Færsluflokkur: Bloggar

Handbolti í fótboltabænum

Íslenska landsliðið náði markmiðum sínum - þrátt fyrir 11. sætið. 

Það munaði  hinsvegar  litlu að Norðmenn stælu af okkur þessu sæti í forkeppninni.

Hinsvegar varð ég vitni að atviki hérna á Akranesi sem hefur ekki sést lengi.handball-2008-em-norwegen-finale-lillehammer-banner-klein

Fimm ára púki kom vælandi fram af "boltaganginum" vegna þess að hann fékk bolta í andlitið.

Það var handboltaleikur í gangi á Akranesi.

Fréttaefni.

Handbolti er ekki víst ekki á dagskrá hjá íþróttafélögum á Vesturlandi.

Síðasta stoppistöð handboltans áður en haldið er norður í land frá Höfuðborginni er Mosfellsbær. Ég veit ekki hvort handbolti er stundaður á Blönduósi en ef svo er ekki þá er Akureyri næsta bæjarfélag þar sem handbolti er stundaður.

Snæfellsnes og Vestfirðir eru ekki með neitt "klístur" í gangi og á Egilsstöðum hafa menn reynt að blása lífi í Hött af og til.

Þegar farið er suður með landinu frá Austfjörðum í vesturátt, er handbolti stundaður í Vestmannaeyjum og á Selfossi. Á öðrum stöðum ekki. Á Suðurnesjum er karfan allsráðandi. 

Handboltinn hefur ekki náð að festa sig í sessi í mörgum bæjarfélögum og með tilkomu knattspyrnuhúsa víðsvegar um land held ég að það verði jafnvel enn erfiðara að keppa við knattspyrnuna. 


mbl.is Ísland í forkeppni Ólympíuleikanna og Króatía áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mamma fær bráðum frítt í strætó

Hver  getur trúað því að þessi kona sé  að skríða á sjötugsaldurinn?Kristín Guðbjörg Eyjólfsdóttir

Ekki ég.

Til hamingju með afmælið mamma.

Það eru ekki nema 7 ár þar til þú færð frítt í strætó!!

Bestu kveðjur  til Tenerife. Og ekki týna kallinum. 

Er ekki annars fellibylur að  ganga yfir eyjuna? 

 

 

 


56 kb á HM í Caminha

Fleiri sögur af stórmótum í handbolta.

Í janúar 2003 fór ég á HM í Portúgal. Ísland lék í riðli sem fram fór í Viseu, smábæ inn miðju landi, ekki mjög langt frá Porto. Algjört ævintýri að lenda í Porto, henda sér inn í bílaleigubíl og reyna að finna réttu leiðina í myrkrinu. Það gekk á endanum en ég mæli ekki með því að vera með kort í farþegasætinu og reyna að lesa á það á +100!a51841

Þegar riðlakeppnin hófst var ekki búið að gefa það út hvar Ísland myndi leika í milliriðli, ef þeir kæmust þangað. Snilld og lýsir vinnubrögðum IHF mjög vel. Stuðningsmenn gátu því ekki bókað hótel eða gert ráðstafanir.

Ísland komst áfram í milliriðil þar sem að leikið var gegn Póllandi og Spánverjum í enn minni bæ sem heitir Caminha. Í raun var HM á Íslandi stórmót miðað við þá umgjörð sem var í Caminha. Það var einn stuðningsmaður frá Íslandi sem fylgdi liðinu til Caminha.

Já, hann var einn á ferð.

Skemmtilegast fannst mér að sjá þegar aðstaða fyrir fjölmiðla var sett upp í Caminha. Fjöldi ljósmyndara var á svæðinu og mikil þörf á góðri nettengingu í aðstöðunni. Portúgalarnir voru mjög stoltir af aðstöðunni þegar þeir höfðu lokið við að setja dæmið upp.

Jú, það voru margar borðtölvur sem menn gátu nýtt sér, og allir fengu skrifborð til þess að vinna við. Vandamálið var aðeins eitt. Allar tölvurnar voru tengdar í gegnum sama módemið sem var 56/kb sek. Svona innhringi dæmi sem flestir kannast við.

Á hraða snigilsins.

Það var gríðarlega gaman að sjá ljósmyndarana reyna að senda myndir á sama tíma í gegnum sömu tenginguna. Flestir brugðu á það ráð að senda myndirnar í gegnum GSM-síma og það tók ekki mikið lengri tíma....

Aðstaða fyrir fjölmiðla inn í íþróttasalnum var einnig mjög frumstæð. Á leik Íslands og Spánar fengum við ekki borð til þess að sitja við og ég og Guðmundur Hilmarsson sátum á meðal áhorfenda með spjald á lærunum til þess að skrifa eitthvað niður. Við sátum á milli tveggja sveittra Spánverja í netabolum og lyktin var eftir því..

Það er stundum svona Landsmótsstemmning á stórmótum í handbolta.


Vujovic með vafasöm tilþrif á EM í Sviss

Evrópumeistaramótið í hanbolta hefst á fimmtudaginn í Noregi og án efa fer allt á hvolf hér á Íslandi, samkvæmt venju. Ég var á síðasta EM sem fram fór í Sviss þar sem að Viggó Sigurðsson var þjálfari. Á því móti voru meiðsli lykilmanna sem gerðu út um vonir okkar. Ólafur Stefánsson fékk gríðarlegt högg á brjóstkassann gegn Serbum og var nánast úr leik það sem eftir var. Alexander Petterson kjálkabrotnaði gegn Rússum  - en hann kvartaði ekki fyrr en leikurinn var búinn. Hann var úr leik en við lögðum rússneska björninn.5abf3b1a259f41b186deaa272d41e224_400

Einar Hólmgeirsson meiddist í leiknum gegn Króatíu sem við töpuðum naumlega. Það voru aðeins 10 mínútur búnar af leiknum þegar hann meiddist og hann var ekkert meira með á  EM. Garcia var tábrotinn og Roland var eitthvað tjónaður líka. Það getur því margt gerst á stuttu móti þar sem að lið geta leikið 8 leiki á 11 dögum. Sem er algjört rugl.

Það sem var eftirminnilegast á EM í Sviss að mínu mati var framkoma Veselin Vujovic þjálfara Serbíu í riðlakeppninni í Sursee. Í leik Serba og Ungverja missti Vujovic gjörsamlega stjórn á skapi sínu þegar Alen Murotovic leikmaður Serbíu gerði tvenn mistök í röð. Murotovic lék aðeins í sókn sem skytta vinstra meginn og hann byrjaði á því að skipta útaf þegar hann átti ekki að velja þann kostinn. Ungverjar nýttu sér mistökin og skoruðu.

Þjálfarinn stóð fyrir framan leikmanninn við skiptisvæðiði. Vujovic drullaði eitthvað yfir hann. Síðan ýtti hann í báðar axlir leikmannsins sem datt aftur fyrir sig, hann rúllaði yfir varamannbekkinn og endaði næstum því upp í stúku.

Vujovic sá síðan að sér, kyssti Murotovic á kinnina, (það er alveg satt) og sendi hann inn í næstu sókn. Þar gaf Murotovic feilsendingu og Ungverjar brunuðu fram og skoruðu. Murotovic kom útaf og Vujovic tók á móti honum með þeim hætti að það gleymist ekki. Hann rétti honum upphitunarpeysuna, og sagði leikmanninum að fara í sturtu. Þetta var um miðjan fyrri hálfleik.

Ógleymanlegt.

e.s.  í næsta leik Serbíu sem var gegn Króatíu í milliriðlinum í St. Gallen var Murotovic ekki í leikmannahóp Serba. 

 


Með marga bolta á lofti

Ég var að versla á fimmtudaginn í Krónunni á Akranesi. Þetta var síðdegis og töluvert af fólki að versla. Aðeins einn starfsmaður var að vinna á kassa og röðin var því nokkuð löng.

Verslunarstjórinn tók sig til og opnaði sjálfur einn kassa til viðbótar og þar sem ég er léttur á fæti þá var ég skyndilega annar í röðinni á kassanum hjá verslunarstjóranum.

Þetta gekk allt saman ágætlega. Viðskiptavinurinn sem var á undan mér var með helgarinnkaupin á borðinu og verslunarstjórinn hafði greinilega gert þetta áður.

Pípp, pípp, pípp, pípp, pípp, pípp, pípp, pípp, pípp, pípp, pípp, pípp, pípp, pípp, pípp, og svo kom aðalatriðið.

Hann tók upp símann og hringdi? Það var ekki laust við að maðurinn á undan mér væri hálfhissa að sjá manninn tala í síma á meðan hann afgreiddi.

"Er þetta Siggi?," spurði verslunarstjórinn, pípp, pípp, pípp, pípp "Ég ætlaði bara að athuga hvort þú gætir komið að vinna?.pípp, pípp, pípp, pípp. "Nú, kemstu ekki núna.pípp, pípp, pípp, pípp. Ok. pípp, pípp, pípp, pípp. Við sjáumst þá um helgina," og samtalinu lauk.  pípp, pípp, pípp, pípp, pípp, pípp, pípp, pípp," þetta verða 15,890 krónur.verslun-hagkaup-4

Ég henti hvítlauksbrauðinu og ostinum á borðið. Var ekki með meira á dagskrá í þessum innkaupaleiðangri. Verslunarstjórinn bauð góðan daginn. Tvö stutt pípp, "Þetta eru 1509 krónur" 

Og það næsta sem ég veit er að ung kona kemur til hans og óskar eftir viðtali vegna starfsumsóknar. 

Jebb. Þau ræddu eitthvað saman. Og mér virtist að það væribúið að ráða hana í vinnu á meðan ég krotaði nafn mittt á kvittunina frá VISA.

Ég dreif mig út áður en hann færi að biðja um vaktaplanið hjá mér á Mogganum.

Kannski maður geti raðað í hillur fyrir kvöldvaktina? Pæling.


Góð byrjun Utan vallar

Ég horfði á nýja íþróttaþáttinn sem heitir Utan vallar á Sýn í kvöld.HORDUR2_2

Þetta lofar góðu og miðað við frumburðinn þá verður þetta fínt prógramm.

Það var frekar svona "dinner" stemmning hjá Geira og Gaua.

Ekkert rifrildi eins og margir áttu von á. 

Viðtalið við Alfreð var líka mjög fínt og Hörður Magg er fínn spyrill. Hann er kannski glaður að fá að fara út úr "búrinu" og gera eitthvað annað en að öskra:

"Tottenham er búið að skora, þetta er ótrúlegt. Frábær tilþrif hjá Berbatov. Sáuð þið þetta?." 

Reyndar fannst mér karlmennskuímynd Alfreðs vera í molum með allt þetta meik í andlitinu.

Sérfræðingarnir Ívar Ben og Henry voru rúsínan í pylsuendanum. Þeir klikka ekki á svona dauðafærum og voru snyrtilegir en samt smá "wild".

Fínt að fá umræðu um margt sem snýr að íþróttalífinu. Enda af nógu af taka. Og svo var ekkert verið að plögga aðra dagskrárliði Sýnar í þessu prógrammi. 

Mig minnir að slíkir þættir hafi verið á dagskrá með reglulegu millibili á RÚV. Það er liðin tíð og ég held að Sýn hafi hitt naglann á höfuðið með því að setja svona þátt í loftið.

En það þarf úthald í svona prógramm og vonandi eru menn með þrek til þess að takast á við þetta verkefni af krafti.

 


Barton....

Er Joey Barton ekki rétti maðurinn í þetta jobb.....

Ef eitthvað er að hjá mínum mönnum í Tottenham þá er leyndardómurinn á bak við gengi Newcastle efni í ritgerð.

En ég hef trú á því að Tony Adams taki við og Barton verður aðstoðarmaðurinn hjá Adams.


mbl.is Sam Allardyce sagt upp hjá Newcastle
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kálfaprótein?

Ef allt væri eðlilegt þá myndi lyfjaeftirlit Samtaka tónskálda og eigenda flutningsréttar standa fyrir þeirri nýbreytni að senda alla keppendur í úrslitakeppni Júróvisjón hér á Íslandi í lyfjapróf.

Og þá með bannlista WADA og lyfjaeftirlits ÍSÍ sem vinnuplagg. 

Eftir að hafa lesið grein í Fréttablaðinu í dag þar sem "proppsin" í genginu hans Barða voru að gera grein fyrir vöðvauppbyggingu þeirra á undanförnum vikum.

Þá dettur mér eitthvað annað en kálfaprótein, harðfiskur og skyr í hug. Kannski er þetta prentvilla í Fréttablaðinu en 15 kg. vöðvamassi á nokkrum vikum er helvíti þéttur pakki. 


MUFF á færeysku?

Veit einhver hvað MUFF stendur fyrir??? 

Svarið er einfalt: Manchester United Fjepparafelag Føroyar, stytt MUFF. 

Færeyska er snilld. Kassameistari, Tiltakslimur og að sjálfsögðu Fjepparafelagið - 

Tekið af fréttavefnum Dimma.fo. Ég held að færeyska hornið verði tekið hér af og til á þessu bulli.

Fyri jól varð eitt føroyskt fjepparafelag fyri Manchester United skipað í Føroyum. Um vikuskiftið skipaði nevndin seg soleiðis:

Formaður: Heri Simonsen
Næstformaður: Birnir Hauksson
Kassameistari: Jóannes Egholm.
Skrivari: Jón Brian Hvidtfeldt
Nevndarlimur: Jan Poulsen
Tiltakslimur: Leivur Langgaard

Felagið hevur eisini tvær undirvendir, eina ferðanevnd og eina heimasíðunevnd.
Almenna navnið á felagnum er Manchester United Football Club’s Supporters Club Faroe Islands Branch, á føroyskum Manchester United Fjepparafelag Føroyar, stytt MUFF.

Felagið hevur higartil skipað fyri tveimum, almennum tiltøkum. Einum fyrireikandi fundi fyri at meta um áhugan fyri felagnum, og einum stovnandi aðalfundi, ið varð hildin á Rex sunnudagin 15. desember. Higartil hava umleið 200 fólk teknað seg sum lim í MUFF. Limagjaldið er 250 krónur um árið.

Fjepparafelagið hjá Manchester United er tað 4. fjepparafelagið hjá einum felagi í ensku Premier League. Hini trý, sum hava fjepparafeløg, eru Liverpool, Arsenal og Newcastle.Shim

 


Heylóarvísa í boði MS

Mjólkursamsalan hefur á undanförnum árum verið einn dyggasti bakhjarl íslensku átaks sem birst hefur í mörgum myndum hjá fyrirtækinu.

Ekkert út á það að setja.

Ég sá hinsvegar í dag fínt dagatal frá MS þar sem að Jónas Hallgrímsson er í aðalhlutverki.

Móðir mín er snillingur í málfræði og stafsetningu. Hún rak augun í þessa fyrirsögn. Þetta var eitthvað skrýtið.

Á dagatalinu er mynd af fugli, og þar er stór fyrirsögn. Og hér kemur það...

Heylóarvísa - Sick

Það er nefnilega það var það fyrsta sem okkur datt í hug.

Uppfærsla...20:10 

En við nánari athugun (með athugasemd frá Heimi L. Fjeldsted) þá er þetta víst rétt nafn á kvæðinu.

Heylóarvísa er víst til  - stundum er betra að hugsa áður en maður skrifar... fy faen

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband