Færsluflokkur: Bloggar
Þriðjudagur, 18.12.2007
Davis er ekkert að grínast
Gamalt og gott.
Þessi Baron Davis er ekkert að grínast.
Hér fær Andrei Kirilenko tuðruna beint í andlitið....
Golden State Warriors húðflúrið verður komið á bakið á mér eftir nokkrar vikur...old school útgáfan..Mínir menn eru með 56% vinningshlutfal, 14 sigra og 11 tapleiki. Allt að gerast.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 17.12.2007
Tímamót
Tímamót.
Tottenham er núna með fleiri stig en leiki á stigatöflunni.
Það er helvíti jákvætt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 13.12.2007
Létt grín í Leifsstöð...
Sumir hlutir eru til þess að blogga um þá.
Seth vaknaði af dvala í morgun þegar komið var með vél Icelandair frá Orlando.
Öryggistékkið í Orlando var frekar hefbundið..., beltið af, úr skónum, fartölvuna upp á borð og allt þetta ferli sem er í gangi á öllum flugstöðvum í dag.
Í Orlando eru starfsmenn með einnota gúmmihanska við störf, tilbúnir að bregðast við krefjandi líkamsleit og fleiru...
Eftir glæsilega lendingu Þorgeirs Haukamanns á Keflavíkurflugvelli röltu farþegar inn í Leifsstöð.
Og þar var boðið upp á létt grín.
Farþegar fóru í gegnum öryggistékk á ný, þar sem að farið var í gegnum sömu rútínu og í Orlando?
Hvaða geimsjávarlíffræðingar búa til svona verkferli?
Hvar áttu farþegar í þessu flugi að hafa náð í óæskilega hluti yfir miðju Atlantshafi?
Svona hluti skil ég ekki....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 10.12.2007
Ástand....
Núna er seth latur að blogga...
kannski lagast ástandið..
hver veit..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 30.11.2007
Hvað vinna margir á skrifstofu Alþingis?
Þegar maður horfir á störf Alþingis utanfrá þá virðist þetta vera þokkalegt og ágætlega launað innistarf. Oft eru fáir í þingsal og ég hef haft það á tilfinningunni að það séu fáir sem nenna að mæta í vinnuna. Það er nú öðru nær.
Það hefur lítið farið fyrir þessari frétt.
Menn vilja fá meiri aðstoð inni á þingi enda nóg að gera á síldarplaninu.
Ég fór að velta því fyrir mér hve margir vinna á Alþingi og notaði vefinn til þess að fletta því upp.
Ég hafði gert ráð fyrir svona 30-40 manna skrifstofu sem sæi um þetta. Nei ég var ekki einu sinni nálægt því.
Á skrifstofu Alþingis eru 126 starfsmenn.
Já, 126.
Og það liggur fyrir Alþingi frumvarp þar sem fjölga á starfsmönnum Alþingis haustið 2008.
Ekki veitir af þegar rædd eru mál á borð við bleikar eða bláar samfellur..... sem er alveg grafalvarlegt mál..
Á myndinni má sjá sáttaleiðina sem farin verður á Sjúkrahúsi Akraness. Þar verða öll börn klædd í bláar samfellur en lakið í vöggu þeirra verður bleikt. Og málið er dautt.
![]() |
17 þingmenn enn á mælendaskrá um fjárlög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 29.11.2007
Allt hefur breyst......
Í gær voru stór tímamót í mínu lífi.
Í dag líður mér eins og ég sé á sömu bylgjulengd og flestir
landsmenn., nema þá kannski þessir, og ekki gleyma þessum.
Allt hefur breyst.
Ég skynja hlutina með öðrum hætti og mér finnst ég hafa þroskast. Loksins
Já, ég segi það og skrifa.
Ég er búinn að sjá Mýrina.
Og vitið þið hvað.
Ég sofnaði ekki yfir myndinni...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 29.11.2007
Verður Oprah í sjónvarpinu?
Þetta er að sjálfsögðu alls ekki nógu gott. Litavalið í þessum karl-læga bás er ekki til eftirbreytni.
Ég skora á áhugafólk um forræðishyggju á Alþingi að taka þetta mikilvæga baráttumál upp.
Það er til fullt af fólki sem hefur tilfinningu fyrir þeim ríkislitum sem eiga að sjálfsögðu að ráða ferðinni á svona stöðum.
Að sjálfsögðu verður boðið upp á íþróttaefni og eitthvað álíka drasl í þessum karlabásum
- ég legg til að Oprah, Ameríkunæstíröðinnitoppfyrirsætuþátturinn, og innlitútlitrústumþvíogbyggjumafturplöggþátturdauðans, verði einnig á dagskrá.
e.s. mér fannst það alveg glatað þegar örvhenti og litblindi hjúkrunarfræðingurinn klæddi strákinn minn í gula samfellu með bleiku blómamynstri á Sjúkrahúsi Akraness 12. mars 1998...
það verður að sjá til þess að ríkisstarfsmenn séu ekki að klúðra málum með slíkum hætti.
Bönnum litlblinda og örvhenta ríkisstarfsmenn...
![]() |
Pabbar í pössun í Hagkaupum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 26.11.2007
Skrúfað fyrir í gamla Tónabæ?
Ég var að horfa á NBA-boltann á SÝN á dögunum, næturefni í beinni útsendingu.. Boston - Lakers..og þar sem að Lakersliðið gat ekki neitt þá fór ég að skipta á milli stöðva..
Og stöð 48 -NBATV, var eina stöðina á Digital Ísland sem var lokuð..
ég velti því fyrir mér hvort forsjárhyggjan ráði ferðinni í þessu tilviki..
Aðeins boðið upp á NBA á SÝN og á sama tíma er skrúfað fyrir NBATV..
kannski voru þetta bara tæknileg mistök, eða eru menn eitthvað að fikta í græjunum þarna í gamla Tónabæ? -hver veit..
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 23.11.2007
Einar ofurplöggari er bráðfyndinn
Þetta fannst mér fyndið...tekið af vef DV
Einar Bárðarson segir margar skondnar sögur í nýju bókinni sem Arnar Eggert Thoroddsen hefur skrifað um feril hans í umboðsbransanum. Í frásögn af því þegar Einar flutti Mikhail Gorbatsjev fyrrum leiðtoga Sovétríkjanna til Íslands í fyrra er meðal annars vikið að viðtali sem tekið var við Einar á fréttastöðinni NFS.
Gorbatsjev kom hingað í tilefni af því að liðin voru tuttugu ár frá hinum fræga leiðtogafundi hans og Regans, þáverandi Bandaríkjaforseta, í Reykjavík.Ég var lóðsaður í viðtal á NFS, segir Einar, og blaðakonan unga spurði mig af hverju ég hefði bara fengið Gorbatsjev? Af hverju ég hefði ekki fengið Reagan líka? Ég benti henni á að því miður væri það fullseint. Þannig væru nú að Regan hefði látist fyrir nokkrum árum. Sem betur fer var þetta ekki í beinni útsendingu þannig að viðtalið hófst bara að nýju!
Og Einar bætir við meinhæðinni athugasemd: Þetta segir kannski ýmislegt um af hverju NFS lifði ekki lengur en raun var.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 22.11.2007
Koma svo - bönnum auglýsingar á óhollum mat........
Pabbi sagði sá fimm ára hátt og snjallt við mig í morgun," þegar hann var að hella upp á kaffi fyrir sig...
Í dag ætlum við að borða Dominos pizzu. Það eru sko megadagar.
Á morgun förum við á McDonalds, um helgina tökum við KFC á laugardag, Burger King á sunnudag - þú veist. Þynnkumatur fyrir þig pabbi.
Á mánudag er það Hrói Höttur og á þriðjudag fáum við okkur Taco Bell., Snickers og Mars í eftirmat. Á miðvikudag fáum við okkur bara sjeik, það eru prótein í mjólkinni, og í hádeginu á fimmtudag er það Subway - við verðum að fá eitthvað grænmæti. Íþróttaálfurinn segir að það sé hollt," sagði strákurinn sem er frekar bráðþroska. Eða er hann kannski að þyngjast óeðlilega mikið. Ég veit það eiginlega ekki. Sé hann svo sjaldan - stýrisvextirnir maður....og aukavinna...
Að sjálfsögðu ræður hann ferðinni þegar við verslum í matinn en við erum alveg steinhætt að kaupa fisk, mjólk, ávexti og brauð - Krúttið vill þetta ekki og til hvers að vera rökræða þetta eitthvað við hann. Maður hefur bara ekki tíma í að vera rífast við börnin sín.
Ástandið er ekki alvarlegt að mínu mati og við erum sko ekki að missa völdin í uppeldinu. Ég er vissulega frekar þreyttur á Big Mac með beikoni, frönskum og flötu gosglasi. En ég læt mig hafa það. Velferð barnanna er það sem skiptir mestu máli. Og það er líka ótrúlegt hvað eldri systkyni hans eru sammála honum þegar kemur að því að velja kvöldmatinn. - þau fá víst engu ráðið í hádeginu í leikskólanum og skólanum - greyinn. Þar þurfa þau að borða fisk, slátur og eitthvað annað ógeð.
Það eru bráðum 2 ár síðan yngsta barnið tók völdin af okkur foreldrunum hvað varðar innkaup á mat og hann ræður algjörlega ferðinni í valinu á kvöldmatnum.
Það eru að sjálfsögðu sjónvarpsauglýsingar og annað áreiti í fjölmiðlum sem gera það að verkum að við misstum völdin.
Hvernig er það með ríkisstjórn þessa lands?
Geta ráðamenn landsins ekki brugðist við þessari þróun og hreinlega bannað KFC og McDonalds að auglýsa í sjónvarpi og í dagblöðum..
Hvað er annað hægt að gera í stöðunni?
Ég skora því á ráðamenn landsins að axla þá ábyrgð sem fylgir því að ala upp börnin mín..
koma svo....Geir og Solla...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)