Færsluflokkur: Dægurmál

Vilji er allt sem þarf

Ég verð að deila þessu með ykkur.

Snillingur, 4 ára gamall, fékk áhuga á golfi á meðan hann var að jafna sig eftir aðgerð á auga vegna krabbameins. Vilji er allt sem þarf.

Og ég kann að linka myndbönd frá YouTube.

Hvar endar þetta?


Þá er það ákveðið

Þá er það ákveðið.

Bjór verður seldur á stærri íþróttaviðburðum í framtíðinni á Íslandi.

Skoðakönnun seth.blog.is gefur örugga vísbendingu að 70,3 % þjóðarinnar er sammála þvi að bjór verði seldur á stærri íþróttaviðburðum á Íslandi.

Hitt pakkið er ósammála.  beer%20belly

Alls voru 145 atkvæði sem töldust gild í þessari könnun en vegna bilunar í netþjón á blog.is þann 1. apríl s.l. gat síðuhaldari kosið 144 sinnum sama daginn. Pabbi á hitt atkvæðið. Hann er á móti bjórsölu - er frekar til í besta bjór í heimi, sem er ókeypis bjór.

Ný skoðanakönnun er á síðunni. Og þar er ekkert dregið undan.




Yfirsjón

Getur verið að samtökin hafi hreinlega gleymt að fresturinn rann út í dag?barceloneta05
mbl.is Baráttusamtökin aðeins fram í einu kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þetta fullt starf?

Fór með snillinginn minn í 5 ára skoðun á miðvikudag, er ekki að tala um bílinn, heldur yngsta soninn.morgunbladid

Læknir og hjúkrunarfræðingur, hæðin mæld og þyngdin, eyrun skoðuð og svo auðvitað sprautað í handlegg. Engin tár - en bara pínu vont.

Hjúkrunarfræðingurinn spurði við hvað ég væri að vinna  - hvort ég væri enn að kenna íþróttir. Ég sagði henni að ég væri blaðamaður á Morgunblaðinu og búinn að vinna við það í sjö ár.

"Nú er það fullt starf?," spurði hún og brosti.

Hvað getur maður sagt?


Snilld hjá XBjé

Ég verð að hrósa Framsóknarflokknum fyrir ótrúlega hagsýni. Eins og allir vita er eitthvað þak á útgjöldum stjórnmálaflokka vegna auglýsinga í fjölmiðlum vegna veislunnar fram fer 12. maí. scion-xb-widebody-12-s

Þvílík snilld hjá Framsóknarflokknum að koma sínu fólki í flesta fjölmiðla landsins með lítilli fyrirhöfn og án þess að greiða fyrir auglýsinguna.

Fáum tekst þetta eins vel upp og Framsókn.

Hver segir að flokkurinn eigi undir högg að sækja?

Þetta er flokkur sem kanna að nýta tækifærin þegar þau gefast.

Gargandi snilld.

Bíð spenntur eftir næsta leik. 

Þessi færsla var að sjálfsögðu ekki í boði XBjé, né XDjé, eða XEss.

Bifreiðin á myndinni ber nafnið XB samkvæmt Google. 


Sú gamla svarar fyrir sig

Þetta myndband er bara fyndið -angry_granny

sú gamla með það á hreinu hvernig á að svara fyrir sig. 


Seinþroska Steingeit

Stjórmálin geta verið skemmtiefni. Horfði á endursýningu á RÚV eftirsteingeit3 miðnætti í gær þar sem margt áhugavert var sagt í hita leiksins. Guðlaugur Þór frysti Ögmund með kaldri kveðju. Og var þetta í fyrsta sinn sem að hitastigið í þessu karpi fer yfir 0 gráður.

Margrét Sverrisdóttir og Magnús Þór Hafsteinsson hlið við hlið en höguðu sér eins og þau væru í fermingarveislu. Hefði viljað sjá nett olnbogaskot frá Margréti í Magnús. Það hefði gefið þessu enn meiri sjarma. Magnús hefði alveg þolað það, enda sterkur strákur. Og sjónvarpið hefði verið betra. Björgvin úr Samfylkingunni á sjaldan slæman dag í því að vera leiðinlegur. Alltaf jafnleiðinlegur. Er það kannski kostur í stjórnmálum? 

Það var mikið rætt um skólamálin í gær.

Allir hrikalega sammála - frelsi og engin samræmd próf.

Gott mál.

Árgangur '68 á Akranesi var notaður sem tilraunaverkefni á sínum tíma og sá árgangur tók ekki samræmd próf í 9. bekk (10. bekkur í dag).

Það skilaði fínum árangri og þeir sem náðu árangri á jólaprófunum fengu að demba sér í Fjölbrautaskólann strax í janúar.

Sumir höfðu þroska til þess að skilja þetta en Steingeitin sem er fædd næst síðasta dag ársins 1968 var ekki að fatta þetta á þeim tíma. Bjarni Ármannsson gerði það hinsvegar.

Helv. mistök að vera seinþroskaSJH%20Border Steingeit.


Nadal ósigrandi á möl

Það er alltaf gaman þegar eitthvað bull kemur fram í hita leiksins í íþróttafréttum. Þar sem að gríðarleg íþróttadagskrá var í gær á RÚV á mánudegi var ekki von á öðru en að eitthvað færiPRE6286 úrskeiðis.

Federer tapaði í fimmta sinn í röð gegn Nadal.

Nadal hefur verið ósigrandi á möl og hefur unnið 66 leiki á því undirlagi," sagði Lovísa ísköld í 22 TVfréttum RÚV. 

Annars hefur Hans Steinar komið helv. sterkur inn á þessu sviði.

"Zach Johnson kom fyrstur í mark á Mastersmótinu í golfi."

Það mun fátt toppa þetta. Johnson lafmóður eins og Labradorhundur á 18. flöt á Augusta? 

"Ég skil ekki afhverju Pat Riley lætur Shaq taka öll þessi víti." - hmhmhmhm.... 


Smá skonsa

Ég hef ekki séð þetta myndbrot úr Íslandi í dag, en eftir lýsingunni að dæma þá er þetta ágæt lýsing á heimavist frá árinu 1970. Kynntist því sjálfur sem nemandi á ÍKÍ Laugarvatni. Smá skonsur fyrir tvo nemendur, en vissulega var boðið upp á sturtu, og salerni í hverju herbergi.

Að sjálfsögðu er ekki boðlegt að vera með fjögur salerni og fjórar sturtur fyrir 40+ manns.

Það er víða þar sem að framboð á húsnæði er lítið sem ekkert. Sem námsmaður í Osló gerði maður sér að góðu að vera í 38 m2, reyndar vorum við fjögur í þeirri íbúð. Stækkuðum við okkur eftir eitt ár og fórum í 42 m2.  Það eru ekki nema 10,5 m2 á mann. Lifðum það af og rúmlega það. Ég held að flestir íslenskir verktakar sem eru með menn í vinnu tímabundið geri sitt besta til þess að útvega þeim sómasamlegar vistaverur.


mbl.is „Alvarlegar athugasemdir við fréttaflutning Íslands í dag"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spóinn var að vella á dönsku

Það er ekki oft sem ég sé fullorðið fólk sem er hætt að vinna (fyrirgefið - hætt að kenna), vera með grátstafi í kverkum yfir tæknilegum mistökum áspoi RÚV.

Karl faðir minn (Þórólfur Ævar Sigurðsson), var eins og lítið barn í sófanum í Jörundarholtinu í kvöld og beið hann eftir heimildamynd eftir Pál Steingrímsson.

Spóinn - spóinn var að vella. 

Ógleymanlegur svipur á ÞÆS þegar þulan tilkynnti að Spóinn yrði ekki á dagskrá vegna tæknilegra mistaka.

(Hef ekki séð önnur eins vonbrigði frá því að Ísak Örn, sem er 5 ára gamall, sá að ástralski kappaksturinn var á dagskrá í  stað barnaefnis á  laugardegi.) 

Þess í stað var sýndur þáttur um eina vinsælustu söngkonu Dana, Sanne Salomonsen, sem kom fyrst fram í sjónvarpi sex ára, gaf út sína fyrstu plötu 17 ára og á nú að baki 35 ára farsælan feril.index-sn

Eini tengdasonur ÞÆS er danskur, Ole  er eðalgripur, og það var skemmtileg tilviljun að við vorum með fjóra danska krakka í heimsókn hjá okkur í kvöld.

En þetta var aðeins of mikið af dönsku fyrir þann gamla, sem er nota bene er hættur að kenna. ÞÆS leggur mikla áherslu á að hann er ekki hættur að vinna.

Ég er enn að hlægja, þetta var bara bráðfyndið.

Hann hefði kannski átt að ssssstjékka betur á heimasíðu Saaaaaaanne.

Hún á flottann leðurgalla.

Eða er þetta bara latex??? 

Að sjálfsögðu var þessi færsla í boði Framsóknarflokksins og fjárlaganefndar Alþingis. Bönns af monní þar á ferðinni. Munið bara að kjósa XBXBXBXBXBXBXBXBXBXBXBXBXBXBXBXBX - djók.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband