Stuttbuxur sem ná niður fyrir hné?

Ég fór á körfuboltaleik í Borgarnesi s.l. sunnudag, Skallagrímur vs. Fjölnir.john_stockton-arton33443-240x290

Fínn leikur og allt það.. en ég fór að velta fyrir mér hvernig þróunin hefur verið í hönnun á körfuboltabúningum undanfarin ár.

Jói Waage er aðalmaðurinn á bak við búninga Skallagríms.

Og ég verð nú bara að spyrja. Er gott að spila í þessum stuttbuxum?small_osuuniforms

Þær eru risastórar og ná niður fyrir hné á ÖLLUM leikmönnum liðsins.

Líka á 2 metra gaurunum.

Eflaust eru skiptar skoðanir um þetta.

Ég er ekki að mæla með Stockton lúkkinu á þetta.. en ég velti því bara fyrir mér hvort þessi sídd sem ræður ferðinni í dag sé þægileg.

Ég hefði allavega gripið hressilega í svona buxur hjá andstæðingunum hérna í "denn".

Af nógu er að taka.  

Bara pæling... 

6768PhilaBillRussellWiltChamberlainRebound


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er nú ástæða fyrir þessu, buxurnar í síðasta setti voru frekar litlar og þröngar. Þannig að nú var beðið um aðeins stærri buxur, endaði í því að teknar voru númeri stærri buxur og líka stækkaðar. Ekki alveg það þægilegasta en Kanarnir eru sáttir Annars förum við bara í gömlu bláu sem þú spilaðir í í gamladaga þar sem menn þurftu að stillan vel áður en hlaupið var á stað ef ekki átti ílla að fara

Pálmi Þór (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 12:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband