Þriðjudagur, 6.5.2008
Andlegt ofbeldi lögreglunnar á Akranesi
Lögreglan á Akranesi beitir andlegu ofbeldi.
Varð fyrir því sjálfur í gær.
Fór í minn ársfjórðungslega hjólreiðatúr sem á alltaf að vera upphafið að nýjum og breyttum lífsstíl.. (oghvaðmeðþaðaðéghafifariðsíðastþann5.janúar).
Veðrið var frábært og þegar svitinn byrjaði að leka niður ennið á mér velti ég því fyrir mér afhverju í fjandanum ég væri að puða á þessu hjóli. Í stað þess að vera slá golfbolta í blíðunni.
Ég hjólaði eins og vindurinn niður á æskustöðvarnar, neðri-Skagann. Þar varð ég fyrir andlegu ofbeldi frá lögreglunni. Púlsinn var nálægt því í 200 slögum á mínútu. Vindurinn feykti hárinu aftur (jea right), vöðvarnir í lærunum voru að missa meðvitund í mjólkursýrubaðinu og ég þaut áfram sem aldrei fyrr.
Lögreglan var stödd við hraðamælingar við Brekkubæjarskólann og að sjálfsögðu mældu þeir hraðann á mér. Ég átti von á því að fá háa fjársekt enda staddur á svæði þar sem að hámarkshraðinn er 30 km/klst.
Ég steig enn fastar á fótstigin og reyndi að forðast "leysigeislann" sem lögreglan skaut á mig.
Ég fann fyrir skotinu og stuttu síðar heyrði ég fyrrum nemenda minn sem var þarna að störfum kalla.. þú ert á 21 kílómetra hraða á klukkustund.. og það vantaði bara að hann endaði setninguna með ..hlunkurinn þinn.
Ég trúði því ekki sem ég heyrði....helvítis kjaftæði.. ég var á miklu meiri hraða.. þetta flokkast undir andlegt ofbeldi... 21 km/klst. Kómón.....
Athugasemdir
Helvítis ruddaskapur er þetta. Þetta er mikið meira en andlegt ofbeldi - þetta er bara níðingsháttur!!!!
Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 11:39
Níðingurinn sem var með honum er frá Vogum í Vatnsleysu.. kenndir þú honum þessa vitleysu?
Sigurður Elvar Þórólfsson, 7.5.2008 kl. 11:59
Ég hef aldrei vitað til þess að maður úr þeirri sveit hafi verið tekin í lögregluna, hvað þá sótt um. Menn úr sömu sveit hafa oft verið teknir af lögreglunni, án þess að hafa sótt um það.
Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 7.5.2008 kl. 23:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.