Færsluflokkur: Bloggar

The real thing eða fake?

Ef þetta er the real thing og ófalsað þá eru til menn og konur sem hafa ekki áhyggjur af því að missa lífið.

  


Fyrsta skrefið...

Ég hef ákveðið að verða viðræðuhæfur þegar kemur að fræga fólkinu. Þetta er fyrsta skrefið af 12 í þeim efnum. Meðvituð ákvörðun.

Ég sá þátt í gær í sjónvarpinu þar sem fjallað var um Lindsay Lohan en ég hélt alltaf að hún væri í Nylon. Nú veit ég betur. Lohan er ekki í Nylon. 


mbl.is Ný klámmynd byggð á ólifnaði Lindsay Lohan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kindin var ekki í stakk búin til að bera vitni fyrir réttinum.................

Guðmundur Vatnsleysa Brynjólfsson á þessa færslu með húð og hári.. bara snilld.. 

Samkvæmt ástralska netmiðlinum www.news.com.au var máli manns sem var staðin að því að hafa mök við kind vísað frá dómi. Ástæða frávísunarinnar var sú að kindin var ekki í stakk búin til að bera vitni fyrir réttinum.

Maðurinn sem er frá Haaksbergen í Hollandi var ákærður um þetta athæfi eftir að bóndinn kom að honum í "samförum" við kindina. Frávísunin var réttlætt með því að þar sem  kindin gæti ekki borið vitni um að hún hefði ekki gengið sjálfviljug til "leiksins" og það sem meira er; hún gæti heldur ekki sýnt fram á að hún hefði orðið fyrir andlegum skaða við atvikið, þótti réttast að vísa málinu frá.

Samkvæmt Hollenskum lögum er dýraníð af þessu tagi ekki ólöglegt svo framarlega sem ekki verður sýnt fram á að dýrið hafi ekki viljað taka þátt í "kynlífinu"!

"Þessir perrar ganga lausir og hafa sitt fram - bara af því að það er ekki hægt að láta kindur bera vitni" er haft eftir dýraverndunarsinnanum Jos van Huisen.

Þetta er auðvitað með hreinum ólíkindum.

Flokkað undir Heilbrigði þann 7. ágúst 2007 af gb | |


Hittnar flatir....

Ég ætla að reyna halda röflinu í hámarki næstu dagana - Gaman að fyrirsögninni á vísir.is í dag þar sem að Birgir Leifur er með fínan árangur í HITTNUM FLÖTUM  - HITTNAR FLATIR?  - líklega er verið að þýða regulation eða, að hitta flatir í tilætluðum höggafjölda .

Stundum er íslenskan lúmsk og erfið.. hittnar flatir er eflaust ekkert verra en hvað annað.....

þetta var röfl.. nú er komið að tuðinu..

í Golfblaðinu nýja sem að Birtingur gefur út er haugur af fólki sem kemur að því að þýða greinar í blaðið. Margir þeirra eflaust sleipir í ensku en hafa ekki komið út á golfvöll nema kannski á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum -

Í einni greininni í blaðinu er verið að skrifa um Völlinn sem beit frá sér - þar brosti ég út í annað þar sem skrifað er að "Brautin" hafi verið erfið og er þá átt við golfvöllinn í heild sinni en ekki eina af 18. holum vallarins.

"Þetta er erfiðasta braut sem ég hef spilað á...ég myndi segja að þessi braut væri 15 höggum erfiðari en brautin sem ég sigraði á árið 1975," sagði Tom Watson.

Það er heljarinnar braut sem er 15 höggum erfiðari en sú sem hann lék árið 1975... en meiningin er eflaust góð..

ég vona að ég hafi ekki stórmóðgað eðalbloggarann Stefán góða á Akureyri með þessari færslu.. milliríkjadeilan Akranes - Akureyri er ekki enn leyst þrátt fyrir afsökunarbeiðni seth á öðrum bloggsvæðum og víðar. 

 


Skjóta kúlu eða slá bolta????

Golfblaðið, 2. tbl., er komið út. Margt gott við þessa útgáfu en eins og gerist og gengur eru nokkur atriði sem eru ekki í lagi. Kylfingar "skjóta" ekki þegar þeir slá og ég er viss um að 99% kylfinga nota orðið bolti en ekki kúla. Skjóta kúlu eða slá bolta? Þá er þetta bögg búið.

Það er einnig grein eftir einhvern gaur sem keyrði um Ísland og prófaði 9 holu velli. Í greininni kemur það honum á óvart að völlurinn á Leifsstöðum er frekar stuttur..... tja hann hefur kannski ekki fattað það að þetta er par 3 holu völlur.. einnig er gefin einkunn fyrir aðstöðu og annað á þessum völlum. Völlurinn í Vík í Mýrdal fær einnig slaka einkunn fyrir aðstöðuleysi fyrir gesti. Kóm ón..þetta er 30 manna hópur sem sér um völlinn í sjálfboðavinnu........


Steðmenn

Þessi uppskrift klikkar víst aldrei, Stuðmenn. - Tenging... Verslunarmannahelgi..

Er það fréttaefni að mikil ölvun hafi verið á útihátíðum landsins?????????

Ég brosti út í annað þegar fréttaþulurinn á Bylgjunni las þessa frétt í hádeginu í dag. Frétt dagsins er kiss and makup dæmið hjá Árna Johnsen og einhverjum gaur þarna í Þjóðhátíðarnefnd sem eru alveg spakir þessa stundina eftir heiftarleg rifrildi í aðdraganda Þjóðhátíðar.. bara gaman.


mbl.is Shady söng með Stuðmönnum í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf víst að læra að fljúga

Þessi keypti sér þyrlu, alveg staðráðinn í því að læra að fljúga gripnum. Hann pantaði sér tíma hjá flugkennara en nennti ekki að bíða eftir honum.

Stálheppinn með útkomuna.


mbl.is Reyna að fljúga fisflugvél umhverfis jörðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Teitur sigurvegari

Ég held að fáir þjálfarar sem hafa verið reknir frá stórliði á borð við KR hafi gengið frá sínum málum við fjölmiðla líkt og Teitur Þórðarson gerði í gær.

Eftir gærkvöldið fannst mér eins og hann væri sigurvegari kvöldsins. Margir aðrir í hans stöðu hefðu ekki gefið færi á sér...

Sterk persóna sem fór aldrei út fyrir rammann. Hrósaði KR í hástert og var langt frá því að vera bitur. Þetta fór vel í marga að ég held.


Þetta var svona útvarpsmaður

Staður og stund:  Fjölmiðlamót í golfi á Flúðum fyrir nokkrum árum: 

Sól og fínt veður, einn í hollinu sló boltann upp í sólina, og við heyrðum bara í boltanum en sáum varla. Enda meira uppteknir af Viking.

Gaurinn spurði: Hvernig var þetta?

Eddi svaraði: Þetta var svona útvarpsmaður.

 Nú hvað áttu við spurði gaurinn?

Höggið hljómaði ágætlega en leit alveg skelfilega út.


Örninn losaði um spennu og stökk hæð sína

Ólafur Ágústsson vallarstjóri í Hvaleyrinni átti fína spretti í beinu útsendingunni frá Íslandsmótinu í höggleik. Hápunkturinn var þegar Örn Ævar Hjartarson brá sér á salernið á leið sinni að 18. teig á lokadeginum. "Örn Ævar ætlar greinilega að losa um einhverja spennu," sagði Óli þegar Örn skellti sér inn á salernið.. ég misskildi Óla eitthvað....voru fleiri sem gerðu það?

Örn Ævar átti einnig stökk ársins. Magnaði þegar hann reyndi að hoppa úti í röffinu á 18. til þess að kíkja yfir "hraunfjallið" hægra meginn við brautina. Góð og heiðarleg tilraun. Terry Acox fyrrym körfuboltagormur úr ÍA hefði verið stoltur af þessari tilraun Arnar. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband