Færsluflokkur: Íþróttir
Þriðjudagur, 29.4.2008
Afsakið hlé
Það besta við þetta blog(g) er að stundum þarf ekkert að vera í gangi....
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 25.4.2008
Góð úrslitakeppni en ekki sú besta..
Keflvík er besta lið landsins í karla og kvennaflokki í körfubolta. Svo einfalt er það. Snæfell átti ekki breik í Keflvíkinga í úrslitarimmunni og fyrir þá sem hafa gaman af körfubolta þá átti leikurinn í gær að sjálfsögðu að hafa verið 5. leikurinn, oddaleikur. En það var ekki niðurstaðan í ár.
Úrslitakeppnin var góð, ekki sú besta. Það vantaði meiri spennu í margar viðureignir. KR-ÍR (1:2), Keflavík - ÍR (3:2) og Snæfell - Grindavík (3:1) voru þær rimmur sem stóðu upp úr.
Úrslitaviðureign Kef -Snæfells náði eiginlega aldrei að byrja. Keflavík sprakk út á réttum tíma á meðan lykilmenn í liði Snæfells voru farnir að þreytast.
Nú tekur við silly season í körfunni.. Kjötmarkaðurinn, baráttan um innflutt kjöt og innlent...Skallagrímur þarf að ná í 6-7 leikmenn.. Tindastóll í eitthvað svipað..
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 24.4.2008
Henry í útvarpið að læknisráði
Ekki heyrt þetta áður en samkvæmt mínum heimildum mun Henry kollegi minn á Fréttablaðinu taka við útvarpsþætti Valtarans á XFM. Og er það læknir 365 miðla sem lagði þetta til...
Tímasetningin þykir hentug.
Þátturinn er í gangi frá 12-13 alla virka daga.. það eru því minni líkur á því að aðalsprauta þáttarins gúffi miklu í sig í hádeginu......
Henry verður í samkeppni við hádegisfréttir Stöðvar 2, hádegisfréttir RÚV og á endasprettinum eru það dánafregnir og auglýsingar á rás 1...
Svona mun hádegið því líta út hjá flestum.....
11.55 | mbl.is tv fréttir |
11:59 | Gúff |
12.00 | Fréttayfirlit |
12.01 | Stöð 2 hádegisfréttir |
12.15 | Henry |
12.19 | Gúff |
12.20 | Hádegisfréttir |
12.45 | Veðurfregnir |
12.50 | Dánarfregnir og auglýsingar |
12.58 | Henry |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 23.4.2008
Blúbbið hjá Riise..
Riise ber höfuðið hátt og hann má það alveg. Fín tilþrif og skallinn alveg óverjandi..
Ef hann hefði ekki verið að blúbba þarna á lokamínútunum í gær þá væri bara hægt að ræða um uppistandið á Suðurlandsveginum í dag. Gas, Gas, Gas, er líklega frasi úr lögregluskóla ríkissins......
Uppistandið í dag fór að mestu framhjá mér.. nennti ekki að kveikja á sjónvarpinu en mbl.is var með fínar myndir af þessu í dag þar sem að grjótkastarinn náðist á mynd.
Undanúrslit Meistaradeildarinnar í fótbolta voru eins og maður átti von á.. boring. Það eru ekki teknir neinir sénsar. Veðjað á eitt horn eða eina aukaspyrnu.. Geisp eða á maður að segja Gaaaas..
Vinnustaðafundur í dag hjá Árvakri.. fátt kom á óvart..en það er sóknarhugur á hálendinu......
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 22.4.2008
Keflvíkingar snýta spánni
Keflvíkingar eru heldur betur að snýta þessari spá minni um að Snæfell verði Íslandsmeistari í körfubolta eftir oddaleik í Keflavík.
Eftir að hafa séð þá í gær í Hólminum þarf margt að breytast í leik Snæfells fyrir þriðja leikinn þar sem Keflavík getur tryggt sér titilinn.... Mér fannst eins og sumir leikmenn Snæfell hefðu tekið þátt í Iceland Express hringlinu áður en leikurinn hófst...8 tapaðir boltar í 1. leikhluta.
Kannski að úrslitakeppnin endi mun fyrr en menn áttu von á.......hver veit..
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 21.4.2008
Pressa á íþróttafréttamönnum
Hvalfjarðargöng verða lokuð vegna viðhaldsframkvæmda aðfararnótt þriðjudagsins 22. apríl og aðfararnótt miðvikudagsins 23. apríl. Lokunin varir frá miðnætti til klukkan sex að morgni. Vegfarendur þurfa því að aka um Hvalfjörð þessar tvær nætur.
Leikur Snæfells og Keflavíkur hefst kl. 20.00 - líklega þríframlengdur...leikslok áætluð 22:15.. Ég er eiginlega með það á hreinu að einhverjir snillingar úr stéttinni fái sér bíltúr í Hvalfirði rétt eftir miðnætti í kvöld.
Borgarneslögreglan í samvinnu við sérsveit Ríkislögreglustjóra mun vera með öflugt eftirlit með ökurhraða á Mýrunum og undir Hafnarfjalli seint í kvöld....
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 09:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 19.4.2008
Spáin er þessi
Ég klikkaði á því að spá fyrir um úrslitarimmuna áður en leikurinn í dag hófst.
Gleymdi mér yfir Middlesbrough - Bolton, Wigan - Tottenham.
Eða þannig. Geisp......
Hjörtur Júlíus Hjartarson á RÚV vakti mig í morgun kl. 11:30 og það er víst til á teipi að ég spáði Keflavík sigri í dag.
Það gekk eftir en leikurinn var spennandi. Jonni Mæju (Jón Ólafur Jónsson) var næstum því hetja dagsins. Síðasta skotið fór á hringinn en ekki í gegnum hann.......
Spáin er þessi:
Snæfell vinnur oddaleikinn á útivelli..
3:2 fyrir Snæfell.
Ég spái því einnig að hraðamyndavélin við Fiskilæk í Leirársveit muni smella nokkrum myndum af íþróttafréttamönnum á næstunni..
![]() |
Keflavík sigraði í fyrsta leiknum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 19.4.2008
Henry Birgir er ...
lágvaxnari en margur heldur. Ég hef nokkrum sinnum farið í þáttinn Utan vallar í vetur þar sem að Henry er með ársmiða.
Sjónvarpið blekkir þegar kemur að því að meta hæð manna og í 16:9 formattinu eru flestir litlir og sumir virðast jafnvel vera feitir.
Og það er einnig ótrúlegt hverni ljósin í upptökusalnum fara illa með lúkkið á hárinu á viðmælendum.
Það virðist jafnvel vera um skalla að ræða. Ótrúlegt þetta sjónvarp maður.
Þetta myndband er líka ótrúlegt. Er þetta sett á svið?
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 17.4.2008
Rottuborgari!
Snillingarnir á baggalutur.is eru með þetta innslag í dag.
Ég velti því fyrir mér hvort þetta gæti ekki átt við grísí Kebab stað á götuhorni í Osló?
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 17.4.2008
Áhorfendatölur í hand -og körfubolta
Umræðan um stöðu handboltans er mikil þessa dagana. Sérstaklega þar sem að úrslitakeppnin í körfunni á sviðið og þar baða menn sig í sviðsljósinu. Í Keflavík í kvöld var stappfullt út úr dyrum, líkt og í hinum leikjunum í undanúrslitunum.
Lokaumferðir N1-deildar karla virðast varla vekja áhuga leikmanna, hvað þá áhorfenda. Geisp.
Það er gott að handboltahreyfingin taki púlsinn á stöðu íþróttarinnar. Á vefnum handbolti.is eru m.a. Hlynur Sigmarsson, Harpa Melsted og Hjálmar Vilhjálmsson að lýsa skoðunum sínum á stöðunni í dag. Það er margt sem hefur farið úrskeiðis hjá handboltahreyfingunni á undanförnum árum og við tökum þær pælingar í öðrum pistli síðar.
Hjálmar bendir á þá staðreynd að engar tölur um áhorfendasókn liggi fyrir frá undanförnum árum og áratugum. Íslenskir prentmiðlar hafa í gegnum tíðina birt mjög óáreiðanlegar tölur um fjölda áhorfenda á handbolta - og körfuboltaleikjum.
Ég hef tekið sjálfur þátt í því að slumpa á þetta - og stundum hefur maður ekki slumpað. Bara talið þær fáu hræður sem eru á staðnum. Og þá á ég ekki við starfsmenn og leikmenn.
Það er gott að Hjálmar er búinn að fatta þetta að allar samanburðartölur eru mikilvægar til þess að setja sér markmið og gera betur en í fyrra. KSÍ hefur á undanförnum árum hamrað á 100.000 áhorfendatölunni. Það tókst og núna setja þeir sér ný markmið.
Þessa grein skrifaði ég í Moggann 18. desember árið 2002. Það hefur lítið breyst frá þeim tíma.
Slumpur og slatti"
"ÉG er ánægður með hve margir hafa mætt á leikina í efstu deild karla það sem af er vetri. Við sjáum það á áhorfendatölunum í dagblöðunum að það er veruleg aukning frá því sem var á síðustu leiktíð," sagði maður við mig á dögunum, sem tengist körfuknattleikshreyfingunni á Íslandi. "Já, er það," svaraði ég stuttur í spuna enda hefur undirritaður starfað við að skrifa um íþróttir í tæp þrjú ár, án þess að upplifa það að forsvarsmenn íþróttafélaga gefi upp með formlegum hætti hve margir áhorfendur hafa mætt á leiki í handknattleik og körfuknattleikVísindin hvað þessa hluti varðar eru hvorki stórkostleg né ábyggileg og eru í sama anda og meistarakokkar í sjónvarpi nota í gríða og erg. "Slumpum" ögn af rauðvíni í sósuna og "slatta" af rjóma.
Það eru aðeins tveir fjölmiðlar sem gefa upp áhorfendatölur í umfjöllun sinni um kappleiki, Morgunblaðið og DV. "Hvað eigum við að giska á að það séu margir mættir í kofann," er spurningin sem blaðamennirnir velta fyrir sér stutta stund og síðan er samið um að "slumpa" á sanngjarna tölu. Ég játa á mig glæpinn en ef blaðamenn myndu ekki "slumpa" á einhverja tölu kæmu engar upplýsingar fram um þennan þátt kappleiksins.
Öðru máli gegnir um knattspyrnuna hér á landi í efstu deild karla. Þar á bæ er mönnum annt um áhorfendatölurnar. Haldið er utan um upplýsingarnar ár frá ári og hægt er að gera samanburð. Eftir hvern leik í efstu deild karla er hægt að ganga að þessum upplýsingum vísum og þar er gefin upp nákvæm tala. Hvert einasta höfuð er talið með, en ekki er gerður greinarmunur á stóru eða smáu höfði!
Það er tímabært að forsvarsmenn íþróttafélaga í hand- og körfuknattleik gefi þessum þætti meiri gaum, að talið verði rétt á íþróttakappleiki, því þær aðferðir sem notaðar eru í dag eru aðeins tal tveggja manna sem koma sér saman um "rétta" tölu.
Að vísu hefur undirritaður farið á kappleiki í báðum greinunum þar sem hann gat auðveldlega talið "alla" þá sem mættir voru á leikinn.
Á einum leik um sl. helgi gerðist það rétt fyrir leikinn, er einn áhorfandi gekk í salinn, að það glumdi um tómt húsið er strákur einn sagði upphátt: "Þá eru komnir tuttugu og fjórir."
Oftar en ekki þarf ekki telja fleiri en 50 áhorfendur á þessum leikjum sem um er að ræða. Að mínu mati hefur leikjum fjölgað þar sem færri en 100 áhorfendur eru á leik og er sú þróun umhugsunarefni fyrir handknattleiks- og körfuknattleikssambandið, en það er önnur saga.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 00:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)