Færsluflokkur: Bloggar
Fimmtudagur, 3.5.2007
Skoska landsliðið í handbolta
Það er mikil ábyrgð sem fylgir því að vera markvörður.
Mistök hjá þeim eru sýnilegri en hjá öðrum leikmönnum. Þessi gæti kannski komist i skoska landsliðið í handbolta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 2.5.2007
Ætla sko að hjóla í vinnuna
Skráði mig í ofurlið Morgunblaðsins sem ætlar sko að hjóla í vinnuna það sem eftir ársins.
Fann ekki gjaldskrá fyrir reiðhjól í nýrri gjaldskrá Spalar.
Ef Botnskálinn væri enn við lýði þá mætti skoða það að fara fyrir Hvalfjörð nokkrum sinnum í viku, Akranes-Rauðavatn-Akranes.
Verð á bláu hjóli sem er merkt Sæmundur.
![]() |
Ný gjaldskrá fyrir Hvalfjarðargöng |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 2.5.2007
Feluleikur á heimavelli
Hef ekki vakað svona lengi yfir NBA-boltanum í mörg ár. Leikurinn í nótt var stórskemmtilegur, Dallas með +20 stig í fyrri háfleik, en skotsýning Warriors kom þeim inn í leikinn aftur. Ég hélt að Nowitzki ætlaði að halda áfram að vera í feluleik í fjórða leikhluta en hann reyndist vera með þýskt stál þegar á reyndi. Er sannfærður um að Warriors taka þetta á heimavelli aðfaranótt föstudags.
Talandi um feluleik. Ég á frænku sem er að verða fjögurra ára. Hún elskar feluleik og fær stundum nei þegar hún spyr hvort einhver vilji koma í feluleik.
Hún fékk hinsvegar alla athyglina um liðna helgi þegar hún fór í feluleik við afa og ömmu. Þau voru svo dugleg að leita og fengu fullt af öðru fullorðnu fólki til þess að hjálpa sér að leita. Frábær skemmtun fyrir þá stuttu.
Verst að hún frænka var stödd í Rúmfatalagernum þegar hún fór í feluleikinn. Hún fannst, um síðir og það voru sumir orðnir frekar órólegir þegar leikurinn stóð sem hæst. Ekki hún frænka mín. Hún kann sko að fela sig.
Hó......
![]() |
NBA: Dallas og Toronto eygja enn von |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 1.5.2007
Veðrið á kjördag ræður úrslitum
Heyrði áhugaverðá kenningu á föstudagskvöldið.
Frekar seint um kvöldið.
Þar var fullyrt að örlög næstu ríkistjórnar gætu ráðist á veðrinu á kjördag.
1.) Ef veðrið verður vont, rok og rigning, eru meiri líkur á því að kjósendur vilji breytingar.
2) Ef veðrið verður gott, sól og blíða, eru minni líkur á því að kjósendur vilji breytingar.
Ég væri til í að fá gott veður, bara til þess að komast í golf fyrir hádegi á kjördag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 1.5.2007
Bjarni Ármannsson ráðherra?
Bjarni Ármannsson verður ráðherra í næstu ríkisstjórn ef núverandi meirihluti fellur....
Heyrði þetta plott í dag á 9. braut á Garðavelli... fékk par enda hugmyndin góð.
Ömurlegt dræv, þokkalegt annað högg. Gott vipp og einpútt.
Bjarni væri fínn ráðherra.
-e.s. þeir sem eru að taka þátt í skoðanakönnun síðuhaldara er bent á að eftir að hafa tekið upp nýjan lífsstíl verð ég á forsíðu Vikunnar um miðjan ágúst. "Heineken-kúrinn" svínvirkar. Seth missti vitið og 64 kg.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 1.5.2007
Warriors og Anja
Þar sem að ég hef verið dyggur stuðningsmaður Golden State Warriors í um tvo áratugi er okkar tími kominn. Baron Davis með easy þriggja stiga körfu í myndbrotinu hér fyrir neðan.
Man einhver eftir því þegar Denver Nuggets vann Seattle Supersonics í fyrstu umferð úrslitakeppninnar?
Fékk ábendingu um að Anja Andersen væri rugl-uð. Get alveg tekið undir það
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 1.5.2007
Anja Andersen er rugl
Ég sá þessa handboltakonu leika listir sínar í Noregi á árunum 1998-2000.
Þetta myndband lýsir henni vel.
Ég skora á Guðjón Val Sigurðsson að taka upp eitthvað álíka dæmi. Áskorun. Stökkva inn í helv. markið með boltann eftir hraðaupphlaup. Og taka Íslandsmeti í langstökki í leiðinni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 30.4.2007
Skrifaði bara bull um Golden State Warriors
Dreg í land allt það vonda sem ég sagði um Golden State Warriors þann 1. mars s.l.
Á þeim tíma var ég ekki heill heilsu og skrifaði bara eitthvað bull.
Golden State er að sjálfsögðu mitt lið, Dallas?, who cares.
Don Nelson er snillingur.
Kv. seth@ragnarreykás.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 30.4.2007
Þrenna í dag
Starf íþróttafréttamanna er stundum fullt starf, og stundum fullt að gera í vinnunni.
Og ég veit það eftir öruggum heimildum að stundum hafi íþróttamenn verið á fullu í vinnunni - án þess að vera fullir.
Ég hef einnig öruggar heimildir fyrir því að íþróttafréttamenn hafi aldrei keypt lífrænt ræktað eðalstöff frá Kristjaníu.
En þegar maður les íþróttasíður reglulega, hlustar á útvarpið og sjónvarpið þá efast maður um að það sé rétt.
Í gær, sunnudag, var frábært í dag fyrirsagna þema á bls. 28 í Fréttablaðinu.
1.) HK mætir fram í dag
2.) Grétar Rafn getur orðið meistari í dag.
3.) Sigfús verður í eldlínunni á Spáni í dag.
Þetta kallar maður þrennu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 28.4.2007
Vilji er allt sem þarf
Ég verð að deila þessu með ykkur.
Snillingur, 4 ára gamall, fékk áhuga á golfi á meðan hann var að jafna sig eftir aðgerð á auga vegna krabbameins. Vilji er allt sem þarf.
Og ég kann að linka myndbönd frá YouTube.
Hvar endar þetta?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)