Færsluflokkur: Dægurmál

Alvarlegt vinnuslys á Kópavogsvelli

Fór á leik í Landsbankadeildinni í gær í Kópavogi. Sú heimsókn hafði víðtæk áhrif á heilsufar mitt. Líklega er best að kalla þetta vinnuslys.

Ömurleg aðstaða fyrir fjölmiðla á Kópavogsvelli og með sólina beint í trýnið í 90 mínútur var það áskrift á mígreniskast dauðans.

Hægra eyrað á mér er lamað eftir skólahljómsveit Kópavogs, dúúddúddú og bank bank bank...Ef þetta verður málið í leikjum sumarsins þá VERÐUR að bjóða upp á kaffi og koníak á þessum leikjum eða bara koníak..það hefur góð áhrif á heyrnina og meltingu.small_Sj%C3%BAkrab%C3%ADll-%C3%A1-Hellishei%C3%B0i_390497963

Meltingarfærin eru í ólagi eftir að hafa innbyrt slatta af próteinum í fluguformi, það virðist vera faraldur í Kópavogi að flugur drekki sér í kaffibollum í fjölmiðlastúku Kópavogsvallar. Það þarf sértækar aðgerðir nú þegar ....og leikurinn eins og  búast mátti við....vorbragur.

Annars var gaman að sjá hve vel Hrafnkell á RÚV lifir sig inn í vinnuna. Það var ekki þurr þráður á drengnum - kófsveittur og með ungmeyjarroða í kinnum. Hann fór síðan á ættarmót í viðtölunum eftir leik. Ísland er lítið...


Andlegt ofbeldi á kjörstað

Ég varð fyrir andlegu ofbeldi á kjörstað í dag.punisher4

Ég fékk skýr fyrirmæli frá betri helmingnum um að kjósa rétt...er ekki bannað að vera með kosningaáróður á kjörstað? Að sjálfsögðu kaus ég rétt... og strikaði meira segja einn gaur út á listanum...sá fékk að kenna á því.

Annað sem ég skil ekki. Afhverju voru ekki ljósmyndarar að taka myndir af mér þegar ég skilaði atkvæðinu í kjörkassann? Botna ekki í þessu.  Atkvæði mitt mun ráða úrslitum í kvöld.


Iðnaðarmannaskora

Hmhmhmhmhmhmhm... var pípari með í för?unexpected_plumbers_crack-794247

Sá ekki betur en að hin fræga iðnaðarmannaskora leiki aðalhlutverki í þessu stórgóða innslagi.Blush

Þetta jaðrar við að vera klám.

 


mbl.is Íslenskir stangveiðimenn reyna fyrir sér í Indlandshafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigmar betri en lögin

Dimitar Berbatov er frá Búlgaríu og þrátt fyrir austurevrópusamsærið er Berbatov enn í guðatölu á mínu heimili.1148043344_1148039952_evrovision

Hlustaði með öðru eyranu á þetta Evrópopp yfir stórleik kvöldsins, Tottenham - Blackburn.

Eiki var fínn en maður kvöldsins var Sigmar Guðmundsson. Kynningarnar hjá drengnum voru mun betri en flest lög kvöldsins. Annars var þetta ágætt partý.

Ég legg til að Vinstri grænir taki það að sér í næstu ríkisstjórn að búa til "höfðatölu/atkvæðisreglur" í sambandi við þessa keppni. Þá ættum við kannski séns. Eða að keppa í forgjafarflokkum... það er pæling. "ég er með 4,3 í Evróforgjöf"...


mbl.is Ísland komst ekki í úrslit Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sértækur áhugi....

Úpps. Það er 28 ára gamall körfuboltadómari, sem er með mynd af mér fyrir ofan hjónarúmið sitt.fat-feature-nov

Ég hef öruggar heimildir fyrir því að þetta sé rétt.

Þessi áhugi körfuboltadómarans á mér er jafn vandræðalegur og sértækur áhugi ónefnds íþróttafréttamanns á Henke Larsson.

Ég er hér með nýja mynd af mér sem þessi ágæti gráklæddi skrefateljari getur klístað upp á vegg hjá sér. Ég hef ekkert breyst.....


Íþróttateipið.....

Á seint á síðustu öld kunni ég ekki að segja nei og hef reyndar ekki náð tökum á þeirri list frá þeim tíma. "Eigum við að bjóða okkur fram í stjórn nemendafélagsins?" - Já.. var eina svarið..... og síðan tók við ný lífsreynsla í stjórn nemendafélagsins.

Yfirburðasigur hjá okkar framboði.

Nemendafélagsfundir voru "gríðarlega" vel sóttir og "allir" nemendur skólans mættu á fundi til þess að heyra rökræður um kaup á íþróttateipi og vatnsbrúsum fyrir blaklið skólans sem var á leið í "gríðarlega" mikilvæga keppni á Laugarvatni. Jea right...

4% af heildarfjölda nemanda greiddi íþróttateipinu atkvæði, 96 % mætti ekki (stúdentsprófið klikkar ekki...96+4=100)

Eftir stjórnmálafund RÚV í kvöld er ég handviss um að "nemendafélagsstjórmálin" eru enn við lýði.ugly%20cat

Fáir hafa áhuga en þeir sem hafa áhuga eru kraftmiklir og koma sínum málefnum á framfæri.. eða þannig..

Ég er alveg á því að 94% landsmanna hefur meiri áhyggjur af gangi mála hjá Eika Hauks á fimmtudaginn, 4% landsmanna eru að velta Kyoto-samkomulaginu fyrir sér, færeyska kvótakerfinu, utanríkisstefnu Egyptalands og fleiri mikilvægum málum...

sjitt þarna klikkaði stúdentspróvyð 94+4=98

óver and át.


Afrekskylfingur á Álftanesi......

Golfklúbbur Álftanes verður án efa í fremstu röð í framtíðinni en þessa stundina er forgjafarlægsti meðlimur GÁ maður með 14,9 í forgjöf sem telur að golf snúist um það að slá lengra en hinir.Golf-5

Þessi íþrótt er snilld.

Til hamingju með áfangann brói, þú skorar feitt með þessu plöggi.

Ég held reyndar að Dorrit komi sterk inn með haustinu eftir sjúkraþjálfunina og mun hún velta þér úr efsta sætinu. Hún er víst með eitraða bakhönd..

Ég er alveg ttaður, þeir eru ekkert að grínast með þetta golf þarna á Álftanesinu.

FORE


Leynir á sér

Það var gaman að fylgjast með gangi mála á Ítalíu og í fyrsta sinn sem Hafthorsson var á fyrsta spjaldi þegar skorin voru sýnd í sjónvarpinu. Birgir sýndi að hann getur vel blandað sér í baráttuna um sigur á stærstu atvinnumótaröð í Evrópu þar sem smáatriði skilja á milli.akranes-99-26400

Ég er viss um að margir aðrir kylfingar væru löngu búnir að gefa atvinnumennskuna upp á bátinn ef þeir hefðu reynt við úrtökumótið í 10 skipti.

Það sést á leik Birgis að hann er að ná stöðugleika sem þarf í keppni við þá bestu, aðeins fjórir skollar á 54 holum, er góður árangur og ég er sannfærður um að hann á eftir að hala inn nokkrar Evrur á næstu vikum. Hamrar járnið á meðan það er heitt. 

Birgir leikur fyrir GKG þessa stundina en hér á Akranesi er hann að sjálfsögðu "Skagamaðurinn" Birgir Leifur og Leynismerkið verður aldrei þvegið af honum. Hann Leynir á sér.

Gott framtak hjá Sýn að vera með útsendingu frá lokadeginum en því miður fór eitthvað úrskeiðis í bráðabananum þar sem myndin datt alveg út. 


mbl.is Birgir fór upp um 52 sæti á peningalistanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sultugel á kantinum

Ég efast ekki um að það verður alveg brjálað að gera hjá öllum í íslenska hópnum sem er mættur til leiks í Finnlandi á Júróvísjón.

Alveg hellingur sem þarf að gera og margir boltar á lofti.babyfootball

Það var skondið að lesa viðtal við Svavar hárgreiðslustílista í Fréttablaðinu í dag., hann fer með til þess að eiga við rauða faxið á Erik Hawk. En fær samt ekki að greiða og blása hárið á gaurnum eins og hann vill....

Er Eiki ekki bara með heddandsjólders í lummó snyrtitösku eins við hinir?, Smá ítalskt sultugel á kantinum og málið er dautt?

Það þarf ríkisstarfsmann í slík stórverkefni.


0,5 km/ltr. meðaleyðsla

Samkvæmt rannsókn sem gerð var í Bandaríkjunum árið 2006 þá ganga Bandaríkjamenn að meðaltali um 1500 km. á ári. Önnur rannsókn fann það út að Bandaríkjamenn drekka að meðaltali 83,28 ltr. af bjór á ári. yourson200

Þeir komast því 18 km á hverjum ltr. Er það gott eða slæmt? Ég hef lauslega áætlað að ég sé frekar í efri mörkum þegar kemur að samanburði á þessu sviði. 

Ég spila ca 30 hringi á ári í golfi... um 210 km., og ég er fyrir ofan ársmeðaltali í USA þegar kemur að því að bæta upp vökvatap líkamans með sérstakri blöndu af vatni, malti og humlum. (innihaldslýsing á Lite frá Viking). 

Mér sýnist að ég komist um 0,5 km. á hverjum ltr. af sérstakri blöndu af vatni, malti og humlum.

Það er ca. dræver, hálfviti, 52. gráðu fleygjárn og tvö pútt. 

Mér datt þetta í hug þegar ég sá konuna sem vann Hummerinn í einhverju happdrætti.

Hún var afar glöð enda ekki á hverjum degi sem að 67 ára gömul kona getur farið í mjólkurbúðina á Hummer ? Hver er meðaleyðslan á Hummer, 40 lítrar á hundraði?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband