Færsluflokkur: Bloggar

Þessi vigt er snarklikkuð

Nýtt ár gengið í garð og ég er ekki lengur 38 ára.

Tiger Woods hringdi ekki í mig á sameiginlegum afmælisdegi okkar þann 30. des.  -.

Fuglakjötið hjá Þórólfi Ævari klikkaði ekki frekar en fyrri daginn. Hann er jafnöruggur og Robbie Keane í vítunum.alka_seltzer_burger_1
Þeir sem voru að horfa á skaupið með mér voru stundum alveg LOST  - en ég brosti af og til og hló meira að segja einu sinni eða tvisvar..

Vakti lengi inn í nýja árið.

Gott mál. Vinna á Nýársdag. Og bara nokkuð hress miðað við allt. Mynd%20af%20fot%20a%20vigt

Hef sett mér ný markmið á nýju ári. Vigtin á heimilinu er einnig útvarp og þegar ég stíg á hana stillir útvarpið sig á þá rás sem er á viðeigandi tíðnisviði. Útvarp Saga hljómaði í morgun, 99,4??? Og Arnþrúður Karlsdóttir var á línunni. Hó, hó...

Halló - þessi vigt er snarklikkuðWink.

Fyrsta nýársheitið er þegar í höfn. Ég er hættur að reykja.. hætti því reyndar í Akrafjalli sumarið 1981..grænn í framan eftir gott Viceroy prófunarferli..

Þau áramótaheit sem eru enn eftir eru:

Að koma í veg fyrir að Ástþór Magnússon nái kjöri..........

meira síðar... 


Og?

Ég held að peningar séu það eina sem skiptir máli í þessu samhengi.

Vinir mínir í Tottenham hafa aldrei slegið hendinni á móti góðum viðskiptum.

Ef þeir græða 10-15 milljónir punda á Berbatov þá munu þeir ekki ekki segja nei.

Berbatov minnir mig stundum á Larry Bird. Leikskilningur er það sem þeir hafa umfram aðra leikmenn.

Vonandi fer hann ekki neitt.

En það eru litlar líkur á því.


mbl.is Berbatov vill vinna titla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hárið á Gísla fréttamanni

Ég held að þeir sem ákváðu að fara á Langjökul í "blíðunni" í fyrradag hafi ekki áttað sig á því að þar var markaðsafrek ársins unnið.

Hjálparsveitirnar hafa varla getað beðið um betra "plögg".

Og það eiga þær alveg skilið.

Ég velti því fyrir mér hvort Herdís Storgaard fái ekki tækifæri til þess að ræða við þessa ágætu foreldra sem tóku sénsinn þarna á jöklinum.

Það var svo hvasst að hárið á Gísla Einarssyni fréttamanni var á hreyfingu. 


Ótrúlegt lið

Þetta Tottenham lið er ótrúlegt.

Og síðari hálfleikurinn í dag gegn Reading er með því skemmtilegra sem enska úrvalsdeildin hefur boðið upp á.

Ekkert lið hefur skorað fleiri mörk í deildinni á þessari leiktíð en Tottenham, 41, næstir í röðinni eru Arsenal með 40 mörk. 

Við erum fyrir ofan Arsenal í þessari tölfræði og það dugir..


mbl.is West Ham sigraði Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrós dagsins...

Margrét Lára Viðarsdóttir fær hrós dagsins.

Íþróttamaður ársins 2007 og það er óhætt að segja að hún sé stórkostleg fyrirmynd.

Valið á Íþróttamanni ársins er hápunktur ársins í íslensku íþróttalífi og það var gaman að sjá og heyra hvernig Margrét Lára svaraði spurningum í fjölmiðlum eftir kjörið.

Hún er róleg og yfirveguð.

Liðsheildin og samvinna var það sem hún lagði áherslu á og ekki má gleyma hugarfarinu og að mæta á allar æfingar til þess að gera betur en áður.

Það eru skiptar skoðanir um valið á Íþróttamanni ársins  -bæði á meðal almennings og einnig í röðum íþróttafréttamanna. Það mun aldrei breytast. 

Kosningin er leynileg og ég ætla að halda því útaf fyrir mig hvernig minn listi leit út...........

Þetta er í þriðja sinn sem að Vestmannaeyingur er Íþróttamaður ársins. Ásgeir Sigurvinsson hefur tvívegis verið valinn og núna bætist Margrét Lára við. Skagamenn hafa tvívegis fengið þessa viðurkenningu. Guðjón Guðmundsson árið 1972 og Ragnheiður Runólfsdóttir árið 1991. Þau voru bæði í sundinu.   


Íþróttamaður ársins

Það er alltaf mikil spenna sem ríkir fyrir kjörið á Íþróttamanni ársins.

Og á vinnustað mínum hefur varla verið spurt um annað síðustu daga.

„Hver heldur þú að verði Íþróttamaður ársins?".

Satt best að segja hef ég ekki hugmynd um það.  

Ég veit hverja ég kaus.

En gef það ekki upp.

Ég skýt á það að Birgir Leifur Hafþórsson, Margrét Lára Viðarsdóttir og Ragna Ingólfsdóttir verði í þremur efstu sætunum. Hinir 7 sem eru á topp 10 listanum eru: Jón Arnór Stefánsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Guðjón Valur Sigurðsson, Ólafur Stefánsson, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Snorri Steinn Guðjónsson og Örn Arnarson.


Loftlagsbreytingarnar maður.........

Fékk mér göngutúr með yngsta barninu á laugardag rétt eftir að leik Arsenal og Tottenham lauk.

Ekki veitti af.

Spurning um hvort írskir dagar verði strikaðir út á næsta ári á Akranesi. Nei, þetta er ekki svona slæmt.

Og Robbie Keane er fínn leikmaður.

Við feðgar fengum okkur göngutúr í Garðalund. Skógrækt Akurnesinga rétt við golfvöllinn.

Veðrið var fínt en birtu var farið að bregða.img-26

Á leiðinni sáum við risastórt tré sem hafði brotnað í óveðrunum (þrennunni) um daginn og við gengum undir tréð þar sem að það studdi sig við félaga sinn hinu meginn við göngustíginn.

Sá stutti, sem er 5 ára, var nú ekkert að kippa sér upp við þessar náttúruhamfarir - en hann var með skýringu á þessu tjóni.

"Pabbi. Veistu að þetta tré brotnaði út af loftslagsbreytingunum."

Það er greinilegt að skólakerfið á leikskólastiginu er að virka fínt........................ 

Loftlagsbreytingarnar maður, loftlagsbreytingarnar 


Leeds gegn Huddersfield

Á dögunum var ég staddur í Leifsstöð og þar var stór hópur Íslendinga á leið til Englands á fótboltaleiki.

Hluti hópsins var að fara á Manchester United og Derby - en minnihlutinn var í 20 ára afmælisferð Leeds klúbbsins á Íslandi.

Og það var ekki ómerkara lið en Huddersfield sem Leeds átti í höggi við. Leeds er í 2. deild á Englandi og situr þar í 5. sæti. Þrátt fyrir það er áhugi stuðningsmanna liðsins ótrúlega mikill. Leeds lék í undanúrslitum Meistaradeildarinnar árið 2001....frá þeim tíma hefur félagið verið á hraðri niðurleið...en kannski eru bjartari tímar framundan.


Gunnar Gylfason?

Ég er ekki alveg að átta mig á yfirlýsingu Gunnar Gylfasonar knattspyrnudómara sem hann sendi frá sér í dag. Var þetta eina lausnin? Kannski hefur Gunnari þótt nóg komið?

Öll spjót standi að aðaldómaranum sem er Kristinn Jakobsson. 

Ég hélt að menn í þessum bransa færu saman í gegnum svona verkefni sem LIÐ

Það virðist ekki vera þessa stundina.

Gunnar vill sem sagt ekki eiga þátt í þessum vafasama dómi sem var vissulega rangur. 

Gunnar er að mínu mati ekki að hjálpa neinum með þessari yfirlýsingu. En hann hefur tekið þessa ákvörðun og það ber að virða.

Þeir munu ekki tjá sig um málið frekar.

Enda er þeim bannað að tjá sig um málið en eru samt sem áður báðir búnir að tjá sig um málið.

Flókið....já.


Sjálflímandi frímerki -

Prik dagsins fær sá sem kom því í gegn að vera með sjálflímandi jólafrímerki  í boði fyrir landsmenn.215x75_Jolafrimerki

Slapp við það að fá óbragð í munninn við að lepja/sleikja/borða frímerkin í ár.

Þvílík snilld. Afhverju hefur engum dottið þetta fyrr í hug????????????????


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband