Færsluflokkur: Íþróttir

39 stiga afsökunarbeiðni í Efstaleitið

Jæja. Ég ætla að byrja á því að senda afsökunarbeiðni í Efstaleitið. Það sem lak út á mbl.is í kvöld fór beint í sjónvarpsfréttirnar hjá RÚV kl. 10.  - Sorrý. Geri þetta aldrei aftur. 

Ég var heppinn að fá tækifæri til þess að sjá Grindavík - Þór í úrvalsdeild karla. Magnaður leikur.

Þar fór Þorleifur Ólafsson á kostum og skoraði að  ég hélt 36 stig alls og 34 stig í síðari hálfleik. Við ritaborðið var röggsamur drengur, með rautt hár og gleraugu, og hann var alveg á því að Þorleifur hefði skorað 39 stig í leiknum og 37 í síðari hálfleik.

Ok, ég keypti það, því ég hafði ekki tíma til að fara yfir gang leiksins - stóri EPSON prentarinn í Hádegismóum var víst á HOLD og menn vildu fá sitt efni.

Ég lét þessar upplýsingar flakka á mbl.is. 

Nokkrum mínútum síðar eftir aksturinn frá Grindavík og í Hádegismóa, gat ég farið yfir þessa hluti aftur. Þorleifur var "aðeins" með 34 stig í síðari hálfleik og 36 alls. Málið var leiðrétt á mbl.is en það var of seint. Sorrý RÚVARAR ég skal aldrei gera þetta aftur. 

 


Afmælisbarn dagsins

Afmælisbarn dagsins er Ísak Örn,  sem er 6 ára í dag.Picture 349

Ísak kann ýmislegt fyrir sér og í stuttu máli er hann snillingur.

Til hamingju með daginn Ísak.

(e.s. já, þetta er rétt, bræðurnir á heimilinu eru fæddir 12. og 13. mars) Mjög hentugt fyrir þá sem eiga erfitt með að muna afmælisdaga.  


Ótrúleg liðsheild, myndband

Ég er nokkuð viss um að óðalsbóndinn á Bjargi við Laugarbraut hefur séð þetta á Discovery áður. 

Liðsheild í Krüger þjóðgarðinum í Suður-Afríku. Sjón er sögu ríkari

 


Hagræðing???

Ég hef ekki lagt það í vana minn að lesa það sem þessi ágæti maður er að blogga.

Játa á mig glæpinn, og ég renndi yfir þessa síðu í rólegheitum í kvöld. Skoðaði reyndar eiginlega bara fyrirsagnir og stolnu myndirnar....

Ég velti því fyrir mér afhverju baunateljarar á fjölmiðlum landsins eru ekki búnir að ráða manninn í vinnu til þess að fjalla um ALLT:

Stjórnmál, fólk í fréttum, kvikmyndir, íþróttir, innlendar fréttir, veðurfréttir, erlendar fréttir, sjávarútvegsmál, viðskiptafréttir, stjörnuspánna, staður og stund...svo eitthvað sé nefnt...............

HAGRÆÐING er lykilorðið í þessu samhengi....... 

 


Geispi í Birmingham

Geisp......................................er varla að nenna þessu. Og ég hef heyrt að Birmingham sé ljótasta borg Evrópu. Svei mér þá ef við Tottenham gaurarnir hérna á klakanum eigum ekki eftir að skella okkur í helgarferð til Birmingham. Þetta er nú ljóta ástandið...........

Heitt í kolunum á 365 miðlum?

Það er aðeins farið að hitna í kolunum hjá 365 í Skaftahlíðinni. og þá er ekki ég ekki að tala um hlutabréfin hjá félaginu sem gætu kannski flokkast undir "kauptækifæri" núna. Veit það ekki. Þarf fyrst að selja í DeCode..

Hressandi deilur hjá Henry Birgi á Fréttablaðinu og Valtý Birni sem stýrir þættinum Mín Skoðun.

Henry var reiður í færslu sem birtist í kvöld, en þar var fyrirsögnin "Hvernig er hægt að vera svona vitlaus" en síðar var búið að pússa aðeins fyrirsögnina og færsluna í heild sinni. Fyrirsögnin er víst "Hvernig er hægt að misskilja svona?"

Hressandi hjónabandserjur í gamla Tónabæ.....

koma svo strákar.. öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir.


Bara eitt gigg í Serbíu

Ég heyrði íslenska sigurlagið Júróvísjón  í fyrsta sinn í bílnum rétt eftir að keppninni var lokið í Smáralind.

Það var reyndar með íslenskum texta. Og þegar ég hafði hlustað á lagið í fyrsta sinn hugsaði ég hvort fólk í Evrópu myndi gleypa þessa froðu... ég mundi ekki viðlagið og gat ekki rifjað upp eina laglínu eftir fyrstu hlustun....

Í gær bað ég krakkana mína að rifja upp laglínu í sigurlaginu eða viðlagið..

sá yngsti var bara ánægður með annað sætið og söng Hey, hey, hey i say hó, hó, hó, -

miðbarnið söng "Hvar ertu nú?, ert þú að leita að mér, eins og ég leita að þér?" og sú elsta gretti sig bara. "Ég syng ekki, var svarið"

Ég held að undankeppnin í Serbíu verði fyrst og síðasta giggið hjá Íslandi.. nema að gaurinn, þarna úr Hagaskóla, hakki sig inn á tölvukerfið og sjái til þess að Ísland verði best í heimi.. eða Evrópu.. 

Ég sá hinsvegar menn mætast í meintu rifrildi í Kastljósi í gær sem tengdist Júróvisjón.. úff.. who cares? 


Í Tottenhamtreyju í skólann

Lífið virðist ekki vera of stutt til þess að halda með Tottenham....og margt hefur breyst á stuttum tíma. Sonurinn sem er á 10. ári fór í Tottenham treyjunni í skólann.. það hefur ekki gerst áður. tottenham-cswy

Helvíti var þetta skemmtilegt.. einn mesti "lúser" atvinnumennskunnar, Jonathan Woodgate, skorar sigurmarkið gegn Dollarliðinu hans Roman Abramovich...Íhaaaa

Kannski að Woodgate verði bestu kaup sögunnar??? hver veit.. 


Kalkúnn frá Írlandi??

Írar hafa í gegnum tíðina átt góða spretti í Júróvísjón.. Johnny Logan?? þrefaldur meistari..

Írar hafa ekki átt góðu gengi að fagna í þessari keppni undanfarin ár og líklega verður þessi kalkúnn ekki langlífur í Serbíu.. verður án efa slátrað...

Ég sá ekki lokaþáttinn í gær á Íslandi og gæti ekki fyrir mitt litla líf munað eina laglínu úr sigurlaginu.

þessi keppni er að fara til fjandans.. 


Óli Jó tekur við handboltalandsliðinu

Ég er með hugmynd. Þverfaglegt samstarf KSÍ og HSÍ.

Ólafur Jóhannesson verður þjálfari A-landsliðs karla í fótbolta og handbolta.

Óli hefur reynslu af því að þjálfa handbolta.

Hann þjálfaði að mig minnir handboltalið Skallagríms og gott ef ekki hjá ÍA á sínum tíma.

Í grunninn eru þessar greinar mjög líkar..eða þannig


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband