Fimmtudagur, 9.11.2006
Kauptækifæri - dulið eigið fé
Það er eitthvað sem býr að baki.
DeCode hefur ekki skilað krónu í kassann.
Gengi félagsins hefur verið álíka og hjá Stoke þegar það var í eigu Íslendinga.
Það er samt eitthvað Víkingalottódæmi í gangi þarna hjá Kára og félögum.... menn eru alltaf með - í von um að fá þann stóra... en er það ekki alltaf einhver frá Arndal í Noregi sem vinnur...
"Annars var þetta nú ekkert sérstakt" - HBS, Englandi 2005.
![]() |
Tap deCODE yfir 4 milljarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 8.11.2006
Með greind á við tilraunarottu
Ég held að það séu margir bílstjórar sem eru varla með greind á við tilraunarottur. Það eru fjórar myndavélar í "rörinu" undir Hvalfjörð og sá sem ekur á 146 km hraða í göngunum er að sjálfsögðu enginn mannvitsbrekka. Líklega ungur karlmaður með mp3 í botni. Ég held að það væri ráð að seinka bílprófsaldrinum...eða hvað??
Ég fer nokkuð oft í göngin og það eru ótrúlegustu hlutir sem eiga sér stað á þessum stutta kafla. Dráttarvélar á ferð á milli 8-9 að morgni með 300 metra bílalest á eftir sér. Steypubílar á 20 km hraða, í suðurátt, kranabílar á 10 km. hraða í suðurátt þar sem ekki er hægt að fara framúr með góðu móti. Á leið í norður keyra mjög margir á vinstri akrein á tvöfalda kaflanum og ætla að hleypa umferð framúr á hægri akrein. Snilld.
Atvinnubílstjórar með aðra hönd á stýri, 40 tonn í eftirdragi og síminn í þeirri vinstri. Algeng sjón. Það er því alltaf spenna í göngunum og heldur manni við efnið..
"Annars varð þetta nú ekkert sérstakt -" (HBS, England 2005)
![]() |
Ofsaakstur í Hvalfjarðargöngunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 8.11.2006
No name drengur og stúlka ársins
Ég hélt að það væri spennandi að vera á þingi - alltaf í sviðsljósinu. Svo virðist ekki vera... Jón Gunnarsson þingmaður Samfylkingarinnar hefur verið á kafi í vinnu undanfarin ár.
Líkt og hún þarna frá Blönduósi, sem varð undir í prófkjöri Samfylkingarinnar í N-V kjördæmi á eftir skólastjóranum og prestinum.
Ég fylgist mikið með fréttum en ég hef aldrei rekist á þessa einstaklinga í umræðunni eða í ljósvakamiðlum? Fyrr en á allra síðustu dögum þegar þau urðu undir í prófkjörum.
Sig. Elvar.
"Annars var þetta nú ekkert sérstakt" - (Halldór Bragi Sigurðsson, Englandi okt., 2005).
![]() |
Jón Gunnarsson hættir í stjórnmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 7.11.2006
Einn hring í kringum malarvöllinn - eða Tottenham
Enski boltinn var gleðiefni helgarinnar.
Þar sem mínir menn, Tottenham, áttu ekki í vandræðum með meistaralið Chelsea á White Hart Lane.
Reyndar gladdi það mig meira að Arsenal tapaði gegn West Ham. Pardew nánast búinn að fá Wenger í sveitaballaslag á kantinum.
Það væri gott sjónvarp. Tveir stjórar að slást. Annars er álagið á þessum köllum hrikalegt og má lítið útaf bregða til þess að æsa þá.
Matthías Hallgrímsson knattspyrnusnillingur frá Akranesi á sök á því að margir af '68 árangnum á Akranesi eru eldheitir stuðningsmenn Tottenham. Matthías var þjálfari árgangsins á sínum tíma og í upphafi æfinga sagði hann alltaf:
"Þeir sem halda með Tottenham fá sér bolta og mega byrja að sparka í markið. Hinir hlaupa 5 hringi í kringum völlinn."
Þessi hernaður Matta heppnaðist með ágætum.
- "Annars var þetta nú ekkert sérstakt."
(Halldór Bragi Sigurðsson, Englandi okt. 2005).
Bloggar | Breytt 29.3.2007 kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 7.11.2006
Chuck Taylor viðraður
Körfubolti - er frekar einföld íþrótt. Það sannaðist í gær er ég mætti í "hlunkabolta" hjá ÍA í gær eftir tveggja ára hlé. Helstu afrek gærkvöldsins var að ég fór í gegnum æfinguna án þess að meiða mig.
Hópurinn var fjölbreyttur - gamlar hetjur og nýjar.
Ég var að sjálfsögður í Chuck Taylor (sjá mynd), leit vel út - en gat ekki neitt. Völlurinn er miklu lengri en áður, körfurnar hærri og hringurinn minni.
Magnús Hafsteinsson nágranni minn og alþingismaður var ekki á svæðinu en það var úrvalslið lettneskra leikmanna með á æfingunni.
Vinna allir hjá Smellinn og einn þeirra hefur fengið lýsi og harðfisk í barnæsku. Nautsterkur, óslípaður 2 metra demantur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 23.10.2006
Drepleiðinleg dægurfluga Vodafone
Auglýsingar hafa mátt. Sjónvarpið vekur mesta athygli á mínu heimili. Auglýsingin frá Vodafone um dægurfluguna er alveg drepleiðinlegt og langdreginn. Hvernig er hægt að búa til svona vont efni. Þessi auglýsing hefur sömu áhrif á mig og sveitatónlist, GIS, eða hvað hann nú heitir. - Síminn heldur mér enn í heljartökum og ég færi mig ekki yfir á Vodafónið eftir síðustu herferð.
Annars var þetta nú ekkert sérstakt...(haft eftir Halldóri Braga Sigurðssyni, á Englandi fyrir ári síðan.)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 18.9.2006
Skin og skúrir í golfinu
Það var mikið að gera í golfinu um helgina. Media Masters í snarbrjáluðu veðri á föstudaginn., Konni franski reddaði deginum. Kiðjabergsvöllurinn er flottur en hrikalega erfiður í þessum ham. Vel að verki staðið hjá Haraldi Má Stefánssyni vallarstjóra - þrátt fyrir að hann sé Borgnesingur. Á laugardag fór fram síðasta mótið á Moggamótaröðinni. Í blíðu á Grafarholtsvelli. Snilldardagur og ég held að holukeppnin sé mitt fag - allavega í ár.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 5.8.2006
veðrið sí og æ.,
Sæl og blessuð.
Er alveg að vera klikkaður á tali um veðrið sí og æ.,
Boris og Igor (Lárus Örn og Þórólfur Ævar), hafa á undanförnum dögum aðstoðað mig við að setja saman sólpall í Jörundarholtinu og Igor (Ævar) hefur dálæti á NFS, fréttir allan daginn á 90,9. Hef ekki lagt mikið hlustir né horft á þessa nýju fréttastöð en eftir viku með "Igor" á pallinum er ekki laus við að maður vilji slökkva á þessu helv.. kjaftæði.
Gott og vel en ég er alveg að missa geðheilsuna þegar ég heyri í veðurtrúðnum á NFS sem ber sama nafn og ég, Sigurður Stormur eða eitthvað álíka. Blessunarlega er hægt að slökkva á útvarpinu en ég get ekki annað en brosað þegar ég sé besta veðurfræðíng landsin, Tedda Logn, af Skipaskaga, spá í veðrið af stóískri ró. - Hobbitinn á NFS ætti að horfa á RÚV öðru hvoru til þess eins að læra -
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)