Simmi og Jói og Milton Bell

Möllerinn fær prik fyrir þetta, "Mulligan" kallast það í golfinu, að fá að endurtaka högg á fyrsta teig sem misheppnast... -

Ég velti því fyrir mér hvort útvarpsmennirnir Simmi og Jói fái "Mulligan" á það sem þeir sögðu í dag í þætti sínum.MIL-805

"Ætli skákmennirnir í Namibíu noti bara svart þegar þeir tefla?"  - Sagði Jói þegar hann vitnaði í þessa frétt á mbl.is. Uss, uss, uss, uss, uss.. ég veit að Milton Bell fyrrum félagi minn úr úrvalsdeildarliði ÍA veturinn 1995-1996 hefði ekki sætt sig við slíkan "djók".

Í Valsmótinu haustið 1995 tók hann einn leikmann kverkataki og reyndi að drepa hann eftir að orð um litarhátt og mömmu hans heyrðust frá viðkomandi í hita leiksins.

Bellarinn er ekki á myndinni hér til hliðar en samt sem áður er þetta Milton Bell..


mbl.is Kristján biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það þarf talsverða auðmýkt í að viðurkenna opinberlega að maður hlusti á Simma og Jóa. Óska þér til hamingju með það.

HBG (IP-tala skráð) 22.9.2007 kl. 15:05

2 Smámynd: Rögnvaldur Hreiðarsson

Vill svo skemmtilega til að ég var að stíga mín fysrtu spor í dómgæslu þarna og var alveg ofan í þessu atviki. Milton virkaði verulega prúður maður á alla lund en þegar þessi leikmaður fór að tala um mömmu hans þá gaf sig eitthvað. Heyrði ekki hvað sagt var en trúði samt Milton.

Ætli Örvar hafi haft gaman að þessu?

Rögnvaldur Hreiðarsson, 22.9.2007 kl. 22:18

3 identicon

var ekki Helgi Sig íslandsmeistari með víkingum 1991 - tel það vera þannig.

leiðrétting (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 08:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband