Í gammósíum á Fjölnisvöll

„Þið ungu menn vitið ekki hvað gammósíur eru," sagði Bjarni Fel í gær við mig í hálfleik á leik Fjölnis og KR þegar ég var að væla yfir kulda í fjölmiðlaaðstöðunni. Ég þakkaði Bjarna fyrir hrósið að kalla mig ungan mann. Hann er kannski farinn að sjá svona illa. Ég benti honum á að ég væri lölega kominn á fimmtugsaldurinn í lok ársins. Bjarni lítur greinilega á mig sem grænjaxl í stéttinni eftir 8 ára veru. Það gleðiefni. Takk fyrir það Bjarni. En hvað eru gammósíur?

Kvenkynsnafnorðið gammósíur hefur þrenns konar merkingu:

   1. háar skóhlífar (úr gúmmí)

   2. legghlífar

   3. síðar, þröngar prjóna- eða teygjubuxurleggings-bl

Hann hefur líklega átt við nr. 3. Ég var ekki í slíkum fatnaði. Gerir það næst þegar ég fer á Fjölnisvöllinn. Men in thigts. 

Ég er rétt núna að ná hita í fingurna eftir að hafa norpað úti á svölum með fartölvuna fyrir framan mig á Fjölnisvellinum. Loftræstingin var fín í fjölmiðlaaðstöðunni sem er náttúruleg og umhverfisvæn. Eins og á „Þjóðarleikvanginum". Þú situr einfaldlega úti.  

Það var líklega ekki nema 6 stiga hiti. Og þegar menn sitja á sínum f...rassi í 90 mínútur þá er aðeins eitt sem gerist við slíkar aðstæður. Þér verður kalt. 2 lítrar af kaffi héldu mestu skjálftaköstunum niðri en ég komst að því að Dell tölvur þola alveg helling af sultardropum, sem láku í gríð og erg niður á lyklaborðið. Helvíti hressandi..

Ég gleymdi stóru úlpunni sem fjölmiðlamenn fengu á dögunum frá Landsbankanum. Ég er reyndar svo stór þegar ég hef klætt mig í þá úlpu að ég þarf að fara í umhverfismat áður en ég get mætt á leik í því „tjaldi".

Leyfiskerfi KSÍ er líklega með Fjölni á undanþágu í einhvern tíma. Það verður eflaust ekki slegist um að fara á leiki þarna í sumar í blaðamannastéttinni ef aðstöðunni verður ekki lokað með gleri. Þetta slapp fyrir horn í gær en ef það rignir hressilega....

Fjölnismenn gerðu allt til þess að redda málum. Rafmagn, fjöltengi, netsamband, stóll, borð og leikskýrsla. Grunnþarfir fjölmiðlamanna. Og þetta skilaði sér allt fyrir rest. Netið var reyndar úti og inni. Því verður kippt í liðinn.

Kaffið er reyndar lífsnauðsynlegt. Miðað við meðalþyngd íþróttafréttamannastéttarinnar eru kruðerí og rækjusamlokur  óþarfi.  Slíkt kransæðakítti verður aðeins til þess að flýta fyrir alvarlegri kransæðastíflu hjá flestum..(HBG...)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HHAAAA skot á mig? Trúi því ekki.

Eins gott maður er með breitt bak og eitthvað fleira er líka breitt.

Annars er þetta óttalegur væll í þér, ég gat byrjað að hreyfa fingurna um miðnæturleytið eftir heitt bað.

hbg (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 11:41

2 identicon

Einu sinni rotaðist Framari í leik. Þegar hann rankaði við sér spurði hann óðara hreint ,,hvernig er staðan"? 3- 0 fyrir Víking var svarið.

,,hvort er það betra eða verra fyrir okkur"? sagði sá nýviðrankaði þá og var þetta lengi notað sem málsháttur í röðum Framara.

Þegar Albert sálugi sá um landsliðið í den, (upp úr 1968) lét hann leikmenn keppa á stuttbuxum í janúar í tólf stiga frosti. Væri fróðlegt að athuga barneignir landsliðsmanna á þessum árum. kuldi ku hafa þveröfug áhrif á við hita á sundgetu sæðisfruma.

fyrrverandi Framarafrú

Guðrún Jónína Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 13:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband