Föstudagur, 18.5.2007
Brotthvarf XBjé sparar tíma og vinnu
Framsóknarflokkurinn er úti í "kuldanum" í væntanlegri Ríkisstjórn og góður vinur minn sagði að mikill sparnaður yrði í heilbrigðiskerfinu við brotthvarf XBjé úr Stjórnarráðinu.
Vinur minn, sem er Framsóknarmaður, sagði mér í trúnaði að nú þyrfti ekki að kalla til sérfræðinga til þess að taka klíníska afstöðu til þess hvar andlitið á Framsóknflokknum byrjaði og hvar afturendinn á hinum stjórnarflokknum endaði.
Þetta hefur vafist fyrir helstu sérfræðingum landsins fram til þessa.
Núna þarf aðeins einn sérfræðingur að afla sér upplýsinga um slík mál á næstu misserum. Í þeim heimsóknum getur sá hinn sami farið með barnabörnin í leiðinni og gefið öndunum brauð við Reykjavíkurtjörn.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Íþróttir, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:39 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.