Ég lofaði mömmu............

Ég er að komast á þann aldur að ég hef jafnmiklar áhyggjur af börnunum mínum og foreldrunum.

Reyndar hef ég minni áhyggjur af mömmu, þar sem hún er enn á leikskóla, rétt tæplega sextug.

Það er erfiðara að eiga pabba sem er oft aleinn heima.

Hann er oft að framkvæma eitthvað, smíða, mála og jafnvel í rafmagninu ef hann er í stuði.

Ég lofaði mömmu að blogga ekki þessa sögu, en þar sem að tölvan mín er Framsóknarmaður þá stend ég ekki við neitt sem ég segi.nail_firstaid

S.l. föstudag kom það í ljós að neyðarhnappur er eina rétta jólagjöfin fyrir óðalsbóndann á Bjargi. Maður sem liggur á maganum í hálfa klukkustund á eldhúsgólfinu og getur sig hvergi hreyft verður að hafa farsíma með sér í slíkar aðgerðir. 112 hefði komið að gagni.

Ég skora á heilbrigðisráðherra að finna skjót úrræði fyrir menn á sjötugsaldri sem stunda það að rífa af sér neglur fyrir hádegi á föstudegi - edrú.

Í stuttu máli.

Næst þegar þú þarft að laga eitthvað undir eða á bak við uppþvottavélina. Hafðu farsímann með þér. Það er aldrei að vita. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, neyðahnappur væri fín jólagjöf en ég er ekki viss um að ég myndi eftir að hafa hann á mér frekar en símann

Þórólfur (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 18:49

2 Smámynd: Sigurður Elvar Þórólfsson

Tíðindi, stórtíðindi.

Þórólfur á Bjargi komst inn á kommentafærslurnar hjá mér.

-Tæknileg mistök?

Sigurður Elvar Þórólfsson, 17.10.2007 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband