverju það er keppt í kvennaflokki í þessum greinum.

Á meðan þessi kynskipting er til staðar í keppni í skák og bridge verður staða kvenna í samfélaginu óbreytt. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál. 

Ef þetta ófremdarástand lagast ekki legg ég til að keppt verði í flokki örvhentra í skák og bridge.

Ég hef áður minnst á kvennaflokkinn í skák og bridge á þessu bloggi mínu og fengið eitt svar frá konu um málið.

Þar var áhugasvið kvenna helstu rökin fyrir því að keppt er í kvennaflokki í skák og bridge.

Svo sem ágæt rök en ég skil samt ekki afhverju það er keppt í kvennaflokki í skák og bridge. Það fer að líða að því að ég hætti að sofa yfir þessu máli. Og hana nú. 


mbl.is Snoop Dogg handtekinn í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fermingarsettið dugði í 18 ár

Móðir mín hefur áhyggjur af því að ég láti öll fjölskylduleyndarmálin fljóta út á þetta bloggbull mitt.

Tja.... það er ýmislegt sem hún þarf að hafa áhyggjur af.Tounge

Reyndar vorum við að rifja upp í dag hve mikið hlutirnir hafa breyst.

Níu ára púki fékk í dag golfsett frá stórfjölskyldunni í afmælisgjöf. Sérhannað fyrir börn og mun betra en það sem kylfingar á mínum aldri fengu sem fyrstu verkfæri í íþróttinni. 

Mútta minnti mig á það að ég hefði ekki fengið golfkylfur fyrr en ég fermdist.

Það er alveg rétt. Fram að því notaði maður bara afsagaða "sjöu" úr gömlu setti. Það dugði fínt en skaftið var eins og steypustyrktarjárn og hlutföllin í kylfunni langt frá því að vera rétt.

Ég vona að þessi texti hafi ekki farið út fyrir velsæmisstuðul G. Kolbeins - Vísar í klám á nokkrum stöðum, sjöan er rétt við sexið, og skaftið getur verið mjúkt, millistíft eða stíft. 2003919112834734

Fermingarsettið, McGreogor Lite, dugði vel og því var ekki skipt út fyrr en sumarið 2000 - eftir 18 ára notkun.

Frábærar kylfur en það var aðeins farið að láta á sjá.

Hef ekki snert á McGregor Lite í sjö ár.

Lite í fljótandi formi hefur tekið við.   

 


"Hvati" í Monkey Bay

Ég vissi ekki fyrr en í dag að þessi stofnun væri til.

ÞSSSSSSSSÍ...eða eitthvað svoleiðis.

Ríkisapparatið er stærra en maður heldur.Monkey%20Bay

Sighvatur Björgvinsson? (hver man eftir honum?), var reiður í viðtali við Stöð 2 í hádeginu.

Tæknimenn þar á bæ fá prik fyrir myndatextann sem var birtur þegar símaviðtal var tekið við Sighvat.

Þar stóð: Sighvatur Björgvinsson talar frá Monkey Bay í Malawi.  Myndin hér til hliðar er samkvæmt google frá þessum fallega stað.

Ég brosti út í annað, gott staðarnafn, en staðurinn virðist fallegur. 


mbl.is Utanríkisráðuneytið hafnar fullyrðingum framkvæmdastjóra ÞSSÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband