Færsluflokkur: Íþróttir
Laugardagur, 9.2.2008
Skítkalt á Akranesi
Hér á Akranesi er ástand.
REI málið hefur tekið á sig nýja mynd.
Eftir að bæjarstjórnin á Akranesi hraunaði yfir kjörna fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur hafa lífskjörin versnað á Akranesi.
Hefnd?
Ég veit það ekki.
Allavega hitaveitan í tómu rugli og hitastigið í húsinu okkar er að nálgast 17 gráður.....
brbrbrbrbrbrbrbrbrbrbrbrbrbr..
Koma svo Orkuveita Reykjavíkur.....upp með sokkana.. það er skítkalt á Akranesi..
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 8.2.2008
Ekki séns
Miðstöðin er þessa stundina í lagi á hinum franska Runólfi Megane sem er 9 vetra. Helvítis munur að hafa hita í bílnum. Og þeir strekktu einnig á viftureiminni.
Nágrannarnir hafa eflaust hringt og beðið um að strekkja á reiminni.
Runólfur átti það til að ískra á frönsku í 1-2 mínútur eftir að hann fór í gang.
Annars var ég að hlusta á útvarpið í gær og Valtýr Björn íþróttafréttamaður var að segja frá því að hann sópaði alltaf öllum snjónum af þakinu á bílnum áður en hann færi af stað.
Ef ég hugsa málið til enda þá er það ekki EKKI séns....
nema að hann eigi Smart eða Mini.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 6.2.2008
Eyjamenn skora á eyju
Það eru greinilega bara Eyjapeyjar sem geta skorað á eyjunni Möltu...
vonandi verður þessi sigur til þess að hagur íslenska landsliðsins undir stjórn trésmiðsins lagist eitthvað á næstunni.
![]() |
Íslendingar sigruðu Armena 2:0 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 6.2.2008
Stuttbuxur sem ná niður fyrir hné?
Ég fór á körfuboltaleik í Borgarnesi s.l. sunnudag, Skallagrímur vs. Fjölnir.
Fínn leikur og allt það.. en ég fór að velta fyrir mér hvernig þróunin hefur verið í hönnun á körfuboltabúningum undanfarin ár.
Jói Waage er aðalmaðurinn á bak við búninga Skallagríms.
Og ég verð nú bara að spyrja. Er gott að spila í þessum stuttbuxum?
Þær eru risastórar og ná niður fyrir hné á ÖLLUM leikmönnum liðsins.
Líka á 2 metra gaurunum.
Eflaust eru skiptar skoðanir um þetta.
Ég er ekki að mæla með Stockton lúkkinu á þetta.. en ég velti því bara fyrir mér hvort þessi sídd sem ræður ferðinni í dag sé þægileg.
Ég hefði allavega gripið hressilega í svona buxur hjá andstæðingunum hérna í "denn".
Af nógu er að taka.
Bara pæling...
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 4.2.2008
Áunnið ofnæmi fyrir G&T
Árshátíð Árvakurs var að mig minnir mjög vel heppnuð þarna á gamla Esjubergi um helgina.
Ég er alveg á því að ég sé með áunnið ofnæmi fyrir G&T.
Ég fékk að heyra það frá nokkrum að ég væri ekki í réttum þyngdarflokki miðað við hæð.
Helvítis kjaftæði. Ég var næstum því búinn að ná þriggja stafa tölu á vigtinni fjórum dögum fyrir árshátíðina.
Lét kippa úr mér tveimur endajöxlum til þess að komast réttu meginn við strikið......
Meira síðar.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 1.2.2008
Helvíti næs
Ég hef á undanförnum tveimur dögum komist að því að það er víst bráðnauðsynlegt að vera með miðstöðina í lagi í bílnum.
Hinn franskættaði Rúnólfur sem var framleiddur árið 1999 og skírður Megane er eitthvað tregur á hitanum þessa dagana og það er sami hiti inni í bílnum og fyrir utan.
Mínus 12 gráður í dag... brrrrr..
Ég keyrði því hægt í gegnum Hvalfjarðargöngin þar sem að hitastigið fór alveg upp í 4 gráður þarna í botninum á göngunum.
Helvíti næs í smá stund. En síðan fór hitamælirinn í mælaborðinu niður á við aftur.....
Ég hélt líka að löggann myndi stoppa mig á Kjalarnesinu. Var með lambhúshettu og grifflur.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 31.1.2008
Sagði hann dottað?
Ég var í bílnum í gær þegar ég heyrði útvarpsmann á Bylgjunni minna á skoðanakönnun á Bylgjan.is.
Hann sagði: "Og stjórnendur þáttarins Reykjavík síðdegis spyrja í dag hvort ökumenn hafi
sofnað eða dottað undir stýri. Farðu inn á Bylgjan.is og svaraðu spurningunni"......
Ég var alveg glaðvakandi en mér fannst þetta ansi tvírætt.
"Sagði hann dottað? eða var þetta t þarna í upphafi orðsins? hugsaði ég."
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 12:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 31.1.2008
Uno
1 leikur hjá Woodgate.. ég er bara ánægður ef hann nær fleiri en 9 leikjum sem var heildartalan hjá drengnum í herbúðum Real Madrid.
Hann hefði kannski átt að velja sér lægra númer á keppnistreyjuna hjá Real Madrid.....
Ég er ekki í vafa um að allir halda að þetta séu verstu kaup sögunnar hjá mínum mönnum... en kannski á Woodgate eftir að sýna snilldartakta.. hver veit?
Ef hann verður með gegn Man. Utd. á laugardag þá eru það stórtíðindi.. tveir leikir í röð. Og hann er nr. 39 hjá mínum mönnum.. ætli hann nái 39 leikjum áður en hann leggur skóna á hilluna?
19982003 20032004 20042007 20062007 20072008 2008 | Leeds United Newcastle United Real Madrid → Middlesbrough (lán) Middlesbrough Tottenham Hotspur | 104 leikir (5) mörk 28 leikir (0) mörk 9 leikir (0) mörk 27 leikir (0) mörk 19 leikir (0) mörk 1 leikur (0) |
![]() |
Poyet ánægður með Woodgate |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 30.1.2008
Á hvaða lyfjum eru hinir?
Þegar George OGrady stjórnarformaður Evrópumótaraðarinnar tilkynnti á síðasta ári um lyfjapróf á atvinnumótaröðum í golfi víðsvegar um heim sagði hann að í raun þyrfti aðeins að senda einn kylfing í lyfjapróf..... Tiger Woods..
"Ef Woods er ekki á lyfjum, þá er mér alveg sama á hvaða lyfjum hinir eru..það virðist allavega ekki hjálpa þeim til þess að ná honum."
Svei mér þá ef þetta er ekki bara rétt hjá OGrady..
Hvað með John Daly? Niðurstaðan úr lyfjaprófi úr honum er eflaust fréttaefni.....
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 30.1.2008
Ólafur F.. í Little Britain?
Það er allt að verða vitlaust út af þessum Spaugstofuþætti sem sýndur var á laugardaginn.
Ég brosti og hló nokkrum sinnum og það hefur ekki gerst lengi yfir Spaugstofunni.
Mér fannst margt af þessu bráðfyndið og kaldhæðnin í aðalhlutverki. Ég skil ekki afhverju svona margir eru að æsa sig yfir því að atburðir samtímans séu settir upp í "farsa" eða "revíu" í vikulokinn? Að mínu mati hefðu þeir mátt ganga miklu lengra.
Ef þetta grín er sett upp í alþjóðlegt samhengi þá gætum við alveg ímyndað okkur hvernig Bretar hefðu tekið á þessu upphlaupi í Borgarstjórn Reykjavíkur?
Little Britain? Spaugstofan er bara sunnudagsskóli miðað við margt annað sem við sjáum daglega í sjónvarpi.
Harpa Hreinsdóttir kennari við Fjölbrautaskóla Vesturlands hittir naglann á höfuðið í þessari færslu. Þar tekur hún Ólaf F. í nefið en Harpa hefur ekkert að fela þegar kemur að umræðu um geðsjúkdóma eða geðsýki.....
"Af hverju er valdamikill maður, borgarstjórinn í Reykjavík, að reyna NÚNA að draga umræðu um geðsjúkdóma niður á sama plan og upp úr 1975, þegar menn göptu yfir Gaukshreiðrinu hans Milos Forman, gerðri eftir bók sem kom út 1962 og byggði á reynslu Ken Kesey af vaktmannsstörfum á geðsjúkrahúsum nokkrum árum fyrr."
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)