Kolbrún Bergþórsdóttir á Moggann?

Ég missti af atburðum dagsins í hinu stórkostlega mötuneyti Árvakurs við Hádegismóa.

Þessi vinna er alltaf að þvælast fyrir..

Heyrði hinsvegar að Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður á Blaðinu hefði ekki lýst yfir neinni sérstakri ánægju með atburðarás dagsins.kolla

Þar sem ÓÞS var ráðinn sem yfirmaður hennar á ritstjórn Blaðsins.

Hitastigið var farið að lækka í matsalnum rétt fyrir kl. 13 þegar seth mætti á svæðið en Kolbrún var að sögn viðstaddra ekki mjög kát þegar hún yfirgaf svæðið.

Ég spái því að Kolbrún verði ráðinn sem aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins. - það vantar konu í það starf.


Brynja...ég elska þig ekki

Fór í biðröð í gær við Aðalstrætið á Akureyri til þess að prófa hinn margrómaða Brynjuís.

Valið varBrynjamynds einfalt, lítill í brauðformi með venjulegri dýfu.

Dýfan var fín en ísinn var langt frá því að vera sá "besti" sem ég hef prófað.

Það var vatnsbragð af ísnum... eitthvað vantaði. Vonbrigði.

Brynja.... ég elska þig ekki.... 


Höggbylgja frá Jaðarsvelli

Það gæti verið að höggbylgjan sem barst frá okkur bræðrum frá Jaðarsvelli hafi átt þátt í því að hreyfa við snjónum í Hlíðarfjalli.getimage

Snjóflóð 27. maí?.

Fleiri stórundarlegir atburðir áttu sér stað á þessu svæði í dag.

Fjórir fuglar í röð hjá bræðrunum Thorolfsson í Texas Scramble.

Flatirnar eins og úti á Álftanesi og A. Knútur Thorolfsson átti ekki í vandræðum með að sulla þessu í. Fjögur dræv frá Árna enduðu meira að segja á braut. 

Fyrir þá sem trúa þessu ekki þá endar þessi saga á því að það er víst hægt að fá double bógí í Texas Scramble....

Niðurstaðan, 61 högg nettó, en mótið vannst á 57 höggum nettó. Helv. dúbble bógííííð...


mbl.is Snjóflóð í Hlíðarfjalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Matarlím sem átti að vera steinbítur

Ef tekið er mið af vaxtarlagi mínu þá telst ég varla matvandur.steinbiturS

Kröfurnar sem ég geri til mötuneytis Morgunblaðsins eru einfaldar. Ég stefni að því að verað saddur.

Í fyrsta sinn í dag þá kláraði ég ekki af disknum eins og mamma mín kenndi mér. (þá var ég 20 kg. með skólatösku). Mamma hvetur mig ekki til þess að klára af disknum í dag. 

Þetta leit vel út, Krydd og Kavíar???:

Pestó og sesam steinbítur með piparsveppasósu ...með brúnum kryddgrjónum. Salat dagsins. Sveppasúpa með madeira. 

En ef eitthvað bragðast eins og gamalt matarlím eða endurvinnsla á pappír sem er skammt á veg komin þá borðaði ég það í dag. Grár og klesstur viðbjóður...

5:2 sigur 4. flokks kvenna hjá ÍA gegn Fylki gladdi augað í kvöld. Frábærar stelpur í báðum liðum sem kunna að spila fótbolta. 


Fugl dagsins á Þingvöllum

seth.blog.is ætlar að einbeita sér að mikilvægum málum í sumar og aðeins fuglar og ernir fá seth til þess að skrifa eitthvað bull á þetta vefsvæði.

Bloggið og netið er víst bara bóla sem fer að springa. Leitin að hinum eina sanna dræver stendur sem hæst en miklar líkur á eru á því að niðurstaða fáist á næstu dögum.

Verð á Þingvöllum á fundi með ráðgjöfum mínum næstu daga þar sem við förum yfir sveifluferlið, hraðann og Einar Vilhjálmsson mun aðstoða mig við útkastshornið. ft3


Sumir eru jafnari en aðrir á dönskum dögum.......

Sumir eru jafnari en aðrir hefur löngum verið hefðin á íþróttaviðburðum á Íslandi. Samanber þessa færslu hér á seth.blog.is frá 13. mars. s.l. þá er ekkert nýtt undir sólinni í umræðu um áfengi og HBG á Fréttablaðinu er með fínar pælingar um þetta efni á blogginu sínu. 

Henry er einnig ánægður með að hafa fundið upp fyrirsögnina Danskir dagar... sem birtist í þremur dagblöðum eftir 2:1-sigur Vals gegn Fylki. Þessi fyrirsögn birtist fyrst að ég held í lok maí árið 2003...

 

Föstudaginn 30. maí, 2003 - Íþróttir

"Danskir dagar" á Kaplakrika

ÞAÐ má segja að "danskir dagar" séu í herbúðum FH-liðsins þessa stundina þar sem dönsku leikmennirnir Tommy Nielsen og Allan Borgvardt láta mikið að sér kveða.

 


Hver er maðurinn í vítamínbætta hveitinu?

Og nú bíða menn eftir því að sá aðili komi út úr "skápnum"..flood_gallery_58

Stuðingsmaður Shrewsbury Town??

Sá hlýtur að vera Framsóknarmaður. 

Ég sá hinsvegar að Gay Meadow, heimavöllur félagsins, tekur 8.000 áhorfendur en til samanburðar er rými fyrir 7.000 áhorfendur á Laugardalsvelli....... Gay Meadow??? það er efni í nýjan pistil.

Við höfum sem sagt minni Þjóðarleikvang en Shrewsbury  (Pillsbury)vítamínbætta hveitið..

Myndin er frá heimavelli félagsins en hann er stundum á floti þegar áin River Severn flæðir yfir bakka sína. Þann 26. apríl árið 1961 mættu 18,917 áhorfendur á leik liðsins gegn Walsall í 3. deildinni. Til samanburðar er áhorfendametið á Laugardalsvelli rétt rúmlega 20.000 á landsleik Íslands og Ítalíu.

Það má reyndar ekki gleyma því að Shrewsbury hefur aldrei unnið B-keppnina í handbolta.

Ísland, best í heimi.


mbl.is Shrewsbury í úrslitaleik á Wembley
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brotthvarf XBjé sparar tíma og vinnu

Framsóknarflokkurinn er úti í "kuldanum" í væntanlegri Ríkisstjórn og góður vinur minn sagði að mikill sparnaður yrði í heilbrigðiskerfinu við brotthvarfkmac XBjé úr Stjórnarráðinu.

Vinur minn, sem er Framsóknarmaður, sagði mér í trúnaði að nú þyrfti ekki að kalla til sérfræðinga til þess að taka klíníska afstöðu til þess hvar andlitið á Framsóknflokknum byrjaði og hvar afturendinn á hinum stjórnarflokknum endaði.

Þetta hefur  vafist fyrir helstu sérfræðingum landsins fram til þessa.

Núna þarf aðeins einn sérfræðingur að afla sér upplýsinga um slík mál á næstu misserum. Í þeim heimsóknum getur sá hinn sami farið með barnabörnin í leiðinni og gefið öndunum brauð við  Reykjavíkurtjörn.


Hvernig leggst leikurinn í þig??

Hvernig leggst leikurinn í þig?, er lélegasta spurningin sem ég hef notað í starfi mínu. Gerði það einu sinni og mun aldrei spyrja aftur með þessum hætti.lrg-180-dscn1098

Kosningasjónvarpið á báðum rásum um s.l. helgi var "orgía" fyrir þá sem elska "hvernig leggst leikurinn í þig?" pælingar og enn er leikurinn ekki byrjaður.

Upphitunin er hafin með viðræðum GH og ISG.

Líst alveg ljómandi á það partý.

Samfylkingin sér um mennta og velferðarmálin og Íhaldið um að útvíkka heimsveldið Íslandi og peningana.

Solla og Haarde verða fínt par... og ég er ekki vafa um að hún var langsætasta stelpan á ballinu


Long Beach airport á Akranesi

Afhverju datt engum þetta í hug?

Flugvöllurinn í Vatnsmýri á að sjálfsögðu að fara upp á Akranes.airport_logo

Sá fyrir um 30 árum þegar Ómar Ragnarsson stakk sér niður á Langasand á "Frúnni" sem íþróttafréttamaður og með myndatökumann með í för.

Á þeim árum var það algengt að litlar rellur lentu á Langasandi. Sandurinn hefur breyst á þessum tíma en í kvöld gerðist það. Það lentu einhverjir snillingar á Langasandi, þeir röltu út, tóku mynd af sér fyrir framan vélina og fóru í loftið á ný.

Ég hætti að spila golf á 17. braut þegar ég sá vélina sveima yfir Langasandi og gera sig líklega til þess að lenda. Var í bullandi fuglafæri en sleppti því að pútta...

Ég var hinsvegar of seinn á svæðið. Helv. Runóinn fer ekki nógu hratt.


Grunaður um aðsvif undir stýri

Stundum er erfitt að skrifa fréttir inn á fréttavefina í öllu þessu stressi. visir.is var svo sannarleg a fyrstur með þessa frétt.

Ég lærði það íluna_car2 desember árið 1985 þegar ég tók bílfprófið að það væri ekki æskilegt að vera grunaður um ölvun undir stýri en ég man ekki eftir því að Ársæll ökukennari hafi talað um aðsvif?   

 

Vísir, 15. maí. 2007 21:27

Grunur um aðsvif undir stýri

Umferðaróhapp varð undir Ingólfsfjalli á Suðurlandsvegi undir kvöld þegar bíll fór út af við Þóroddsstaðanámur. Grunur er á að ökumaðurinn sem er áttræður hafi fengið aðsvif og ekið út af í kjölfarið. Sjúkralið kom á staðinn og var maðurinn fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur.

Ástand mannsins er að sögn lögreglu stöðugt, en hann var meðvitundarlaus þegar að var komið.

Hjúkk og jess

Hjúkk, það munaði mjóu þarna...róttækur brúarvængur...profile3

við gætum kannski stofnað stjórnmálaafl og kallað okkur "róttækt brúarvængjarafl".... 


mbl.is Vængur McLaren löglegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarlegt vinnuslys á Kópavogsvelli

Fór á leik í Landsbankadeildinni í gær í Kópavogi. Sú heimsókn hafði víðtæk áhrif á heilsufar mitt. Líklega er best að kalla þetta vinnuslys.

Ömurleg aðstaða fyrir fjölmiðla á Kópavogsvelli og með sólina beint í trýnið í 90 mínútur var það áskrift á mígreniskast dauðans.

Hægra eyrað á mér er lamað eftir skólahljómsveit Kópavogs, dúúddúddú og bank bank bank...Ef þetta verður málið í leikjum sumarsins þá VERÐUR að bjóða upp á kaffi og koníak á þessum leikjum eða bara koníak..það hefur góð áhrif á heyrnina og meltingu.small_Sj%C3%BAkrab%C3%ADll-%C3%A1-Hellishei%C3%B0i_390497963

Meltingarfærin eru í ólagi eftir að hafa innbyrt slatta af próteinum í fluguformi, það virðist vera faraldur í Kópavogi að flugur drekki sér í kaffibollum í fjölmiðlastúku Kópavogsvallar. Það þarf sértækar aðgerðir nú þegar ....og leikurinn eins og  búast mátti við....vorbragur.

Annars var gaman að sjá hve vel Hrafnkell á RÚV lifir sig inn í vinnuna. Það var ekki þurr þráður á drengnum - kófsveittur og með ungmeyjarroða í kinnum. Hann fór síðan á ættarmót í viðtölunum eftir leik. Ísland er lítið...


Andlegt ofbeldi á kjörstað

Ég varð fyrir andlegu ofbeldi á kjörstað í dag.punisher4

Ég fékk skýr fyrirmæli frá betri helmingnum um að kjósa rétt...er ekki bannað að vera með kosningaáróður á kjörstað? Að sjálfsögðu kaus ég rétt... og strikaði meira segja einn gaur út á listanum...sá fékk að kenna á því.

Annað sem ég skil ekki. Afhverju voru ekki ljósmyndarar að taka myndir af mér þegar ég skilaði atkvæðinu í kjörkassann? Botna ekki í þessu.  Atkvæði mitt mun ráða úrslitum í kvöld.


Iðnaðarmannaskora

Hmhmhmhmhmhmhm... var pípari með í för?unexpected_plumbers_crack-794247

Sá ekki betur en að hin fræga iðnaðarmannaskora leiki aðalhlutverki í þessu stórgóða innslagi.Blush

Þetta jaðrar við að vera klám.

 


mbl.is Íslenskir stangveiðimenn reyna fyrir sér í Indlandshafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigmar betri en lögin

Dimitar Berbatov er frá Búlgaríu og þrátt fyrir austurevrópusamsærið er Berbatov enn í guðatölu á mínu heimili.1148043344_1148039952_evrovision

Hlustaði með öðru eyranu á þetta Evrópopp yfir stórleik kvöldsins, Tottenham - Blackburn.

Eiki var fínn en maður kvöldsins var Sigmar Guðmundsson. Kynningarnar hjá drengnum voru mun betri en flest lög kvöldsins. Annars var þetta ágætt partý.

Ég legg til að Vinstri grænir taki það að sér í næstu ríkisstjórn að búa til "höfðatölu/atkvæðisreglur" í sambandi við þessa keppni. Þá ættum við kannski séns. Eða að keppa í forgjafarflokkum... það er pæling. "ég er með 4,3 í Evróforgjöf"...


mbl.is Ísland komst ekki í úrslit Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sértækur áhugi....

Úpps. Það er 28 ára gamall körfuboltadómari, sem er með mynd af mér fyrir ofan hjónarúmið sitt.fat-feature-nov

Ég hef öruggar heimildir fyrir því að þetta sé rétt.

Þessi áhugi körfuboltadómarans á mér er jafn vandræðalegur og sértækur áhugi ónefnds íþróttafréttamanns á Henke Larsson.

Ég er hér með nýja mynd af mér sem þessi ágæti gráklæddi skrefateljari getur klístað upp á vegg hjá sér. Ég hef ekkert breyst.....


Íþróttateipið.....

Á seint á síðustu öld kunni ég ekki að segja nei og hef reyndar ekki náð tökum á þeirri list frá þeim tíma. "Eigum við að bjóða okkur fram í stjórn nemendafélagsins?" - Já.. var eina svarið..... og síðan tók við ný lífsreynsla í stjórn nemendafélagsins.

Yfirburðasigur hjá okkar framboði.

Nemendafélagsfundir voru "gríðarlega" vel sóttir og "allir" nemendur skólans mættu á fundi til þess að heyra rökræður um kaup á íþróttateipi og vatnsbrúsum fyrir blaklið skólans sem var á leið í "gríðarlega" mikilvæga keppni á Laugarvatni. Jea right...

4% af heildarfjölda nemanda greiddi íþróttateipinu atkvæði, 96 % mætti ekki (stúdentsprófið klikkar ekki...96+4=100)

Eftir stjórnmálafund RÚV í kvöld er ég handviss um að "nemendafélagsstjórmálin" eru enn við lýði.ugly%20cat

Fáir hafa áhuga en þeir sem hafa áhuga eru kraftmiklir og koma sínum málefnum á framfæri.. eða þannig..

Ég er alveg á því að 94% landsmanna hefur meiri áhyggjur af gangi mála hjá Eika Hauks á fimmtudaginn, 4% landsmanna eru að velta Kyoto-samkomulaginu fyrir sér, færeyska kvótakerfinu, utanríkisstefnu Egyptalands og fleiri mikilvægum málum...

sjitt þarna klikkaði stúdentspróvyð 94+4=98

óver and át.


Afrekskylfingur á Álftanesi......

Golfklúbbur Álftanes verður án efa í fremstu röð í framtíðinni en þessa stundina er forgjafarlægsti meðlimur GÁ maður með 14,9 í forgjöf sem telur að golf snúist um það að slá lengra en hinir.Golf-5

Þessi íþrótt er snilld.

Til hamingju með áfangann brói, þú skorar feitt með þessu plöggi.

Ég held reyndar að Dorrit komi sterk inn með haustinu eftir sjúkraþjálfunina og mun hún velta þér úr efsta sætinu. Hún er víst með eitraða bakhönd..

Ég er alveg ttaður, þeir eru ekkert að grínast með þetta golf þarna á Álftanesinu.

FORE


Leynir á sér

Það var gaman að fylgjast með gangi mála á Ítalíu og í fyrsta sinn sem Hafthorsson var á fyrsta spjaldi þegar skorin voru sýnd í sjónvarpinu. Birgir sýndi að hann getur vel blandað sér í baráttuna um sigur á stærstu atvinnumótaröð í Evrópu þar sem smáatriði skilja á milli.akranes-99-26400

Ég er viss um að margir aðrir kylfingar væru löngu búnir að gefa atvinnumennskuna upp á bátinn ef þeir hefðu reynt við úrtökumótið í 10 skipti.

Það sést á leik Birgis að hann er að ná stöðugleika sem þarf í keppni við þá bestu, aðeins fjórir skollar á 54 holum, er góður árangur og ég er sannfærður um að hann á eftir að hala inn nokkrar Evrur á næstu vikum. Hamrar járnið á meðan það er heitt. 

Birgir leikur fyrir GKG þessa stundina en hér á Akranesi er hann að sjálfsögðu "Skagamaðurinn" Birgir Leifur og Leynismerkið verður aldrei þvegið af honum. Hann Leynir á sér.

Gott framtak hjá Sýn að vera með útsendingu frá lokadeginum en því miður fór eitthvað úrskeiðis í bráðabananum þar sem myndin datt alveg út. 


mbl.is Birgir fór upp um 52 sæti á peningalistanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband