KR-ingar eru bestir

Ég átti ekki von á því að skrifa svona fyrirsögn nema einhver væri með byssu við gagnaugað á mér. Samtök íþróttafréttamanna hafa komist að þeirri niðurstöðu að KR sé best. Bingó.


Samtök íþróttafréttamanna ákváðu í vor að verðlauna það lið sem stæði sig best hvað varðar  aðbúnað og vinnuaðstöðu fyrir íþróttafréttamenn boltasumarið 2007.  Ljóst er að mörg félög standa sig með mikilli prýði í þessum efnum en hjá nokkrum félögum er pottur brotinn.

 KR-ingar fengu flest atkvæði í kosningu íþróttafréttamanna að þessu sinni um bestu fjölmiðlaaðstöðuna. Þorsteinn Gunnarsson, formaður Samtaka íþróttafréttamanna, afhenti Páli Sævar Guðjónssyni, fjölmiðlafulltrúa og vallarþuli KR-inga, verðlaunaskjöld frá SÍ. Páll Sævar sagði við þetta tilefni að hann líti á þetta sem mikla viðurkenningu fyrir KR-inga sem hefðu ávallt lagt sig fram um að búa sem best að íþróttafréttamönnum. „Mjörg margir sjálfboðaliðar í KR koma að þeirri miklu vinnu að undirbúa heimaleikina og þetta er viðurkenning til okkar allra," sagði Páll. palli

ÍA varð í 2. sæti í kjörinu en þessi tvö félög skáru sig nokkuð úr.

 Íþróttafréttamenn voru beðnir að koma með rök fyrir kosningunni og hér má sjá nokkur ummæli um aðbúnaðinn á KR-velli í sumar:

** Allt fyrsta flokks, þ.e. aðstaða, leikskýrsla, viðmót og hressing

** Allt pottþétt í hverjum leik. Leikskýrsla á einu blaði, net, hrein aðstaða, kaffi, kruðerí og gátlistinn pottþéttur í hverjum leik

** KR-ingar hafa staðið sig vel í allt sumar og gátlisinn sem sendur var fyrir mótið enn við lýði.

** Viðmót KR-inga gagnvart blaðamönnum til fyrirmyndar

** Vel haldið utan um aðstöðu fyrir blaða-og fréttamenn. Allt klárt löngu fyrir leik og allir hlutir á hreinu.

** Boðið upp á þá nýbreytni að bjóða blaðamönnum í léttan mat með spjalli og upplýsingapakki fyrir leik.

Tvö félög skáru sig úr hvað varðar lélegustu aðstöðuna boltasumarið 2007 en það voru Víkingur og FH. Hér má sjá nokkur ummæli um aðstöðua sem þessi félög buðu upp á: 

Víkingur:

** Alltaf vesen með netið enda routerinn öfugu megin, aðstaða lítil og þröng. Ekki alltaf kaffi og vandræði með skýrslur.

** Víkingur tívmælalaust með lökustu aðstöðuna þó að hún hafi verið bætt. Þrengsli og vesen með netsamband.

** Slæm aðstaða fyrir skrifandi blaðamenn og ljósvakamiðlamenn

FH:

** Allt of lítið, borð í fáránlegri hæð og oft erfitt að komast að leikmönnum eftir leik.

** Lítið pláss, póstar fyrir gluggum og völlurinn sést illa allur. Innstungur af skornum skammti, loftlaust og að hátalarar séu uppi á skúrnum er til skammar.

** Hvað þarf ekki að bæta í Kaplakrika? Alltof lítil aðstaða, stólarnir oftast óþægilegir ef þeir fyrir hendi og hátalarar ofan á blaðamannaskúrnum óþolandi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef bara aldrei lesið annað eins kjaftæði með Víking.

** Alltaf vesen með netið enda routerinn öfugu megin, aðstaða lítil og þröng. Ekki alltaf kaffi og vandræði með skýrslur.

Netið var í ólagi í byrjun sumars vegna stanslausra loforða Vodafone. Starfsmenn þaðan komu tvisvar í viku og kvöddu alltaf með þeim orðum "þetta er komið í lag"

Tvisvar sinnum var ekki kaffi og var Fjölmiðlafulltrúi hundskammaður fyrir það.

Þá er það alvitlausasta. Vandræði með skýrslur?? Langar að biðja þá sem kvörtuðu undan skýrslum í Víkinni að gefa sig fram til flengingar. ALLTAF, ALLTAF, ALLTAF, ALLTAF! eru skýrslur í lagi og meira að segja betra lagi en hjá KR og það er mikill árangur.

Skýrslur eru tilbúnar og komnar á netið ekki minna en 45 min fyrir leik og 3x í sumar meira en klukkustund fyrir leik. Þær eru svo alltaf komnar upp í blaðamannastúku ekki minna en 35-40 min fyrir leik.

Þetta veit ég af haldbærri vitneskju enda þekki ég manninn mjög vel sem sér um skýrslurnar og gæti bara verið að það væri undirritaður.

** Víkingur tívmælalaust með lökustu aðstöðuna þó að hún hafi verið bætt. Þrengsli og vesen með netsamband.

Skal ekki þræta fyrir þrengslin en áður svarað fyrir netið.

** Slæm aðstaða fyrir skrifandi blaðamenn og ljósvakamiðlamenn

Bull.

Þeir blaðamenn sem skrifuðu þessar blessuðu athugasemdir hafa haft allt annað í huga þegar þetta var skrifað.

tom (IP-tala skráð) 28.9.2007 kl. 11:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband