Kanínukjöt og smáfuglar

Ekki gleyma smáfuglunum er eitthvað sem ég hef lært af karli föður mínum. Hann er langvinsælastur á neðri Skaganum hjá smáfuglunum.

Þeir þekkja sinn mann.

Við höfum reynt að gera álíka gagn hér á efri Skaganum.

Mokum út gömlu brauði, eplum og fuglakorni þegar það er til.

kanina1_210803

Hinsvegar sjást fuglarnir ekki og tvær akfeitar kanínur eru einu gestir veitingahússins. Þær koma úr næstu götu og eru i eigu Þingmannsins.

Hef svo sem ekkert á móti kanínunum. En þær eru að færa sig upp á skaftið.

Annars missti ég af fréttaljósmynd ársins þegar Þingmaðurinn var í garðinum hjá mér, í vinnugallanum (jakkafötum) með teppi að reyna fanga heimilisdýrin. 

Ég er alvarlega farinn að spá í hvernig kanínur eru á bragðið.

Gæti orðið spennandi viðfangsefni.


mbl.is 249 óku of hratt í Hvalfjarðargöngum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vefvarp mbl.is skorar grimmt

Jón Axel Ólafsson er með fínar pælingar á heimasíðu sinni þar sem að ber saman áhorf á því efni sem netmiðlar landsins bjóða upp á.

 

TWO%20COAXIAL%20CABLES%20B1%20%235

Það er greinilegt að vefvarp mbl.is er að skora grimmt og það er ekki aðeins Guðjón Valur Sigurðsson sem kann að skora. Ekkert stöngin út að þessu sinni.

Þetta er það sem koma skal og spennandi tímar framundan á mbl.is. Það væri gaman að fá að sjá þessar tölur sem að Jón vitnar í enda kemur lítið áhorf á visir.is mjög á óvart.  

 

 


mbl.is Hvað ef Harry Potter deyr?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjúkt tóneyra á RÚV

Útvarp Reykjavík, nú verða sagðar fréttir.

Ég vona að Ólafur Páll Gunnarsson hafi ekki lagt til tóneyrað sitt og lagt á ráðinn með nýja fréttastefið á RÚV. Óli Palli var flottur meðlimur í hljómsveitinni Moj frá Akranesi - og er fínn útvarpsmaður.

"Hljómar vel en lítur hræðilega út" -

Ég held að tóneyrað á RÚV þurfi á læknismeðferð að halda. Sýklalyfjakúr eða eitthvað sterkara.

Fréttastefið er ömurlegt. En stefið hefði líklega komist áfram úr þessum Evróvision þáttum  - sem voru enn verri.

Óli Palli, plís reddaðu þessu. earphone


mbl.is Bloom skammaður fyrir að tala í farsíma í flugvél
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prince ofan í tunnu?

Ég gerði heiðarlega tilraun til þess að horfa á Ofurskálarleikinn í nótt. Datt út í síðar hálfleik og kláraði ekki dæmið. Prince var flottur í hálfleik en hljóðið á SÝN var hræðilegt.

Gat skipt yfir á þýsku stöðina ARD og þar var Prince í fínum hljómgæðum. Skipti aftur yfir á SÝN og þá var prinsinn ofaní tunnu - bergmál og óskýrt.

Afhverju? - Ég veit það ekki. Digital Ísland er þannig í uppsveitum Akraness að útsendingar nást ekki í slæmu veðri - sérstaklega í rigningu.

Veðrið var fínt á Íslandi en kannski var það úrkoman í Miami í gær sem hafði áhrif, grenjandi rigning......prince


mbl.is Colts lögðu Bears í úrslitaleik bandarísku ruðningsdeildarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar stórt er spurt..

Þegar stórt er spurt, spyr Steingrímur Sævarr. Ef orðinu umdeilda er slegið upp í gagnasafni mbl.is og á google kemur margt í ljós. Í ræðum á Alþingi, í skýrslu umboðsmanns barna, í fræðandi umræðu hjá bloggurum.

Og einnig á öðrum fréttamiðlum. - Þegar stórt er spurt skaut því hárfínt framhjá markinu Cool 

Það eru skiptar skoðanir þegar stórt er spurt - og svörin eru mörg og mismunandi.  

Vísir, 01. feb. 2007 15:24


Fleiri svartir deyja úr krabba

Miklu fleiri svertingjar deyja ennþá úr krabbameini, en hvítir, í Bandaríkjunum, þótt dauðsföllum af völdum krabbameins hafi almennt fækkað. Bandaríska krabbameinsfélagið segir að árið 2003 hafi dánartíðni svartra karlmanna verið 35 prósent hærri en hvítra karlmanna, og svartra kvenna 18 prósent hærri en hjá hvítum konum.

 

 

 


mbl.is „Ég er með uppástungu fyrir þig!“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beint á ská á RÚV

Ég var ekki alveg að skilja útsendingar RÚV í kvöld frá handboltanum á HM. Fylgdist með á netinu hvernig staðan var í undanúrslitaleikjunum - RÚV hefði vel getað hoppað beint inn í framlengingu á leik Frakka og Þjóðverja - og farið síðan í leik Pólverja og Dana. Þetta var allt beint á "ská" og ekki að virka. Á slíkum kvöldum sér maður að RÚV verður að fá sér hliðarrás fyrir svona efni.. Danir eru búnir að raska spánni minni fyrir HM en þeir voru einfaldlega ekki með skytturnar í stuði að þessu sinni - Pólverjar vinna Þjóðverja í úrslitaleiknum - ekki spurning. 420124B
 


mbl.is HM: Pólverjar leika til úrslita gegn Þjóðverjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott skot hjá Alex - tók af skarið

CoolAlexander Petersson, vélmenni íslenska landsliðsins, verður eflaust með hugann við stangarskotið sitt gegn Dönum eitthvað fram eftir árinu. En að mínu mati ætti hann að vera stoltur af því að hafa tekið af skarið þegar mest á reyndi.MBL0123919

Íþróttamenn í fremstu röð hugsa ekki þegar þeir komast í slíka aðstöðu. Þeir framkvæma  -og hugsa síðan. 

Alexander gæti tekið 100 slík skot á morgun og skorað úr þeim öllum. 

 
Boltinn var 5 cm. frá því að fara rétta leið - helv. stöngin.

 
Snorri Steinn Guðjónsson var heitur í gærkvöld og eflaust hefur hann ekki munað eftir mörgu úr leiknum.

Hann var í þannig hugarástandi að aðrir leikmenn hljóta að hafa verið í "hægri endurspilun" allt í kringum hann. Allt gekk nánast upp í fullkomnum leik. Það var snilld að sjá til drengsins.

Vítið sem Snorri tók á móti Kasper Hvíta undir lok venjulegs leiktíma var svo kalt að það hefði dugað til þess að frysta skautasvellið í Egilshöll. Þvílík snilld.

Snorri getur borið höfuðið hátt  - líkt og allt íslenska liðið. Vörnin hefur oft verið betri en við vorum inn í leiknum.

Þetta var "stöngin út".

Ég ætla að gerast svo djarfur að spá fyrir um úrslit mótsins það sem eftir er.

Gull  - Þýskaland.

Silfur Danmörk

Brons Frakkland.

4. Pólland.

5. Ísland.

6. Króatía.

7. Spánn.

8. Rússland.  

 


mbl.is Alfreð: „Stoltur af íslenska liðinu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mogginn malaði Stöð 2 og Fréttablaðið

Samkvæmt mínum heimildum sigruðu félagar mínir á Morgunblaðinu í gríðarlega spennandi keilukeppni í Dortmund á dögunum. Mótið var haldið samhliða heimsmeistarakeppninni í handknattleik. Keppnisliðin  í keilunni voru þrjú.

Morgunblaðið , Fréttablaðið og Stöð 2.

Það voru 2 leikmenn í hverjum liði.

Skemmst frá því að segja að Morgunblaðið hafði betur - þrátt fyrir að landsliðsmaður í keilu væri á meðal liðsmanna Stöðvar 2. Wink

Sumir eru góðir í keilu - aðrir ekki.  mogginn


mbl.is HM: Miðar á uppsprengdu verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áströlsk handboltageimsjávarlíffræði

HM í handbolta er skemmtilegt fyrirbæri - þar fá þjóðir að leika sem annars eru ekki að láta mikið að sér kveða.

Árið 2003 var undirritaður í vinnunni á HM í Portúgal og þar sá ég atvik sem ég held að eigi aldrei aftur eftir að gerast á stórmóti.

Grænland og Ástralía áttust við í riðlakeppninni i Viseu.

 
Í síðasta leik mótsins að ég held og hvorugt liðið hafði unnið leik á HM. Grænland var yfir þegar skammt var eftir,australia en Ástralir tóku á því vörninni, tveir reknir útaf í 2 mínútur og útlitið dökkt hjá þeim "down under". Fjórir gegn sex.

 
Ástralir voru búnir að taka tvo helstu leikmenn Grænlands úr umferð megnið af síðari hálfleik.

 
Þeir héldu því bara áfram þrátt fyrir að vera tveimur færri.

Grænlendingar skoruðu ekki mark, 4 gegn 2, og Ástralir sigruðu.

Þetta kennir manni að íþróttir eru óútreiknanlegar.  


mbl.is HM: Alfreð ósáttur við Bogdan Wenta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Estrógenið ruglar Árna Þór VG í ríminu

Árni Þór stjórnmálamaður er ekki að fara með rétt mál er hann rýnir í fréttir mbl.is af framboði Höllu Gunnarsdóttur til formanns KSÍ. Í fréttunum sem ég átti þátt í að koma á mbl.is og í Morgunblaðið er aðeins sagt frá því að Halla heitir Halla og hún ætli að taka slaginn - Ég held að Árni sé að rugla mbl.is saman við frétt á RÚV

 estrogen

 


Klístur eða geimsjávarlíffræði

Synti í djúpu lauginni í dag - fyrsta myndskeiðið á mbl.is er staðreynd.

Drukknaði ekki en vissulega er þetta allt annað dæmi en að skrifa fréttir eða taka viðtöl á diktafón. 

Gillett hefði kannski átt að hnippa í öxlina á mér. En ég veit ekki hvort það hefði skipt máli. 

Frumraun sem á eflaust eftir að draga dilk á eftir sér. shapeit

 

Annars var þetta ekkert sérstakt (HBS England haustið 2005) 


mbl.is Alfreð hefur áhyggjur af meiðslum leikmanna fyrir HM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sme fær spark í afturendann

Sme sem kann ekki á enter takkann - greinaskilamaðurinn fær spark í afturendann frá Atla Fannari Bjarkasyni á bloggsíðu Atla sem starfar á Blaðinu. Atli með einfalda lýsingu á Sme sem ég get ekki dæmt um sjálfur. Þekki þá ekki neitt. pdMTBNB0004

 Það er greinilega  mun meira stuð í prentsmiðjuhúsi Morgunblaðsins en hjá okkur sem njótum útsýnisins yfir Rauðavatn á ritstjórn Morgunblaðsins.

 

Annars var þetta ekkert sérstakt (Halldór Bragi Sigurðsson, Englandi haustið 2005)  


mbl.is Bannað að hrækja í Kerala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kötturinn í sekknum í "beinni " útsendingu

Kollegar mínir á íþróttadeild 365, Sýn, hafa ekki sparað stóru orðin hvað varðar árangur Birgis Leifs Hafþórssonar atvinnukylfings á Evrópumótaröðinni í golfi í S-Afríku. 416334B

Hans Steinar Bjarnason sagði í kvöldfréttum Stöðvar  2 í gær að árangur Birgis væri sá besti hjá íslenskum kylfingi frá upphafi?????????

Birgir lék fyrst á Evrópumótaröðinni árið 1998 og hefur tekið þátt á 10 mótum á Evrópumótaröðinni frá þeim tíma. Besti árangur hans er 32. sætið árið 2001 á móti sem fram fór á Madeira. 

Birgir er að leika vel gegn mörgum af bestu kylfingum heims og Sýn sýnir "beint" frá mótinu. Ég geri hinsvegar alvarlegar athugasemdir við hvernig uppsetningin á auglýsingum frá mótinu hafa verið. Þar er leitt að því líkum að Birgir verði mikið í sviðsljósinu í beinu útsendingunum. Í dag hefst útsendingin um kl. 10:30 og þá verður Birgir Leifur búinn með þriðja hringinn á mótinu.

Á morgun verður líklega það sama uppi á teningnum. Á fyrsta keppnisdegi sást nafnið hans ekki einu sinni á skortöflu mótsins sem birt var á skjánum.

Í gær sást Birgir í ca 2. sekúndur á einni flöt vallarins. Snéri baki í myndavélina. Birgir hefur því ekki verið í "beinni" á Sýn. Langt frá því. Er verið að selja köttinn í sekknum - og selja golfáhugafólki áskrift að Sýn þar sem að Birgir Leifur á að vera í aðalhlutverki. Þetta eru ekki góðir viðskiptahættir. 


mbl.is Birgir fékk fugl á 11. braut og er 2 undir samtals
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geimsjávar-hvala-líffræði

Sme heldur úti ágætu bloggi - en hann er helst til latur að ýta á enter takkann, hann kemur ekkert of oft upp til þess að anda hann Sme þegar hann er í ham.

hvalurhvalurhvalurhvalurhvalurhvalurhvalurhvalurhvalurhvalurhvalurhvalurhvalur 

eða hvalur sem kemur upp og andar rh.mouth_copy

 

Annars var þetta ekkert sérstakt (HBS Englandi haustið 2005)  


Plottið gengur upp

Það hefur farið frekar hljótt um þetta plott sem stuðningsmenn Tottenham Hotspur á Íslandi hafa sett á laggirnar. Fyrstu hrinu er lokið. Sendum útsendara okkar til London til þess að kaupa helstu andstæðinga liðsins - og afraksturinn er að skila sér.

Þrjú lið frá London í fallsætum ensku úrvalsdeildarinnar og við þurftum bara að kaupa eitt þeirraW00t

Söfnun er hafin fyrir kaupum á Arsenal en líklega þurfum við meiri aðstoð til þess að knésetja Chelsea.

 


mbl.is Pardew rekinn frá West Ham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geimsjávarlíffræði part III

Ég fer nánast daglega í vinnu frá Akranesi og upp á Hellisheiði þar sem að vinnustaður minn er í dag. Á þessari leið mæti ég á hverjum degi fávísum ökumönnum sem eru meðPicture 051 hugann við eitthvað allt annað en aksturinn.

 
Ég efast stundum um að þeir hafi getu til þess að hugsa yfirleitt. Það er eitt sem ég undra mig á - að á þeim 6 árum sem ég hef ekið í vinnu í gegnum "rörið" er lögreglan sjaldnast á ferðinni við eftirlit.

 
Ég er á ferðinni á öllum tímum sólarhringsins.  Snemma, síðdegis og stundum að næturlagi. Það eru háværar raddir um að tvöfalda allar slagæðar vegakerfisins sem liggja að Reykjavík. Gott mál. Löggæsluna þarf líka að efla.

 
Reyndar hef ég stutt vel við bakið á Ríkissjóði í það eina skipti sem lögreglan hafði afskipti af mér á Kjalarnesi. Ég viðurkenni glæpinn og hef aldrei ekið of hratt í gegnum svæði sem var með 70 km. hámarkshraða. Ég er viss um að vindurinn hafði sitt að segja í því tilviki. Var með hann í bakið. 

Annars var þetta nú ekkert sérstakt (HBS England 2005).

 


mbl.is Þriggja bíla árekstur í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geimsjávarlíffræði II. hluti

Júlíus Rafnsson stóð sig vel í Kastljósinu í kvöld. Fyrrum formaður Golfsambands Íslands og framkvæmdastjóri Hei%C3%B0r%C3%BAn%20020Grundar s.l. 18 ár, var eins og Sigfús Sigurðsson handknattleiksmaður í varnarleiknum gegn Reyni "KrókódílaDundee" Traustasyni ritstjóra Ísafoldar

 Hvað er annars málið með hattinn hans Reynis?, er þetta að svínvirka. Greg Norman er jú flottur á golfvellinum með svona hatt. - Kannski eitthvað sem maður ætti að skoða betur.  

 Helgi Seljan sem stjórnaði rökræðum þeirra í Kastljósinu virtist vera frekar hallur undir málstað Reynis.. eflaust ekki ætlunin en ég fékk það á tilfinninguna þegar ég horfði á þáttinn. Júlli var bara flottur og rökfastur. Fugl dagsins. 

 

"Annars var þetta ekkert sérstakt" (HBS England haustið 2005) 


mbl.is Reiðhjólamaður slasaðist er hann varð fyrir bíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geimsjávarlíffræði

Hjálmar Árnason þingmaður Framsóknarflokksins var ekki að sannfæra mig í Kastljósinu í kvöld - þar sem hann varði nýja stefnu flokksins hvað varðar íraksmálið. Hjartanlega sammála spyrlinum í Kastljósinu. Menn þurfa að svara fyrir sig .Hjálmar Árnason.

mbl.is Íranar heita að aðstoða Íraka eftir fremsta megni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ghost Digital

Enski boltinn er líklega heitasta umræðuefnið  -

SÝN tekur við af Skjánum. Ég veit ekki hvernig SÝN ætlar að taka á málunum næsta haust -eflaust gera þeir eins vel og þeir geta.  

Þeir eru vissulega með marga möguleika á því að koma efninu frá sér á þremur rásum, SÝN, SÝN Extra 1 og 2. En þeir þurfa virkilega að spýta í lófana til þess að fá þá sem eru áskrifendur í dag til þess að "svissa" yfir á ný.  

Áhugi minn á enska boltanum vaknaði fyrir alvöru þegar Skjár Sport fór að sinna þessu fyrir alvöru í fyrravetur - einfaldlega vegna þess að ég fékk tækifæri að sjá mitt lið um hverja helgi, Tottenham. Stórliðið var með 2-3 leiki á vetri í beinni útsendingu áður en að Skár Sport tók við hnossinu. 

Ég er handviss um að það eru margir á sömu skoðun og ég. Ef mitt lið verður ekki í beinni um hverja helgi  - þá kaupi ég ekki áskrift. Kemur ekki til greina að borga áskrift að leikjum Arsenal.

Annað sem veldur mér áhyggjum. Örbylgjusendingar Digital Íslands nást með eindæmum illa hjá mér.

Ég sé Sýn Extra 1 og 2 af og til, en þessar stöðvar nást að mér skilst aðeins í nágrenni við höfuðborgarsvæðið. Sem er bara grín. 

SÝN er stundum inni  - en eiginlega alltaf í kössum sem frjósa á skjánum. Loftnetið er í lagi að mati fagmanns. 

Kannski tekur maður bara allt draslið í gegnum koparvírinn frá Símanum  -en verður Sýn með 5 stöðvar í gangi í gegnum það apparat?

Kannski endar maður bara í sjóræningjaútgáfu af SKY  -

En þeir sýna ekki neitt á laugardögum... sem er hrikalega lélegt.

Síðasti kosturinn  er að flytjast búferlum til London.  

  Berbatov -


mbl.is Verðið á sýningarrétti á enska boltanum of hátt að mati sjónvarpsstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóra SMS málið

Umræðan um meint verðsamráð símafyrirtækjanna á Íslandi vekur athygli. 

Eftir að stóra SMS málið kom upp á dögunum hef ég ákveðnar efasemdir um útreikninga Símans og Vodafone.

siminn-logoogvodafone

 
Stóra SMS málið var á allra vörum á heimili mínu þegar farið var yfir símreikninga ársins á netinu. (Greiðsluþjónustan sér til þess að doði og skortur á yfirsýn tekur völdin.)

Stóra SMS málið er einfalt. Birkir Framsóknarmaður kom ekkert þar við sögu.Sick

Við sem erum í íslenskri áskrift greiðum 49 kr. fyrir eitt SMS í Danaveldi.

Áttaði mig á því eftir að hafa greitt fyrir rúmlega 200 SMS í Danaveldi frá því í sumar.

Það kostar 10 kr á Íslandi að senda SMS  - afhverju er 80% munur á SMS kostnaði í Danaveldi og á Íslandi?

Hef ekki hugmynd eins og Ole Haahr Hansen myndi orða það á Lundgaard.

Málið er grafalvarlegt.... alvarlegra en rörin sem sprungu í gömlu herstöðinni. spurning um að fá Vidda Löggu til þess að rannsaka málið.


mbl.is Mikil verðhækkun á áburði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband