Mánudagur, 12.3.2007
Eiki í rútu frá Sæmundi
Myndbandið með Eika í Kastljósinu í kvöld var eins og gamall, flatur Ringnes bjór (norskur bjór).
Það er búið að gera 1.000 myndbönd í blæjubíl í Hvalfirði og jafnmargar sjónvarpsauglýsingar.
Dr. Gunni var með góðar hugmyndir í Kastljósinu, Víkingaskip í Bláa Lóninu, spjót og fleira. Líklega kaldhæðni í Doktornum.
Það hefði verið betra að fá Eika í rútu frá Sæmundi í Hvalfirði en þetta LA dæmi í blæjubílnum. Miami Vice þáttur eða hvað.?
Lagið venst furðuvel en ég held að það verði bara eitt partý í vor.
Stjórnendur blog.is hafa enn sem komið er ekki séð ástæðu til þess að hleypa okkur almúganum á efri hæðir bloggsins á forsíðu.
Sæmundur hleypti mér einu sinni upp á efri hæðina í þessum eðalgrip sem er á myndinni.
Samt ekkert spennandi að vera í þessu apparati undir Hafnarfjalli í +40 m/s.
Eiríkur verður fimmti á svið í Helsinki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Íþróttir, Sjónvarp, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:03 | Facebook
Athugasemdir
Alveg sammála þér félagi Seth, myndbandið var ömurlegt, textinn óskiljanlegur og búið að afhýða rauðharða rokkarann, minnti mann á útlendu þvottaefnisauglýsingarnar sem íslenskan er töluð inná, hefði verið nær að hafa bandið upp á sviði í réttu búningunum með gítarsólóin, þetta kolfellur í undankeppni og við getum einbeitt okkur að kosningasjónvarpinu 12. maí. Kv bjb ps. Það er kominn tími á Geirmund!
Björn J (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 21:42
Björn, sæll sjálfur. Lykilatriði í golfsveiflunni er að hún er rétt ef að framsveiflan er hraðari en aftursveiflan. Það er skagfirsk sveifla er það ekki??
Sigurður Elvar Þórólfsson, 12.3.2007 kl. 21:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.