Sunnudagur, 6.4.2008
Snæfell og ÍR í úrslit?
Ég tek það fram að ég vaknaði EKKI með Valdísi Gunnarsdóttur og Valgerði Sverrisdóttur í morgun eins og þeir á Bylgjunni hafa hvatt mig til þess að gera undanfarna daga. Væri það ekki magnað?
Undanúrslitin í körfunni byrja í kvöld og ég verð víst að spá.
Fékk meldingu frá Danmörku þess efnis að beðið væri eftir þessu bulli. Hér kemur það.
Keflavík (1.) - ÍR (7.) Ég skýt á að þessi viðureign fari 3:2 fyrir ÍR. Félagið hefur ekki orðið meistari frá árinu 1977 að mig minnir. Það er eitthvað í gangi hjá ÍR sem er erfitt að útskýra. Þeir pökkuðu KR sannfærandi saman í oddaleik á útivelli og þar sem Nate Brown kanna að stjórna hraðanum þá á ÍR möguleika. Þeir vinna oddaleikinn í Keflavík og tryggja sér sæti í úrslitum gegn....
Grindavík (3.) - Snæfell (5.) Hólmarar vinna þetta 3:1. Sorrý Grindavík. Það er bara eitthvað í spilunum sem segir mér að Justin Shouse eigi eftir að fara á kostum ásamt íslenska þríeykinu (Hlynur, Sigurður og Magni). Þeir spila góða vörn og skora mikið undir körfunni í bland við þriggja stiga körfurnar. Er það ekki eitruð uppskrift.
Meginflokkur: Íþróttir | Aukaflokkar: Sjónvarp, Spaugilegt | Facebook
Athugasemdir
Sammála, held reyndar það þurfi odd báðu megin. Svakaleg gaman!
Magnús Þór Jónsson, 6.4.2008 kl. 09:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.