Færsluflokkur: Bloggar
Fimmtudagur, 22.11.2007
Árás á miðaldra karla með sítt hár
Það er ekki á hverjum degi sem að myndatexti dregur lesendur að efninu..en að fá á sig það orðspor að vera perralegur þjálfari eru ekki bestu meðmæli í því starfi.....eða öðrum störfum..24 stundir bjóða upp á þetta íþróttaefni í dag.. margt vitlausara...
Ég velti því fyrir mér hvort jafnréttisráð eða baráttusamtök síðhærðra, miðaldra karla með rótfylltar tennur, geti ekki fjallað um þetta mál...
Verið að draga upp neikvæða staðalímynd af síðhærðum, miðaldra hnefaleikaþjálfurum..En hvað eru þau að gera á karlaklósettinu og afhverju eru stelpur í boxi ekki með hár undir höndunum. það er meira svona austantjalds og getur ruglað andstæðinginn í ríminu...
Þetta verður kannski tekið upp í utandagskrárumræðum á Alþingi.. Guðjón Arnar byrjar.. Ásta Ragnheiður eða Ragnheiður Ásta tekur síðan við keflinu og Steingrímur Joð klárar málið rétt fyrir miðnætti..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 21.11.2007
Birgir Leifur magnaður
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur frá Akranesi fær prik dagsins. Strákurinn er bestur í nóvember og ég ræddi það við hann á dögunum að hann ætti bara að spila í nóvember.. en það er víst ekki hægt.
Það er að mínu mati ótrúlegt afrek hjá Birgi að vera kominn á þann stað sem hann er í dag. Og lokadagurinn í gær á lokaúrtökumótinu var dæmigerður fyrir Birgi.. vippað í á 17. úr vonlausri stöðu fyrir fugli og málið dautt..
Margir hafa efast um Birgi allt frá árinu 1997.. hann hefur verið afskrifaður oftar en Framsóknarflokkurinn..en Birgir hefur sett undir hökuna og barist í gegnum mótlætið.
Lokúrtökumót Evrópumótaraðarinnar er af flestum sérfræðingum talið vera erfiðasta mót ársins.
Allt lagt undir á sex dögum og framtíðin í húfi - spilað um fall niður á Áskorendamótaröðina eða sæti á meðal bestu kylfinga heims.
Birgir býr nú að reynslu sem fáir búa yfir. 11 ár í röð á úrtökumótunum og ég held að næsta tímabil verði það ár sem að okkar maður nær að fóta sig í keppni á meðal þeirra bestu..
Birgir fær aðeins tækifæri á um 40% af þeim mótum sem eru á dagskrá Evrópumótaraðarinnar - það er því mun erfiðara fyrir Birgi að vinna sér inn verðlaunafé -þar sem hann fær færri mót en þeir sem eru með aðgang að fleiri mótum.
Þeir sem léku á flestum mótum á síðasta tímabili léku á 35 mótum en Birgir lék á 18 mótum. Til þess að vera í hópi 115 efstu þurftu kylfingar að vinna sér inn rúmlega 19,7 milljónir kr eða meira. Birgir var með 6,7 milljónir í verðlaunafé á 18 mótum og í 184. sæti á peningalistanum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 21.11.2007
Bryant og Harvey - góðir saman
Ég reyndi að horfa á Indiana og Lakers í gærkvöld en missti áhugann þar sem að Lakersliðið getur ekki rassgat en það skiptir víst ekki máli því Indiana er enn verra - Larry Bird forseti Indiana myndi án efa líta vel út í leikjum liðsins - þrátt fyrir að hann hafi hætt að spila árið 1992.
Kobe Bryant er alveg eðlilegur að reyna að spila á samherja sína - bara til að líta vel út. Þetta fer honum ekki. Bryant á bara að skjóta í hvert sinn sem hann fær boltann og þá yrði þetta allt mjög eðlilegt - það er ekki í eðli Bryant að gefa tuðruna.
Það vakti athygli mína að það voru afar fáir áhorfendur á leiknum - AP fréttastofan gefur upp að 11,577 hafi mætt á svæðið en
Conseco Fieldhouse tekur víst 18,345 áhorfendur. Rétt rúmlega 60% nýting....Ég skil ekki alveg hvar þessir 11,577 áhorfendur voru - allavega ekki í sætunum.. þeir hafa kannski fengið sérfræðinga úr knattspyrnunni í Grindavík til að telja..
NBA - æðið gekk yfir Ísland undanfarna daga en það er víst einhver leikmaður í tyrkneska liðinu Banvita sem hefur leikið í NBA -Donell Eugene Harvey. Ef marka má fréttir af Harvey undanfarna daga þá er það óskiljanlegt að maðurinn skuli ekki vera aðalmaðurinn í NBA-deildinni í dag.
Ég sá leikinn gegn KR í gær í vefsjónvarpi KR og þar var Harvey að sýna ágæta takta - en er ekki sá besti..
Harvey kallinn á magnaðann feril að baki í NBA, á 7 árum skoraði hann 5,6 stig að meðaltali og var 39 sinnum í byrjunarliði í 205 leikjum. Hann tók þátt í því afreki að vera leikmaður Denver Nuggets sem var með 20% vinningshlutfall veturinn 2002-2003...17 sigrar og 65 tapleikir... en þeir fengu Carmelo Anthony í nýliðavalinu....það var besta tímabilið hjá Harvey - sem er að sjálfsögðu með þeim betri í heiminum í körfubolta
![]() |
Mögnuð endurkoma hjá Dallas gegn Toronto |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 20.11.2007
Átök á landsliðsæfingu í Köben.....
Það er ekki oft sem að fjölmiðlar skúbba fréttum í dag - en á morgun er gamli góði Mogginn, þessi hægfara og ljúfi öldungur, að skúbba helvíti góðri frétt frá Köben.
Á landsliðsæfingu Íslands var tæklað alveg upp í háls sem eru góðar fréttir og það sem er hægt að segja er að menn voru að fórna sér og það brotnuðu bein á þeirri æfingu...........
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 19.11.2007
Rauðar eða svartar?
Ég átti erfitt með að sofa í nótt þar sem ég var að hugsa um hvort ég ætti að vera í svörtum eða rauðum buxum í hjólreiðafirmakeppninni um næstu helgi. Hvað finnst ykkur eiga betur við mitt lið - rauðar eða svartar buxur?
Fékk þessar myndir sendar frá hjólreiðaáhugamanni í Danaveldi.. ég velti því líka fyrir mér í hvernig buxum John Taft fyrrum leikmaður Vals hefði keppt í??? Smellið á myndirnar til þess að stækka þær..
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 16.11.2007
Er mötuneyti fréttaefni?
Þessa frétt er að finna á Mannlífsvefnum.. þar er mötuneytið á vinnustað mínum fréttaefnið...
Stórkostlegt fréttaefni.. hvar í veröldinni væri fjallað um mötuneytismál á fjölmiðli...í öðrum fjölmiðli..
En fljótt á litið þá held ég að starfsmenn Árvakurs hafi ekki beint verið að svelta sig í hel - svona fljótt á litið..
það eru afar fáir sem eru í alvarlegri fokhættu...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 16.11.2007
Magnað viðtal við Alfreð Gíslason
Það er mjög heimilislegt andrúmsloft á vef TV á handbolti.is...
þetta viðtal t.d. við Alfreð Gíslason er alveg magnað..
óvæntar uppákomur og fleira..Alfreð á frekar erfitt með að tala vegna hláturs..
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 16.11.2007
Hvað kostar svona vél?
Velti því fyrir mér hvað svona vél kostar?
Er þetta tjón upp á +10 milljarða kr. eða meira?
Svona eins og tvenn Hvalfjarðagöng á miðað við árið 1998?
Vona að íslensk tryggingafélög séu ekki með Airbus sem stórkúnna.....
"Ef þú ert tryggður þá færðu það bætt!"
![]() |
Klessukeyrði nýja Airbus-þotu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 16.11.2007
Eru ljósmyndir vinsælasta þýfið?
Ljósmyndir virðast vera helsta þýfið á veraldarvefnum þessa stundina. Ég er ekki saklaus sjálfur. Googla oft myndir inn á þetta bull. En ég er samt sem áður ekki viss um að menn megi gera þetta.
Myndin er af golf.is. Höfundur myndarinnar er á Reuter fréttastofunni og hann tók myndina í Suður-Afríku í desember á síðasta ári.
Ég er handviss um að höfundarrétturinn er brotinn í þessu dæmi.
Búið að breyta myndinni og það er bannað samkvæmt höfundarréttalögum - nema með samþykki höfundar.
Ég er ekki viss um að þessi mynd sé aðalumfjöllunarefni í fjölmiðlum í S-Afríku en það er áhugavert að velta því fyrir sér hve auðvelt er að stela myndum frá atvinnuljósmyndurum. Ég er sjálfur sekur með því að skrifa þessa færslu og birta þessar tvær myndir - en ég held að það sé ágætt að skapa umræðu um höfundarrétt ljósmyndara - og þá sérstaklega íslenskra atvinnuljósmyndara..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 16.11.2007
Sullen og kransæðakíttið
Sjálfsímynd mín er undir verðbólgumarkmiðum Seðlabankans þessa stundina. Ég velti því fyrir mér afhverju verslunareigandi í Borgarnesi er að herja á mig vegna opnunar á Yfir 46 sem er víst tuskubúð fyrir sterkar og flottar konur sem nota stærðir 46-60...
ég vissi ekki að líkamlegt ástand mitt væri umræðuefni í markaðsátaki Borgnesinga....
Kannski að bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Maurice Ingram leikmaður Stjörnunnar hafi einnig fengið svona póst inn á sitt heimili. Ef hann setur farsíma í rassvasann þá er sá sími utan þjónustusvæðis......Farangursgeymslan er svo stór að massinn hefur áhrif á flóð og fjöru....
Haustið 1994 var bandarískur leikmaður í úrvalsdeildarliði ÍA, Anthony Sullen, fjölskylda hans átti nóg af peningum og þurfti ekki að hafa áhyggjur af brauðstritinu. Atvinnumennska í Evrópu var bara ævintýri fyrir hann - og líkamlegt ástand Sullen var hræðilegt þegar hann mætti í ágúst. Ég fór með hann á landsleik Íslands og Svíþjóðar á Laugardalsvelli - ég held að það hafi verið fyrsti leikurinn þar sem að flóðljósin voru kveikt.. Hann hélt með Svíum af því það var einn "brother" í sænska liðinu eins og hann orðaði það - Henke Larsson...
Sullen var gæðablóð og hann fór að æfa eins og hermaður þegar hann sá að íslenskur körfubolti var ekkert grín. Hann púlaði eldsnemma að morgni, og tók æfingarnar mjög alvarlega. En það gekk ekkert að létta kauða sem var rétt um 1,95 á hæð en ekki alveg jafnþungur... kannski 130 kg..
Sullen hélt æfingaplaninu áfram og æfði eins og skepna.......en hann var látinn fara..eftir nokkra leiki.. stóð ekki undir væntingum... við fengum síðan skýringu á því afhverju hann var ekkert að léttast.. hann kynntist bleika íslenska kransæðakíttinu... KOKTEILSÓSUNNI og hann borðaði víst nokkra lítra á dag með skeið af þessu eðalstöffi... Sullen ...hvar skyldi hann nú vera í dag?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)