Fimmtudagur, 5.4.2007
Bjór og rauðvín í Einarsbúð
Í fyrsta lagi,bla bla bla bla.... Í öðru lagi bla, bla bla, og í þriðja lagi, bla, bla, bla, bla, Jón Baldvin Hannibalssson er sá fyrsti sem vakti áhuga minn á stjórnmálum.
Hann var reffilegur kall sem talaði af sannfæringu og krafti.
Kaus hann einu sinni en það var kaupstaðarlykt af þeim kjósanda þegar sú ákvörðun var tekin - keypt atkvæði hjá 18 ára nýliða.
Það vantar svona kalla í stjórnmálin í dag.
Steingrímur Sigfússon er stundum með svipaða takta en hann kemur í veg fyrir að ég geti keypt mér bjórkippu eða rauðvínsflösku í Einarsbúð.
Forsjárhyggja og tóm leiðindi. Óumhverfisvænt - gæti sparað mér ferð í Ríkið eftir búðarrápið. Er samt enn í vafa um hvað eigi að kjósa í vor.
Ég fylgdist með stjórnmálaumræðu í Noregi á árunum 1998-2000. Veit ekki afhverju, var ekki með kosningarétt, en þar var kona sem heitir Kristin Halvorsen í sjónvarpsþætti, hún er í dag fjármálaráðherra Noregs og er hún í SV, Sosialistisk Venstreparti.
Það sem vakti athygli mína við Halvorsen var að hún talaði aldrei um það sem "hafði gerst" í stjórnartíð meirihlutans -(hún var í minnihluta).
Hún talaði bara um það sem hennar flokkur hafði fram að færa. Og hvernig þau ætluðu að koma því í verk. Punktur.
Það fannst mér áhugavert og ótrúlegt hve fáir stjórnmálamenn tala með slíkum hætti.
Ég fæ kjánahroll þegar stjórnmálamenn fara að ræða um að allt hafi verið í tómu tjóni árið 1989 í tíð vinstri stjórnar og svo öfugt.
Hver man eftir svona atvikum - fólk sem hlustar á útvarp Sögu alla daga.
Svona svipað og að ræða um hvort það hafi verið hornspyrna eða markspyrna í bikarúrslitaleik KR og Fram árið nítjánhundruðogeitthvað. Hverjum er ekki sama?
Þetta er allt liðin tíð.
Ég vil fá að vita hvaða flokkur ætlar að koma með bjórinn og léttvínið í Einarsbúð.
Þegar þeirri rannsóknarvinnu er lokið þá mun ég kjósa þann flokk. Allt annað er aukatriði.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Matur og drykkur, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:38 | Facebook
Athugasemdir
Ég bendi þér á aðra breytu sem þú getur kosið eftir. Það er bara einn Skagamaður sem leiðir framboð í kjördæminu. Það er bara sá aðili sem á séns á að verða ráðherra nái hans flokkur góðri kosningu. Gutti er hógvær, frjálslyndur jafnaðarmaður, hann vill léttvín og bjór í matvöruverslanir- myndi ég halda, eins og stór hluti jafnaðarmann vill. Hann mun líka berjast fyrir gjaldfrjálsum Hvalfjarðargöngum, sem er lykilatriði ef Akranes og Vesturland allt á að þróas.
Eggert Hjelm Herbertsson, 5.4.2007 kl. 10:51
Set þetta í nefnd -
Sigurður Elvar Þórólfsson, 5.4.2007 kl. 11:04
Set þetta í nefnd -
Sigurður Elvar Þórólfsson, 5.4.2007 kl. 11:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.