Þriðjudagur, 13.3.2007
Besti bjór í heimi
Frír bjór - er það ekki besti bjór í heimi?
Það er góðtemplarastemning hér á Íslandi þegar kemur að því að ræða íþróttaviðburði og áfengi. Algjört tabú enn sem komið er.
Ég er á þeirri skoðun að það sé ekkert að því að selja bjór á stærri íþróttaviðburðum hér á Íslandi.
Stór hluti þeirra sem mæta á landsleiki eða úrslitaleiki í bikarkeppni gera sér glaðan dag og ætla að skemmta sér á leiknum án þess að allt fari úr böndunum.
Margir nota áfengi, oftast bjór, og þar sem ekkert aðgengi er að því á sjálfum leiknum eru margir sem skola niður nokkrum könnum áður en haldið er á völlinn.
Getur verið að slík neysla skapi enn meiri vandræði. Væri ástandið eðlilegra ef aðgengi væri að bjór á leikvellinum?
Hafa menn ekki reynslu af slíku úr veitingahúsabransanum þegar barnum var lokað 12:30 en staðurinn var opinn til 3?
Það fyndnasta í þessari bjór/íþróttaumræðu er sú staðreynd að aðeins fáir útvaldir fá að umgangast áfengi á slíkum viðburðum.
VIP-elítan, styrktaraðilar og fleiri geta ef þeir hafa áhuga drukkið bjór fyrir leik eða í hálfleik.
"Sumir eru jafnari en aðrir" -Animal Farm.
Jói múrari og Svenni forritari sem eru að laumast með einn Egils gull aumingja í bakpoka á leið sinni á leikinn eiga það á hættu að vera "böstaðir" í hliðinu vegna "smyglsins". Ég held að Sigmundur Ernir á Stöð 2 hafi minnst á þetta atriði í einhverjum pistli fyrir mörgum árum.
Og þeir sem mæta á landsleiki á Laugardalsvellisjá hve mikið af tómum umbúðum af bjór er fyrir utan völlinn. Þar sitja áhorfendur og sötra áður en haldið er inn á völlinn.
Á ferðum mínum á ýmsa íþróttaviðburði erlendis hafa áhorfendur í flestum tilvikum getað nálgast bjór á íþróttaviðburðunum ef þeir hafa áhuga á því.
Ég hef séð 40.000 stuðningsmenn Stoke City hella upp á sig á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff -án teljandi vandræða.
Ég hef séð áhorfendur á heimsmeistara - og Evrópumótum í handknattleik drekka bjór á þar til gerðum svæðum.
Á HM í handknattleik í janúar í Þýskalandi voru íslenskir stuðningsmenn í miklu stuði. Hvernig ætli hafi staðið á því. Sjónvarpsmyndir lugu engu um það. Kaldur á krana í plastglasi reddaði stemningunni.
Fleiri dæmi mætti nefna.
Þessar samkomur hafa farið fram án teljandi vandræða.
Er þetta hægt á Íslandi?
Eða er sumum treyst til þess að drekka áfengi á stórviðburðum en öðrum ekki.
Einnig mætti nefna aðra fjölmenna viðburði sem fram fara í íþróttamannvirkjum á hverju ári.
Tónleika.
Ég hef ekki heyrt stórfréttir af slagsmálum á tónleikum undanfarin ár.
Þar er aðgengi að bjór...rándýrum vökva að vísu. Þar ekkert tabú. Bara fjör.
Verður þetta ekki stærsta kosningamálið í vor.
Ókeypis aðgangur og frír bjór á leikjum í Ribe | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Íþróttir, Matur og drykkur, Menning og listir, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:56 | Facebook
Athugasemdir
Heyr, heyr! Íslendingar eru alltaf hræddir um að fólk verði blindfullt og geri tóma skandala. Reynsla af Íslendingum erlendis sýnir samt annað. Bjór fyrir leik og í hálfleik gerir þetta bara meira gaman.
Einar Örn Jónsson, 14.3.2007 kl. 08:40
Sæll Veggur - bjórinn er góður sáttarsemjari
Sigurður Elvar Þórólfsson, 14.3.2007 kl. 08:49
Kanntu að blanda margarítu? Eða sangríu?
Eiríkur Stefán Ásgeirsson (IP-tala skráð) 14.3.2007 kl. 18:16
Að sjálfsögðu
Sigurður Elvar Þórólfsson, 14.3.2007 kl. 19:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.