Færsluflokkur: Bloggar
Föstudagur, 27.4.2007
Þá er það ákveðið
Þá er það ákveðið.
Bjór verður seldur á stærri íþróttaviðburðum í framtíðinni á Íslandi.
Skoðakönnun seth.blog.is gefur örugga vísbendingu að 70,3 % þjóðarinnar er sammála þvi að bjór verði seldur á stærri íþróttaviðburðum á Íslandi.
Hitt pakkið er ósammála.
Alls voru 145 atkvæði sem töldust gild í þessari könnun en vegna bilunar í netþjón á blog.is þann 1. apríl s.l. gat síðuhaldari kosið 144 sinnum sama daginn. Pabbi á hitt atkvæðið. Hann er á móti bjórsölu - er frekar til í besta bjór í heimi, sem er ókeypis bjór.
Ný skoðanakönnun er á síðunni. Og þar er ekkert dregið undan.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 27.4.2007
Yfirsjón

![]() |
Baráttusamtökin aðeins fram í einu kjördæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 27.4.2007
Er þetta fullt starf?
Fór með snillinginn minn í 5 ára skoðun á miðvikudag, er ekki að tala um bílinn, heldur yngsta soninn.
Læknir og hjúkrunarfræðingur, hæðin mæld og þyngdin, eyrun skoðuð og svo auðvitað sprautað í handlegg. Engin tár - en bara pínu vont.
Hjúkrunarfræðingurinn spurði við hvað ég væri að vinna - hvort ég væri enn að kenna íþróttir. Ég sagði henni að ég væri blaðamaður á Morgunblaðinu og búinn að vinna við það í sjö ár.
"Nú er það fullt starf?," spurði hún og brosti.
Hvað getur maður sagt?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 27.4.2007
Snilld hjá XBjé
Ég verð að hrósa Framsóknarflokknum fyrir ótrúlega hagsýni. Eins og allir vita er eitthvað þak á útgjöldum stjórnmálaflokka vegna auglýsinga í fjölmiðlum vegna veislunnar fram fer 12. maí.
Þvílík snilld hjá Framsóknarflokknum að koma sínu fólki í flesta fjölmiðla landsins með lítilli fyrirhöfn og án þess að greiða fyrir auglýsinguna.
Fáum tekst þetta eins vel upp og Framsókn.
Hver segir að flokkurinn eigi undir högg að sækja?
Þetta er flokkur sem kanna að nýta tækifærin þegar þau gefast.
Gargandi snilld.
Bíð spenntur eftir næsta leik.
Þessi færsla var að sjálfsögðu ekki í boði XBjé, né XDjé, eða XEss.
Bifreiðin á myndinni ber nafnið XB samkvæmt Google.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 26.4.2007
Ég á von á olíukvóta
Í fréttum undanfarna daga hefur olíuleit við Ísland verið nefnd sem vænlegur kostur. Í ljósi þess að ég hef gríðarlega reynslu af olíuleit þá tel ég að stjórnmálaflokkar ættu að gefa það út að þeir sem hafi víðtæka reynslu af olíuleit fá einnig olíukvóta í réttu samhengi við "olíuleitarreynslu" fyrri ára.
Þetta var nokkuð löng setning.
Olíuleitin hjá mér stóð yfir part úr sumri árið 2000. Kannski ekki mjög langur tími en ég var virkilega að leita að olíu sem farþegi í Norrænu rétt utan við Seyðisfjörð.
Sá meira að segja nokkra olíuborpalla á leiðinni frá Noregi, einn við Hjaltlandseyjar og fleiri við strönd Noregs.
Það er krafa mín að ég fái stóran hluta af olíukvóta Íslands í nánustu framtíð. Kosningamál nr. 2 á eftir því að hætt verði að keppa í kvennaflokki í skák.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 25.4.2007
Sú gamla svarar fyrir sig
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 25.4.2007
Seinþroska Steingeit
Stjórmálin geta verið skemmtiefni. Horfði á endursýningu á RÚV eftir miðnætti í gær þar sem margt áhugavert var sagt í hita leiksins. Guðlaugur Þór frysti Ögmund með kaldri kveðju. Og var þetta í fyrsta sinn sem að hitastigið í þessu karpi fer yfir 0 gráður.
Margrét Sverrisdóttir og Magnús Þór Hafsteinsson hlið við hlið en höguðu sér eins og þau væru í fermingarveislu. Hefði viljað sjá nett olnbogaskot frá Margréti í Magnús. Það hefði gefið þessu enn meiri sjarma. Magnús hefði alveg þolað það, enda sterkur strákur. Og sjónvarpið hefði verið betra. Björgvin úr Samfylkingunni á sjaldan slæman dag í því að vera leiðinlegur. Alltaf jafnleiðinlegur. Er það kannski kostur í stjórnmálum?
Það var mikið rætt um skólamálin í gær.
Allir hrikalega sammála - frelsi og engin samræmd próf.
Gott mál.
Árgangur '68 á Akranesi var notaður sem tilraunaverkefni á sínum tíma og sá árgangur tók ekki samræmd próf í 9. bekk (10. bekkur í dag).
Það skilaði fínum árangri og þeir sem náðu árangri á jólaprófunum fengu að demba sér í Fjölbrautaskólann strax í janúar.
Sumir höfðu þroska til þess að skilja þetta en Steingeitin sem er fædd næst síðasta dag ársins 1968 var ekki að fatta þetta á þeim tíma. Bjarni Ármannsson gerði það hinsvegar.
Helv. mistök að vera seinþroska Steingeit.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24.4.2007
Flöskuskeyti frá Bahamas
Hlustaði sem oftar á Rás 2 á leið í vinnu, Ólafur Páll Gunnarsson með fína spretti, en hann hefur eflaust ekki ráðið því að Pósturinn er búinn að kaupa innslag í þáttinn.
Þóra úr Stundinni Okkar fær nú að ropa einhverja pistla frá Bahamas. Allt í boði Póstsins....
Horfði oft á Stundina með börnunum mínum. Þar var Birta (Þóra) að tala við börn og gerði það vel.
Þóra hljómaði ekki vel í útvarpinu í dag, og um tíma fannst mér ég vera að hlusta á gamla upptöku úr Stundinni Okkar.
Vonandi sendir Þóra bara flöskuskeyti í framtíðinni frá Bahamas.
Sem skilar sér seint og illa. - þetta var allavega vont útvarp.
Auglýsingaborðinn hér til hliðar er að sjálfsögðu óviðeigandi tenging við þessa frétt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 24.4.2007
Nadal ósigrandi á möl
Það er alltaf gaman þegar eitthvað bull kemur fram í hita leiksins í íþróttafréttum. Þar sem að gríðarleg íþróttadagskrá var í gær á RÚV á mánudegi var ekki von á öðru en að eitthvað færi úrskeiðis.
Federer tapaði í fimmta sinn í röð gegn Nadal.
Nadal hefur verið ósigrandi á möl og hefur unnið 66 leiki á því undirlagi," sagði Lovísa ísköld í 22 TVfréttum RÚV.
Annars hefur Hans Steinar komið helv. sterkur inn á þessu sviði.
"Zach Johnson kom fyrstur í mark á Mastersmótinu í golfi."
Það mun fátt toppa þetta. Johnson lafmóður eins og Labradorhundur á 18. flöt á Augusta?
"Ég skil ekki afhverju Pat Riley lætur Shaq taka öll þessi víti." - hmhmhmhm....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 24.4.2007
Smá skonsa
Ég hef ekki séð þetta myndbrot úr Íslandi í dag, en eftir lýsingunni að dæma þá er þetta ágæt lýsing á heimavist frá árinu 1970. Kynntist því sjálfur sem nemandi á ÍKÍ Laugarvatni. Smá skonsur fyrir tvo nemendur, en vissulega var boðið upp á sturtu, og salerni í hverju herbergi.
Að sjálfsögðu er ekki boðlegt að vera með fjögur salerni og fjórar sturtur fyrir 40+ manns.
Það er víða þar sem að framboð á húsnæði er lítið sem ekkert. Sem námsmaður í Osló gerði maður sér að góðu að vera í 38 m2, reyndar vorum við fjögur í þeirri íbúð. Stækkuðum við okkur eftir eitt ár og fórum í 42 m2. Það eru ekki nema 10,5 m2 á mann. Lifðum það af og rúmlega það. Ég held að flestir íslenskir verktakar sem eru með menn í vinnu tímabundið geri sitt besta til þess að útvega þeim sómasamlegar vistaverur.
![]() |
Alvarlegar athugasemdir við fréttaflutning Íslands í dag" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)