Föstudagur, 12.12.2008
2,2 % .......
Sá í kvöld innslag úr Íslandi í dag frá því í fyrradag, þar sem að fréttamaður var frekar undrandi á því hve fáir mæta á mótmælafundi. Hann taldi að 2,2% þjóðarinna hefðu mætt þegar flestir voru, ca 7.000 manns. Efast ekki um þessar talningu... löggann slumpaði á þetta..
Ég fór að velta því fyrir mér hvort þetta væri ekki bara helvíti margt miðað við höfðatölu og allt það?
Væri það fréttaefni ef tæplega 30 milljónir kæmu saman í Kína til að mótmæla? Reyndar væri það ekki feitur séns! . ... kínverski alþýðuherinn myndi án efa sjá um að það myndi ekki gerast..
Hafa 6,4 milljónir manns komið saman í Bandaríkjunum til þess að mótmæla? Veit það ekki, kannski.... 1,1 milljón manns á Englandi?, eða 100.000 þúsund í Noregi? Eða tæplega 150 milljón manns á heimsvísu?
Hef ekki hugmynd!
Athugasemdir
ef 5000 mótmæla í bna (usa) kemur það í fréttunum á ruv
Blaðurskjóðan (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 01:16
Þetta rekur allt að sömu ýlduhlaupna ljótleikanum: að sál og samviska fjölmiðla hefur verið keypt af stjórnvöldum. Ég þarfnast ekki frekari sannana við.
Baldur Gautur Baldursson, 14.12.2008 kl. 19:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.