"fersk" ársgömul frétt á visir.is

Ég stóðst ekki mátið.

Þessi texti er úr frétt sem birt var á visi.is í gær.

Sænska úrvalsdeildin hófst fyrir viku síðan þar sem DIF sigraði Norrköping á útivelli, en það sem er skemmtilegast við fréttina er að Brommapojkarna voru í sænsku úrvalsdeildinni Í FYRRA. Þeir féllu s.l. vor og þessi leikur sem skrifað er um fór fram 6. apríl 2007.

"Þú sást það fyrst á visir.is"

Vísir, 05. apr. 2008 16:24

Tap hjá Djurgaarden í fyrsta leik

Lærisveinar Sigurðar Jónssonar í Djurgaarden, sem eiga titil að verja, biðu lægri hlut fyrir Brommapojkarna, 1-0, í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Sölvi Geir Ottesen sat allan tímann á varamannabekk Djurgaarden.

Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson spiluðu báðir allan leikinn fyrir Gautaborg sem gerði jafntefli, 1-1, gegn Trelleborg á útivelli.

 


Snæfell og ÍR í úrslit?

Ég tek það fram að ég vaknaði EKKI með Valdísi Gunnarsdóttur og Valgerði Sverrisdóttur í morgun eins og þeir á Bylgjunni hafa hvatt mig til þess að gera undanfarna daga. Væri það ekki magnað?Shocking

Undanúrslitin í körfunni byrja í kvöld og ég verð víst að spá.

Fékk meldingu frá Danmörku þess efnis að beðið væri eftir þessu bulli.  Hér kemur það.

Keflavík (1.) - ÍR (7.) Ég skýt á að þessi viðureign fari 3:2 fyrir ÍR. Félagið hefur ekki orðið meistari frá árinu 1977 að mig minnir. Það er eitthvað í gangi hjá ÍR sem er erfitt að útskýra. Þeir pökkuðu KR sannfærandi saman í oddaleik á útivelli og þar sem Nate Brown kanna að stjórna hraðanum þá á ÍR möguleika. Þeir vinna oddaleikinn í Keflavík og tryggja sér sæti í úrslitum gegn....

Grindavík (3.) - Snæfell (5.) Hólmarar vinna þetta 3:1. Sorrý Grindavík. Það er bara eitthvað í spilunum sem segir mér að Justin Shouse eigi eftir að fara á kostum ásamt íslenska þríeykinu (Hlynur, Sigurður og Magni). Þeir spila góða vörn og skora mikið undir körfunni í bland við þriggja stiga körfurnar. Er það ekki eitruð uppskrift.  

 


Bloggfærslur 6. apríl 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband