Alveg spakur með barn í maganum

Allir spakir á Akranesi og í Keflavík... góðar fréttir..

þar sem að sættir eru aðalmálið í þessari frétt er rétt að nefna það að ég varð ekki aðeins fyrir "árás" frá "sturluðum" pabba á Nikulásarmótinu á Ólafsfirði um helgina.

Ég varð einnig fyrir andlegu ofbeldi frá 4-ára gömlum pjakki.

Helgi Már Bjarnason sat spakur á öxlum föðurs síns er við gengum af sparkvöllunum í átt að tjaldsvæðinu.

Guttinn leit á mig og mældi mig hátt og lágt.olett_kona_301106

Hann var ekki lengi að átta sig á hlutunum og spurði:

"Ert þú með barn í maganum?".

Ég sagði ekki fleira það kvöldið.. og hann hitti tvær flugur í sama höfuðið að mati aðstandenda minna sem voru ekki langt frá og hlógu eins og vitleysingar.. þetta kallar maður stuðning eða þannig.

Helgi Már er snillingur...


mbl.is Mark ÍA stendur og sættir hafa náðst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott plott.....

Þetta er frábært plott hjá Stöð 2 og Einari Bárðar....

- það er alveg nauðsynlegt að fá sér áskrift að Stöð 2 í haust.....

Fékk þetta í pósti í morgun.....bara skondið.... 

A very loud, unattractive, mean-acting woman walked into Wal-Mart with her two kids, yelling obscenities at them all the way through the entrance.

The Wal-Mart Greeter said pleasently: "Good morning and welcome to Wal-Mart.  Nice children you have there.  Are they twins?"

The ugly woman stopped yelling long enough to say, "Hell no, they ain´t."

"The oldest one´s 9 and the other one´s 7.  Why the hell would you think they´re twins?  Are you blind, or just stupid?"

"I´m neither blind nor stupid, Ma´am", replied the greeter. "I just couldn´t believe you got laid twice.  Have a good day and thank you for shopping at Wal-Mart."

 


mbl.is Emilía hættir í Nylon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afreksmaður?

Beckham var ekki á Ólafsfirði um s.l. helgi á Nikulásarmótinu í fótbolta en margir snillingar spörkuðu í bolta á því móti. Í gær var innslag í Íslandi í dag þar sem að fullyrt var að afreksstefna væri ráðandi í þjálfun yngri barna í íþróttum...

Þar var rætt við einhvern mann sem var með sumarbúðir fyrir krakka  sem hafa ekki náð að festa sig í sessi í íþróttum..gott framtak en ég er ekki sammála þeirri fullyrðingu að íþróttafélög leggi gríðarlega áherslu á afreksstarf......

Það eru vissulega til þjálfarar sem vinna eftir slíkri línu en ég fullyrði að meirihluti þeirra sem sinna barna og unglingastarfi leggja mesta áherslu á að sem flestir fái verkefni við sitt hæfi....

Fréttin var að mínu mati "einhliða" og það var vegið að því ágæta starfi sem unnið er í grasrótinni hjá íþróttafélögum landsins..

e.s. ég rakst á hund rétt utan við Þelamörk á sunnudaginn... fannst eins og ég hefði séð mynd af honum í einhverju blaði fyrir nokkru.. tók hundinn upp í, gaf honum pulsu í Varmahlíð.. hef ekki séð hann síðan...(Lúkas IV). 


mbl.is Óvíst hvort Beckham verði með gegn Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 17. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband