Færsluflokkur: Íþróttir
Miðvikudagur, 29.10.2008
Heyrði einn góðan
Heyrði einn góðan í dag:.............. 18%, 18%, 18%, 18%, 18%, 18%, 18%, 18%, 18%, 18%, 18%, 18%, 18%, 18%, 18%, 18%, 18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%, 18%,18%........................
Og ég grét úr hlátri...
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 24.10.2008
Auðmaður
Fór í dag og ræddi við þjónustufulltrúann í Glitni sem lánaði mér fyrir húsinu fyrir fjórum árum. (By the way.. verðbólguspáin sem ég fékk í hendurnar á þeim tíma hefur ekki staðist frekar en væntingarnar sem ég geri til Tottenham.)
Með ágætri samvinnu tókum við áskorun Geirs Haarde.
Geir skoraði á íslenska auðmenn að flytja heim til Íslands þann auð sem þeir eiga erlendis.
Ég játa á mig glæpinn.Og þjónustufulltrúinn ætlar að fara í málið. Leggjast á árarnar skilurðu.. stormur og fárviðri og allt það....
Ég á kornunga systur í Danmörku, tvo frábæra frændur og ekki má gleyma kallinum hennar systu.Þótt hann sé Dani sem lagði grunninn að efnahag Breta á árum áður.
Ég sagði einnig frá hundinum Siggi, sem er víst ekki veðsettur og ekki má gleyma Esjberg mikrobryggerie.
Ef það er ekki fullt í Norrænu í næstu viku þá er aldrei að vita......
Svo er alltaf hægt að rölta út í Akurey með fána og lýsa yfir sjálfstæði...
Íþróttir | Breytt 25.10.2008 kl. 00:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 22.10.2008
Túbusjónvarp
Það var hringt í mig frá Innlit/útlit í dag.
Það er víst helv. kúl í dag að eiga 10 ára gamalt Samsung 28 tommu túbusjónvarp frá Elko í Osló.
Þáttaröð um fólk sem gleymdi að kaupa hitt og þetta, og komst alveg upp með það.
Svo heyrði ég það að allar heykvíslar væru uppseldar í Húsasmiðjunni og Byko...... frönsk áhrif..
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 21:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 18.10.2008
Ég á 7.000 peseta
Icebank hefur tekið upp sitt fyrra nafn og heitir nú Sparisjóðsbanki Íslands.
Ég vissi svo sem ekki mikið um Icebank.. hann er allavega ekki með útibú á Akranesi.
En ég skil hvað menn eru að gera. Vörumerkið Ice er brennimerkt, eins og sviðahaus sem brennur undir kröftugum gasloga..
Evrópubúar vilja varla frá ís í drykkinn sinn í Evrópu eftir Icesave ævintýrið hjá Landsbankanum.
Ice er ekkert kúl lengur.
Það þarf að plögga big time í Evrópu og víðar á næstu misserum til þess að laga þjóðarstoltið...
e.s. ég á 7.000 peseta ef einhver er á leið í Leifsstöð og á bara íslenskar krónur...
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 00:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 17.10.2008
Gráð og 8% hagvöxtur um helgina
Ég var að horfa á veðurfréttirnar á RÚV.
Velti því fyrir mér hvort Teddi Hervars og félagar hans á VSÍ (Veðurstofu Íslands) hefðu ekki getað spáð fyrir um efnhagsmálin, on the side. Og komist að svipaðri niðurstöðu og allar greiningadeildirnar sem voru til hér fyrir nokkrum vikum.... þetta eru svipuð vísindi.. kannski, ef og hefði...
Greiningardeild VSÍ spáir 8% hagvexti um helgina en slyddu og skít á mánudaginn...
Seljið allt verðbréfasafnð og skellið því á verðtryggðar sparibækur, pronto..
veðrið kl. 18.. sv gola, 3 msek, gráð...nánar í 10 fréttum..
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 14.10.2008
Give me the money
Ég gerði samning við Landsbankann um að greiða í séreignarlífeyrissjóð á sínum tíma.
Staðan í dag er að það fyrirtæki er ekki lengur til og enginn veit hvar peningarnir eru. Ég sárvorkenndi þjónustufulltrúanum í Landsbankanum sem ég ræddi við í morgun. Hún var döpur en hún reyndi að aðstoða mig eftir bestu getu. Það var reyndar Síríus súkkulaði í boði fyrir viðskiptavinina. Grand.
Ég velti því fyrir mér hvort að sá samningur sem ég gerði á sínum tíma sé enn í gildi. Sá aðili sem ég samdi við fór á hausinn.
Get ég ekki krafist þess að fá brunarústirnar sem verða eftir á reikningnum.
Þegar búið verður að greiða úr flækjunni.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 19:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 13.10.2008
Ótrúleg gjöf að vera Íslendingur
Ég sé fyrir mér að ríkisstjórn Íslands boði til fréttamannafundar á allra næstu dögum.
Í Iðnó.. fullt af erlendum fréttamönnum...
Inn kemur blaðafulltrúi og kynnir Ólaf Stefánsson fyrirliða silfurliðsins á ÓL..............
Það er ótrúleg gjöf að vera Íslendingur. Það eru bara 300 þúsund manns, sem hafa fengið þá gjöf. Höldum áfram að breyta heiminum og virkja þá sköpunargáfu, sem býr í okkur og verum bara best."
Og allt mun lagast.....
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 9.10.2008
Fullt af € og $ þessum netbanka
Í nýja heimabankanum mínum get ég verslað með Evrur og Dollara eins og vindurinn...
Username: Iceland
Password: SOS
Pincode: Darling
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 8.10.2008
Andskotans -
Fyrir um sjö árum hóf að greiða viðbótarlífeyrissparnað í sjóð hjá Landsbankanum sem kallast Íslenski lífeyrissjóðurinn..Gimmikkið var að fjölskyldan myndi fá sjö ára greiðslu meðallauna minna úr sjóðnum ef kransæðakíttið sem ég hef étið um ævina færi að virka á röngum tíma.. Líftrygging frá Swiss Life og allt það.. alveg skothelt dæmi.. eða þannig
Á heimasíðu Landsbankans er þessa klausu að finna sem er hér fyrir neðan. Ef ég skil lögfræðitextann sem þar er skrifaður þá hef ég tapað þessum sparnaði sem var töluverður.... og þetta leit svo helvíti vel út þann 8.september þegar ég fékk yfirlitið...................kannski að Pútin reddi þessu..
Hvað lífeyrissparnað hjá lífeyrissjóðum varðar, þ.m.t. Íslenska lífeyrissjóðsins sem er með vörslusamning við Landsbanka Íslands, nýtur lífeyrissparnaður hjá lífeyrissjóðum ekki ábyrgðar Tryggingasjóðs innstæðueigenda enda ekki um innlán til banka að ræða eða hefðbundna almenna bankastarfsemi. Í þessu sambandi má benda á að Íslenski lífeyrissjóðurinn starfar skv. lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Um fjárfestingar sjóðsins gilda reglur laganna um fjárfestingar sem byggja m.a. á kröfum um tiltekna eignadreifingu þannig að sjóðurinn á kröfur á fjölmörg fyrirtæki, banka, stofnanir sem og Íslenska ríkið. Greiðsluhæfi þessara aðila ræður því mestu um verðmæti lífeyrissparnaðarins sem og ávöxtun þeirra krafna, hvort sem er um hlutabréf, skuldabréf eða innlán hjá innlánsstofnunum.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 7.10.2008
hey oh, now listen what I say
Það var ekki kreppublús hjá 6 ára syni mínum í morgun þegar hann fór fram úr í morgun kl. 7.
Á bjagaðri en mjög flottri ensku söng hann bút úr lagi með Red Hot Chili Peppers:
Hey oh... listen what I say oh
I got your hey oh, now listen what I say oh...
Það þarf ekkert meira til að koma sér í gang þegar maður er 6 ára...
Djöfull er ég glaður að hafa ekki keypt Honduna fyrir 7 vikum á myntkörfuláninu sem var í boði...
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)