Föstudagur, 4.1.2008
Þessi vigt er snarklikkuð
Nýtt ár gengið í garð og ég er ekki lengur 38 ára.
Tiger Woods hringdi ekki í mig á sameiginlegum afmælisdegi okkar þann 30. des. -.
Fuglakjötið hjá Þórólfi Ævari klikkaði ekki frekar en fyrri daginn. Hann er jafnöruggur og Robbie Keane í vítunum.
Þeir sem voru að horfa á skaupið með mér voru stundum alveg LOST - en ég brosti af og til og hló meira að segja einu sinni eða tvisvar..
Vakti lengi inn í nýja árið.
Gott mál. Vinna á Nýársdag. Og bara nokkuð hress miðað við allt.
Hef sett mér ný markmið á nýju ári. Vigtin á heimilinu er einnig útvarp og þegar ég stíg á hana stillir útvarpið sig á þá rás sem er á viðeigandi tíðnisviði. Útvarp Saga hljómaði í morgun, 99,4??? Og Arnþrúður Karlsdóttir var á línunni. Hó, hó...
Halló - þessi vigt er snarklikkuð.
Fyrsta nýársheitið er þegar í höfn. Ég er hættur að reykja.. hætti því reyndar í Akrafjalli sumarið 1981..grænn í framan eftir gott Viceroy prófunarferli..
Þau áramótaheit sem eru enn eftir eru:
Að koma í veg fyrir að Ástþór Magnússon nái kjöri..........
meira síðar...
Athugasemdir
Við þurfum að koma í veg fyrir að hann fái að bjóða sig fram. Hvernig?, veit ég ekki. Gleðilegt nýtt ár gamli minn, SMS
Svanur (IP-tala skráð) 6.1.2008 kl. 01:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.